Fréttablaðið - 18.07.2007, Page 11
KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
8
4
5
KIA CARENS
Nýi sjö manna fjölnotabíllinn frá Kia er kominn
og sameinar glæsilegt útlit, sveigjanlegt rými og
frábæra aksturseiginleika.
Ríkulegur staðalbúnaður:
• ABS og EBD hemlakerfi
• ESP stöðugleikastýring
• Álfelgur
• Bakkskynjari
• Loftkæling
• 3ja punkta öryggisbelti fyrir sjö farþega
• Hraðastillir
• Aksturstölva
• Ræsitengd þjófavörn
... og margt fleira
2.850.000 kr.
DVD bílabíó og dráttarbeisli innifalið í verði
FRÁBÆR KAUP!
Sjö manna Kia Carens CRDI dísil, sjálfskiptur, 2,0 l., 140 hö.
BÍLABÍÓ
Nú bjóðum við KIA Carens með
DVD bílabíói og þráðlausum
heyrnartólum, ásamt 5 frábærum
DVD diskum frá Senu.
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU.
GJAFABRÉF
Verð frá kr.: 23.500
Aðrir söluaðilar:
Fyrir
heilsuna
Safapressa
Fimm erlendar þyrlur og fylgivél
þeirra voru kyrrsettar á Ísafjarðarflugvelli í
nokkrar klukkustundir á mánudag. Þyrlurnar
komu til Ísafjarðar frá Höfn í Hornafirði á leið
sinni til Bandaríkjanna.
Að sögn Valdísar Ástu Aðalsteinsdóttur, upplýs-
ingafulltrúa Flugmálastjórnar, hefur Ísafjarðar-
flugvöllur aldrei verið skilgreindur sem milli-
landaflugvöllur. Vegna þess má ekki fljúga þaðan
til annarra landa nema í undantekningartilvikum
og með sérstökum leyfum. Þá þarf fyrsti viðkomu-
staður að vera einn fjögurra millilandaflugvalla á
Íslandi, en þeir eru í Reykjavík, á Akureyri, á
Egilsstöðum og í Keflavík.
Þyrlurnar hafa ekki flugdrægni til Grænlands,
sem átti að vera næsti viðkomustaður þeirra. Af
flugöryggisástæðum fengu þær því sérstakt leyfi
til að halda för sinni áfram. „Þetta er einstakt leyfi
sem er bundið við þessar vélar og þetta flug. Það
felur ekki í sér að þær fái leyfi til að fara sömu leið
til baka,“ segir Valdís.
Höfðu ekki tilskilin leyfi
Hollenskur skipasmiður
hefur smíðað víkingaskip úr
endurunnum íspinnum einum
saman. Verkið tók fjögur ár.
Fimm þúsund skólabörn hjálpuðu
til og í haust hyggst hann sigla
yfir Atlantshafið á fleyinu.
Skipið, sem smiðurinn kallar
„Thor“, er í fullri stærð og hefur
þegar farið sína jómfrúarferð á
stöðuvatni. „Þetta er ekki aðeins
skip úr íspinnum, heldur einnig
stærsti endurunni hlutur heims,“
sagði smiðurinn Robert McDon-
ald, sem slasaðist alvarlega níu
ára gamall og missti foreldra sína
og níu systkin í gassprengingu.
„Ég gerði þetta til að sýna
krökkunum að allt er mögulegt,“
sagði McDonald. Þetta kom fram
á vefvarpsstöðinni ITV.com.
Siglir yfir haf
á íspinnaskipi
Sögufrægt hús, sem
áður hýsti Kaupfélag Eyfirðinga
var tekið í notkun á ný í síðustu
viku. Húsið er hundrað ára
gamalt og stendur við Kaup-
vangsstræti 6 á Akureyri.
Engin starfsemi hefur verið í
húsinu undanfarna þrjá áratugi
en það er í eigu KEA. Í febrúar
var gerður samningur milli KEA
og Friðriks V um uppbyggingu og
leigu á húsnæðinu næstu tíu árin.
Húsið er um 460 fermetrar. Á
efri hæð þess er veitingahúsið
sjálft staðsett og hefur það þegar
verið tekið í notkun. Á neðri hæð
verður sælkeraverslun og
hádegisverðarstaður.
Veitingahús í
sögufrægu húsi
Tveimur listaverkum
var stolið af myndlistarsýningu í
Edinborgarhúsinu á Ísafirði á
dögunum. Listaverkin, púðar
skreyttir með myndum af
stæltum karlmönnum að takast á,
eru hluti af sýningunni Maður
með mönnum.
Jón Sigurpálsson, einn forsvars-
manna Myndlistarfélags Ísafjarð-
ar er sannfærður um að sá sem
átti í hlut sé viljugur að skila
púðunum. Hann segir í samtali við
Bæjarins besta að þau í Myndlist-
arfélaginu lofi að vera blíð og góð
og skilningsrík við þann sem
hreifst svona af listaverkinu.
Púðum stolið
af sýningu