Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 5. júlí 2007
Á hverju vori senda margir
ilmvatnsframleiðendur frá sér
sérútgáfur í takmörkuðu upplagi
sem er ætlað að fanga stemningu
sumarsins.
Flöskurnar eru bæði fallegar á að líta
og beri einstaklingur rétta ilminn
fyrir sig, getur útkoman stundum
haft skemmtilegar félagslegar
afleiðingar því mannskepnan
stjórnast víst meira af lyktar-
skyni en við áttum okkur á.
mhg@frettabladid.is
Heitustu ilmpör
sumarsins
Klassaparið Burberry
Summer 2007
sameinar fágun og
léttleika sem er
nánast ómót-
stæðileg blanda.
Kvenilmurinn
inniheldur meðal
annars sítrónu,
græn epli, fresíur,
hvítt musk og rósir
en karlmannsilmurinn
inniheldur til dæmis
ananas, hvítt musk og
sítrus.
Í apríl sendi Giorgio Armani þetta par
á markaðinn í stílhreinum og falleg-
um umbúðum. Ilmirnir minna báðir
á heitar sumarnætur og bera með sér
ákveðinn kynþokka. Í kvenilminum er
samsetning af meðal annars perum,
jasmínu, sandalviði, hvítu muski og
amber en karlmannsilmurinn er til
dæmis ferskt amber, sítrus, saffran
og musk. Sem sagt kryddaðir og
seiðandi ilmir.
Issey Miyake sendir sumarilmina
frá sér í sérlega fallegum umbúð-
um þetta árið. Það eitt að horfa
á flöskurnar sendir fólk í ferska
sumarstemningu og ilmirnir eru
eftir því, en þeir eru samsettir
úr sömu jurtum og sumarilm-
irnir frá Issey Miyake í fyrra.
Ferskir og hreinir.
Lacoste sendir frá sér Hot play
fyrir herrana og Touch of spring
fyrir dömurnar þetta árið. Aðalá-
herslurnar eru á topp- og hjartatón-
ana í báðum ilmunum til að kalla
fram orku og ferskleika. Hentar vel
ungu og hressu fólki í blóma lífsins.
Jean Paul Gaultier stendur allt-
af fyrir sínu en aðdáendur
ilma hans skipta eflaust
hundruðum þúsunda.
Classic og Le Male sumar-
ilmirnir eru stolt tískuhúss-
ins, en á hverju ári skipta
þeir um föt og ilmurinn
breytist örlítið frá ári til árs.
Innblásturinn 2007 var sóttur
í munstur kínverskra flugdreka
en Gaultier hefur einnig nýtt
það í fatahönnun sinni.
Fölsk augnhár
AuGnHárAHönnun er vInSæl Í
TóKýó.
á Shu uemura-augnhárabarnum í
Omotesando-hverfinu í Tókýó gefur
að líta ýmsar kynjamyndir. Þangað
má koma til að fá sérhönnuð fölsk
augnhár, allt frá venjulegum svört-
um til fjaðurskreyttra. Í allt eru þar
22 mismunandi gerðir augnhára sem
kosta frá 13 upp í 43 dali.
Tilkomumikil augnhár sem minna helst
á fjaðraskúf.
SÚKKULAÐIVAX HAFRAVAX SÚKKULAÐISTRIMLAR FYRIR ANDLIT OG LÍKAMA
ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta
ÚTSÖLUSTAÐIR: Fjarðakaup og Lyfjaval
Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofni
og einnig vaxstrimlar
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi