Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 5. júlí 2007
BRUssel, AP Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
er nú að leggja drög að nýjum aðgerðum til hryðju-
verkavarna, sem munu meðal annars ná til skipulagðrar
skráningar á upplýsingum um flugfarþega í öllum aðild-
arríkjunum.
Franco Frattini, sem fer með dómsmál í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, greindi frá þessu í gær.
Hann sagði að samkvæmt áformunum yrði öllum aðild-
arríkjunum boðið upp á að koma á fót kerfi til að skrá
upplýsingar um flugfarþega alls staðar að úr heiminum,
sem leið ættu um lofthelgi þeirra. Frattini sagði að enn
fremur stæði til að setja lög sem gera refsivert að setja
leiðbeiningar um sprengjugerð á netið.
Frattini sagðist myndu kynna pakka frumvarpa að
nýjum hryðjuverkavörnum fyrir dómsmálaráðherrum
aðildarríkjanna í október. „Við munum finna betri leiðir
til að fæla og koma upp um hryðjuverkamenn,“ tjáði
Frattini fréttamönnum í Brussel. - aa
Franco Frattini „Betri leiðir til að fæla og koma upp um
hryðjuverkamenn.“ fréttaBlaðið/ap
Framkvæmdastjórn ESB hyggur á efldar hryðjuverkavarnir í kjölfar árása:
Evrópsk skrá um flugfarþega
MIRAH sHAH, PAKIsTAN, AP Fimm
pakistanskir hermenn létust og
nokkrir særðust í sjálfmorðsáras
í Pakistan í gær. Bíll hlaðinn
sprengiefnum keyrði inn í
bílalest pakistanska hersins.
Árásin átti sér stað í norðvest-
urhluta landsins, nálægt landa-
mærunum við Afganistan, þar
sem talibanar og liðsmenn al-
Kaída hryðjuverkasamtakanna
halda til. Embættismenn í
Pakistan telja að liðsmenn
annarra hvorra samtakanna hafi
staðið fyrir sjálfsmorðsárásinni.
Pakistan, sem er samherji
Bandaríkjamanna í stríðinu gegn
hryðjuverkum, hefur haldið úti
níutíu þúsund manna herliði við
landamæri Afganistans til að
berjast gegn talibönum og al-
Kaída. - ifv
Bílasprengja í Pakistan:
Fimm létust í
sjálfsmorðsárás
MeNNTUN Grunnskóli Seltjarnar-
ness verður leiðtogaskóli í
umferðarfræðslu allra grunn-
skóla á höfuðborgarsvæðinu.
Samningur um þetta var
undirritaður á milli Umferðar-
stofu og skólans að viðstöddum
Kristjáni Möller samgönguráð-
herra.
„Það er enn þá mikilvægara
núna en oft áður að minna fólk á
umferðaröryggi,“ sagði Kristj-
án. Verkefnið er liður í umferð-
aröryggisáætlun stjórnvalda.
„Þetta er eitt af því allra
mikilvægasta sem við erum að
gera í umferðarmenningunni,“
sagði Karl Ragnarsson forstjóri
Umferðarstofu við undirritun
samningsins. - aví
Átak í umferðarfræðslu:
Leiðtogaskóli á
Seltjarnarnesi
SkriFað undir Samningur var undirrit-
aður utandyra við Norðurströnd.
fréttaBlaðið/Hörður
karlmaður í haldi
talsvert af amfetamíni og kannabis-
efnum fannst við húsleit lögreglu í
nótt. Karlmaður er í haldi lögreglu
vegna málsins og hefur hann áður
gerst brotlegur um fíkniefnasölu.
lögregluFréttir
Hættuleg umhverfi sínu
ökumanni, sem grunaður er um akst-
ur undir áhrifum fíkniefna, var sleppt
eftir yfirheyrslur í nótt. farþegar í bíln-
um voru látnir gista fangageymslur
þar sem þeir voru taldir svo vankað-
ir vegna fíkniefnaneyslu að þeir gætu
verið sjálfum sér og öðrum hættulegir.