Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 40
28 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis­atburði, s­tórafmæli og útfarir má s­enda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýs­ingar á að s­enda á auglysingar@frettab- ladid.is eða hringja í s­íma 550 5000. Merkisatburðir 1080 Ísleifur Gissurarson lést þennan dag. Hann varð fyrsti biskup Íslands er hann var vígður á hvíta- sunnudag árið 1056 og sat í Skálholti. 1930 Fyrsta heimili hér á landi fyrir þroskahefta tók til starfa. Það var Sólheimar í Grímsnesi sem Sesselja H. Sigmundsdóttir stofnsetti ásamt þjóðkirkjunni. 1933 Hópflug Ítala. Sveit 24 flug- véla hafði viðdvöl í Reykja- vík á leið frá Róm til Chi- cago. Balbo flugmála- ráðherra Ítalíu var foringi sveitarinnar. 1968 Fyrsta Bítlalagið komst á vinsældalista í Bandaríkj- unum. Það var From me to you er fór í 87. sæti. Del Shannon söng eigin útgáfu. Þjóðfundur var settur í alþingissalnum í Lærða skólanum í Reykjavík þann 5. júlí árið 1851. Hann fjallaði um réttarstöðu Íslands. Áður hafði Jón Sigurðsson ritað grein í Ný félagsrit um að með afsali einveldisins væru Ís- lendingar í raun frjálsir frá Dönum. Þeir hefðu einungis svarið konungi holl- ustueið en ekki dönsku þjóðinni. Þau orð féllu í frjóan jarðveg á Íslandi en Danir voru óhressir. Á fundinum lögðu Danir fram nýtt frumvarp til stjórnlaga sem gerði ráð fyrir að grund- vallarlög Dana tækju gildi á Íslandi og þjóðþing þeirra fengi víðtækt vald yfir mál- efnum Íslands. Meirihluti stjórnlaganefndar hafnaði frumvarpinu og samdi nýtt sem innihélt ýtrustu kröfur Íslendinga á þess- um árum. Þegar hefja átti umræður um hið róttæka nefnd- arálit vísaði Trampe greifi málinu aftur til nefndar og sleit fundi. Þá reis Jón Sigurðsson á fætur og mælti þessi frægu orð: „Og ég mótmæli í nafni konungs og þjóðarinnar þessari að- ferð, og ég áskil þinginu rétt til, að klaga til konungs vors yfir lögleysu þeirri, sem hér er höfð í frammi.“ Þá risu þingmenn upp og sögðu flestir einu hljóði: „Vér mótmæl- um allir!“ Þessi varnarsigur Íslendinga var einn merkasti áfanginn á leiðinni til sjálf- stæðis. Þetta gerðist: 5. JúLÍ 1851 Vér mótmælum allir „Þetta eru svipmyndir eða stiklur. Auðvitað er gríðarlega mikið efni til enda um 100 ára sögu að ræða,“ segir Björn G. Björnsson hjá List og sögu sem setur upp sögusýningu Ungmenna­ félags Íslands. Hún verður opnuð í dag í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, á setningardegi 25. landsmóts félagsins sem einnig er haldið í Kópavogi. Björn var önnum kafinn við upp­ setningu sýningarinnar í gær en gaf sér þó tíma til að lýsa því hvað hann teldi henni helst til gildis. „Ég held að fjölbreytni sé lykilorðið því hér eru meðal annars munir, kvikmynd­ ir, myndir, textar, verðlaunagripir og veggspjöld. Við lögðum þá hugmynd til grundvallar í byrjun að velja um 100 atriði úr sögunni til að gera ein­ hver skil hér. Við köfum ekki djúpt í söguna en höfum sýninguna mynd­ ræna fyrst og fremst. Svo kemur bókin út í haust og þar er sagan öll.“ Bókin sem Björn nefnir er sem sagt saga Ungmennafélags Íslands sem Jón Magnús Ívarsson sagnfræðingur er að skrifa. Glöggur texti á sýningunni bregð­ ur ljósi á starfsemi félagsins frá upp­ hafi. Þar kemur fram að Ungmennafé­ lag Íslands var stofnað 2. ágúst 1907 á Þingvöllum. Fyrsti formaður þess var Akureyringurinn Jóhannes Jóseps­ son glímukappi og að sjálfsögðu var keppt í konungsglímu á fyrsta fundi. Jóhannes var líka fyrirliði glímu­ manna sem fór á vegum UMFÍ á Ól­ ympíuleika árið 1908. Hann keppti þar í grísk/rómversku fangi og komst í fjögurra manna úrslit en varð þá að hætta vegna meiðsla. Hann lauk því keppni ósigraður en taldist í 4. sæti. Stofnendur Ungmennafélags Ís­ lands voru fimm. Nú eru innan þess samtals 82 þúsund félagar í 19 héraðs­ samböndum og 12 félögum með beina aðild. Ræktun lands og lýðs hefur jafn­ an verið á stefnuskrá ungmenna­ félaganna. Fyrir utan að efla íþrótta­ iðkun hafa þau staðið fyrir stofnun bókasafna, málfunda, útgáfu rita og almenns félagslífs. Þau notfærðu sér heitar laugar og byggðu víða litlar sundlaugar úr torfi og grjóti þar sem margir lærðu að synda. Einnig voru þau í fararbroddi við byggingu sam­ komuhúsa vítt og breitt um landið. Fyrsta landsmót UMFÍ var á Akureyri árið 1909 en ekki komst regla á þau fyrr en eftir 1940. Það ár var haldið mót í Haukadal að frumkvæði Sigurðar Greipssonar og sóttu það á annað þúsund manns. Síðan hafa mótin yfirleitt verið á fjögurra ára fresti. Að sögn Björns Hermannssonar, framkvæmdastjóra mótsins í ár, má reikna með að gestir landsmótsins 2007 hlaupi á nokkrum tugum þúsunda. Saga ungmennafélagshreyfingar­ innar er samofin sögu þjóðarinnar í hundrað ár og sýningin í Gerðarsafni birtir skemmtilegt brot af henni. gun@frettabladid.is Ungmennafélag Íslands 100 ára: SöGuSýNiNG Í LiSTaSaFNi KópaVOGS stiklað á stóru í sögu uMFÍ í máli, munum og myndum sýningarstjórinn „Við lögðum þá hugmynd til grundvallar í byrjun að velja um 100 atriði úr sögunni,“ segir Björn G. Björnsson hjá List og sögu sem hér er með tuskuna á lofti að pússa sýningargripi. FRéTTaBLaðið/RóSa Afmæli Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Árni Guðjónsson, Sunnubraut 17, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 3. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Rafnhildur Katrín Árnadóttir. Fyrirtæki okkar verður lokað í dag, fimmtudaginn 5. júlí, vegna útfarar Sverris Norland MOSAIK jean CoCteaU fæddist á ÞessUm degi árið 1889 „Listamaður getur ekki útskýrt list sína frekar en blóm getur rætt garðyrkju.“ Franski rithöfundurinn Jean Maurice Eugène Clément Cocteau hélt því alltaf fram að hann væri fyrst og fremst ljóðskáld þrátt fyrir að hann hefði hæfileika á mörgum öðrum sviðum. jón sigUrðsson Sómi Íslands, sverð og skjöldur. jón stefánsson söngstjóri er sextíu og eins árs. Valdimar Örn flygering leikari er fjörutíu og átta ára. gunnar guð- björnsson óperusöngvari er fjörutíu og tveggja ára. eva marie saint, leikkona er áttatíu og þriggja ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.