Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 55
FIMMTUDAGUR 5. júlí 2007 43
Einmitt þegar ég hélt að White
Stripes væru búin að „missa það“
snúa þau tvíefld til baka og stinga
puttanum beint framan í okkur efa-
semdamennina. En hvað átti maður
annars að halda? Get Behind Me
Satan var nær sálarlaus með öllu
og virkaði líkt og herra Jack White
væri eingöngu að þessu peninganna
vegna. Ekki skánaði dæmið þegar
The Raconteurs birtist í fyrra. „Vá“
hugsuðu væntanlega margir með sér
þá. „Leiðinlegur framapotagrautur“
var hins vegar það sem flaug í gegn-
um huga minn. Og ég þori alveg að
viðurkenna mistök mín núna, ég
gafst upp á Jack White alltof fljótt.
Icky Thump er samt kannski ekki
besta verk White Stripes til þessa en
svífur á köflum léttilega inn í flokk-
inn með A+ efni sveitarinnar.
Það fyrsta sem maður tekur eftir
á plötunni er að spilagleðin er aug-
ljóslega aftur höfð í fyrirrúmi og á
þeim stundum er nefið hans Jack
hvað næmast fyrir vænum melód-
íum. Önnur gleði, sköpunargleð-
in, blómstrar einnig á ný. Tilrauna-
mennskan fer samt aldrei í gönur
sem er ein mesta snilldin við The
White Stripes. Einfalt afturhvarfs-
rokk sem hefur verið kryddað þannig
að það helst nýtt og brakandi ferskt.
Besta dæmið er lagið Conquest.
Gamalt Patti Page lag sem var upp-
runalega samið af Corkey Robbin.
Stórkostlegur rokkslagari með líf-
legum slurk af mexíkósku trompeti
sem tónar á fáránlega flottan hátt
við nagandi gítarriff Jack.
Hráustu gítartónarnir eins og í
fyrrnefndu lagi, 300 M.P.H. Torrent-
ial Outpour Blues, Catch Hell Blues
og eiginlega flestum lögum plötunn-
ar eru líka þeim hæfileikum gædd-
ir að fá mömmur til þess að öskra
á mann að lækka í í tónlistinni.
Yfirleitt þegar slíkt gerist eru menn
á réttri braut.
Mikið lifandi skelfingar ósköp
er ég feginn að ég hafði rangt fyrir
mér varðandi Jack White... og auð-
vitað Meg líka. Icky Thump er með
bestu plötum ársins og sannar enn
og aftur hvað einfaldleikinn getur
gefið mikið af sér.
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Velkomin aftur
tónliSt
icky thump
The White Stripes
HHHH
Hrá, grípandi og sveitt. Já, dúettinn
The White Stripes er aftur búinn að
finna fjölina sína.
Nicole Richie ætlar að fjölga
mannkyninu, samkvæmt vef-
ritinu TMZ.com, sem greindi frá
því á þriðjudag að stjarnan væri
ólétt en þrálátur
orðrómur þess
efnis hefur
vaðið uppi
í slúður-
pressunni
að und-
anförnu.
Richie
hefur átt í
sambandi við
Joel Madden,
söngvara Good
Charlotte, í
um hálft ár.
Samkvæmt
InTouch
Magazine
ætla þau
að ganga í það heilaga í sumar.
Richie á að mæta fyrir rétt 11. júlí
vegna gruns um ölvunarakstur í
desember síðastliðnum. Ef stjarn-
an verður sakfelld þarf hún að
verja minnst fimm dögum í fang-
elsi, ólétt eða ekki ólétt.
Miðað við fréttaflutn-
ing slúðurblaðanna
vestra er Richie ekki
ein um að huga að
fjölgun. Christina
Aguilera mun
líka eiga von á
barni með eig-
inmanni sínum,
Jordan Brat-
man. Heimild-
ir New York Post
herma að söngkonan
sé komin um þrjá mán-
uði á leið og byrjuð að
færa vinum og vanda-
mönnum gleðitíðindin.
Talsmaður Aguilera
sagðist ekki stað-
festa neitt en hefur
ekki heldur neitað
orðrómnum.
Nick Lachey, fyrrverandi hr. Jess-
ica Simpson, er ekki sáttur við
myndir sem ljósmyndarar náðu
af honum og núverandi kærustu
hans, Vanessu Minnillo, í fríi í
Mexíkó. Myndum af parinu þar
sem þau liggja nakin
í sólbaði og láta
vel hvort að öðru í
heitum potti hefur
verið dreift á net-
inu. Lachey
segir fáránlegt
að myndirn-
ar hafi vakið
svo mikið
umtal. „Það er
ekki eins og
ég hafi verið
gripinn með
mexíkóskri
hóru,“ sagði
hann.
Brad Pitt verður í aðalhlutverki í
endurgerð á myndinni Bullitt frá
árinu 1968. Þar fetar hann í fót-
spor Steve McQueen og tekst á
við hlutverk leynilögreglumanns-
ins Franks Bullitt. Þeir sem til
þekkja segja Brad eiga margt sam-
eiginlegt með McQueen – hann
sé til dæmis hrifinn af mótorhjól-
um og hraðskreiðum bílum. Kvik-
myndin er einmitt þekkt fyrir að
innihalda einn besta bílaeltingar-
leik kvikmyndasögunnar, þar sem
Mustang Bullitts brunar um hlykkj-
óttar götur San
Francisco-borg-
ar. Brad var fyrst
orðaður við hlut-
verkið árið 2003,
en það er ekki
fyrr en nú
sem ákveð-
ið hefur
verið að
framleiða
myndina.
fréttir Af fólki
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
82
17
06
/2
00
7
í fullum gangi
Komdu og gerðu góð kaup!
30til70%
afsláttur af völdum vörum