Fréttablaðið - 18.07.2007, Side 1
Fjögurra manna áhöfn björg-
unarþyrlunnar TF-SIFJAR komst
út úr vélinni áður en henni hvolfdi
eftir nauðlendingu við Straums-
vík. Eitt af fjórum utanáliggjandi
flotholtum, sem áttu að halda vél-
inni uppréttri, sprakk með þeim
afleiðingum að þyrlunni hvolfdi.
Georg Lárusson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, segir það guðs
mildi að áhöfnin komst út áður en
þyrlan snerist. Mestu hafi þó skipt
að gott veður var á slysstað, og
björgunarskipið Einar Sigurjóns-
son var skammt undan vegna sam-
eiginlegrar æfingar.
Georg segir ljóst að reynsla og
þjálfun áhafnarinnar hafi orðið til
þess að hún brást við aðstæðum
eins faglega og í mannlegu valdi
stóð. Sigurður Heiðar Wiium, flug-
stjóri á TF-SIF, segir að áhöfninni
allri líði vel.
Björgunarsveitarmenn í Hafn-
arfirði telja mildi að æfingar voru
ekki hafnar af fullum krafti þegar
óhappið varð. Þrír bátar með
þrettán mönnum voru á staðnum
en þeir þurftu ekki að bregðast við
því þyrlan lenti mjúklega í sjónum
og spaðarnir höfðu stöðvast áður
en hún valt.
Arnar Freyr Birkisson hefur stundað siglingar
frá því hann var tíu ára.„Þetta er mjög k
Arnar Freyr býst við að stu daldri E
Gervihnattabúnaður
í vinnuvélum
TF-SIF átti að haldast upprétt
999
KR.
Norah Jones
Not Too Late
Flugustangir
26
79
/
IG
06
Þú færð Vangen
í næstu
sportvöruverslun
Hefur siglt frá
tíu ára aldri
vinnuvélarMIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007
Stjórnvöld í Rússlandi
sögðust í gær ætla að svara
bresku ríkisstjórninni á ákveðinn
og viðeigandi hátt eftir að
stjórnvöld á Englandi ákváðu að
reka fjóra rússneska diplómata
úr landi á mánudag. Ástæðan er
sú að stjórnvöld í Rússlandi hafa
neitað að framselja Andrei
Lugovoi, meintan morðingja
Alexanders Litvinenkos sem var
drepinn í London í fyrra, til
Bretlands.
Búist var við því að stjórnvöld í
Moskvu myndu tilkynna það í
gær hvernig þau ætluðu að svara
Bretum. Ekki er víst að stjórn-
völd í Moskvu svari með því að
reka breska diplómata úr landi.
Ætla að svara á
viðeigandi hátt
Hafinn er undirbúningur
að því að breyta Sparisjóði
Reykjavíkur og nágrennis í
hlutafélag. Í september er svo
stefnt að því að skrá SPRON í
OMX-kauphöllina hér.
Breytingin er háð samþykki
stofnfjáreigenda, sem funda í lok
mánaðarins.
Samkvæmt mati Capacents er
sjóðurinn 60 milljarða króna virði.
Ætlað er að stofnfjáreigendur fari
með 85 prósenta eignarhlut, en 15
prósent verði í eigu sjálfseignar-
félags sem vinna á að framgangi
sjóðsins og má það veita fjármun-
um í menningar- og líknarmál.
SPRON breytt
í hlutafélag
Með nýjum GPS-farsímum
geta foreldrar fylgst með staðsetn-
ingu barna sinna. Þetta segir Jón
Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri
íslenska fyrirtækisins Trackwell.
Fyrirtækið hefur þróað eftirlits-
forrit frá árinu 1996.
„Upp á síðkastið hefur þessi
GPS-tækni orðið vinsæl og nú eru
komnir símar sem eru bæði far-
símar og GPS-tæki,“ segir Jón Ingi.
GPS-tæknin nýtir fjölda gervi-
hnatta á sporbaug um jörðina til að
finna staðsetningu þeirra hluta eða
fólks sem fylgst er með.
Trackwell hefur hannað hugbún-
að sem býður fólki upp á að fylgj-
ast með öðrum með aðstoð farsím-
ans síns. Fyrirtækið hefur selt
kerfið til símafyrirtækis í Ástralíu,
en að sögn Jóns Inga hefur tæknin
ekki náð fótfestu hingað til. Með
tilkomu GPS-farsíma verði tækni-
legi hlutinn auðveldari.
„Þetta hefur verið rætt hjá
aðstandendum Alzheimers-sjúk-
linga og fólks með Downs-heil-
kenni. En einhver þarf að borga
þetta,“ segir Jón Ingi.
„Við ræddum þetta og mér finnst
voða spennandi að skoða þetta,“
segir María Th. Jónsdóttir, formað-
ur Alzheimerfélagsins.
„Ef fólk með Alzheimer getur
vanist því að ganga með öryggis-
tæki eru meiri líkur á að það geti
haldið því áfram þegar það verður
mjög gleymið,“ segir María.
Með forritinu MyBuddy Tracker
býður Trackwell upp á að ungling-
ar geti fundið staðsetningu vina
sinna og gert þeim þar með auð-
veldara að hittast og eiga sam-
skipti.
Forritið MyChild Tracker gerir
foreldrum kleift að fylgjast með
ferðum barnsins. „Þú getur sett inn
að klukkan níu eigi barnið þitt að
vera komið í skólann. Ef það vantar
í skólann færðu send smáskilaboð.
Og ef barnið fer úr hverfinu færðu
skilaboð.“
Foreldrar þurfa að samþykkja ef
barn vill leyfa öðrum en þeim að
fylgjast með sér. „En ef barn slekk-
ur á kerfinu eru foreldrarnir látnir
vita,“ segir Jón Ingi.
Foreldrar geti fylgst
með börnum sínum
Fyrirtækið Trackwell vill nýta GPS-forrit í farsímum á næstunni. Aðstandendur
geta þannig fylgst með Alzheimers-sjúklingum. Foreldrar geta fylgst með ferð-
um barna og unglinga og unglingar fundið út staðsetningu félaga sinna.