Fréttablaðið - 18.07.2007, Síða 13
Stjórn Verkalýðsfé-
lagins Vöku á
Siglufirði lýsir yfir
áhyggjum sínum
vegna fyrirhugaðra
uppsagna Ramma hf.
á 31 starfsmanni.
Með því sé öll
landvinnsla fyrir-
tækisins á Siglufirði lögð niður.
Í ályktun sem Vaka gerði er
skorað á stjórnvöld að skýra
byggðastefnu sína. Þar segir: „Sé
stefnan áfram sú að leggjast ekki
gegn hnignun byggðar í landinu, þá
eiga stjórnvöld að þora að gangast
við þeirri stefnu og hefja markviss-
ar aðgerðir til þess að leggja byggð-
arlög niður og skapa jafnframt
núverandi íbúum, lífsskilyrði í
nýjum heimkynnum.“
Stjórnvöld skýri
byggðastefnuna
Hugmyndum um
smíði 3.800 fermetra verslunar-
miðstöðvar á horni Glerárgötu og
Tryggvabrautar á Akureyri hefur
verið hafnað. Það var fasteignafé-
lagið Smáragarður sem kom fram
með hugmyndina en það ásamt
fjárfestingafélag KEA á lóðina.
Eftir því sem fram kemur á
fréttavefnum nordurlandid.is
segir Leifur Þorsteinsson,
verkefnastjóri byggingareftirlits
Akureyrarbæjar, hugmyndina
ekki hafa fallið að deiliskipulags-
hugmyndum bæjarins en hann
vildi þó ekki tjá sig nánar um það
að svo stöddu hvað það væri sem
bærinn setti fyrir sig.
Tillaga féll ekki
að deiliskipulagi
Jónas H. Haralz,
hagfræðingur og fyrrverandi
bankastjóri, segir íslensk stjórn-
völd ekki hafa
rekið nógu stað-
fasta jafnvægis-
stefnu í hag-
stjórn landsins
og án hennar
náist ekki sá
stöðugleiki sem
sé forsenda
heilbrigðs hag-
vaxtar. Stöðug-
leikinn sé jafn-
framt forsenda fyrir því að eiga
þess kost að taka upp evruna.
„Þessi ágæta tilraun með sjálf-
stæðan seðlabanka og fljótandi
gengi sem við tókum upp var skyn-
samleg og rétt – en það hefur
gengið mjög illa að framkvæma
hana,“ segir Jónas í samtali við
Fréttablaðið í tilefni af útkomu
bókarinnar „Ný staða Íslands í
utanríkismálum - Tengsl við önnur
Evrópulönd“, sem Alþjóðamála-
stofnun Háskóla Íslands stendur
að, en Jónas á kafla í bókinni þar
sem hann rekur þróun íslenskra
gengismála á fyrri hluta 20. aldar.
Ástæður þess að þessi tilraun
hafi ekki gengið betur en raun ber
vitni rekur Jónas að hluta til
aðstæðna „sem við ekki ráðum við
og að nokkru leyti er það af
aðstæðum sem við ráðum við, það
er að segja við höfum ekki rekið
nógu staðfasta jafnvægisstefnu.“
Spurður hvort hann telji nýrra
áherslna í þessu efni að vænta af
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar segist Jónas „ekki
hafa heyrt þá tóna“ frá henni sem
hann vildi heyra. „Það kom þarna
mjög góð greinargerð frá Sam-
fylkingunni fyrir kosningar sem
Jón Sigurðsson ritstýrði. Það var
mjög að mínu skapi,“ segir hann.
„En síðan hef ég ekki heyrt, hvorki
frá Samfylkingunni né ríkisstjórn-
inni, neitt í þeim dúr sem ég tel að
maður þyrfti að fá að heyra.“
Skortur á jafnvægi í hagstjórn
Íbúar í Sandgerði
kvarta mikið undan ólykt í
bænum. Þetta kom fram á fundi
bæjarráðs Sandgerðis á dögun-
um. Aðallega er kvartað undan
vondri lykt á hafnarsvæði en
einnig víðar í bænum. Frá þessu
er greint á vef Víkurfrétta.
Bæjarráð lýsti á fundinum yfir
áhyggjum af lykt og umgengni í
kringum fyrirtæki að Hafnargötu
4 í bænum. Er heilbrigðiseftirlitið
hvatt til aðgerða í málunum og að
koma í veg fyrir dreifingu á slógi
í heiðarlönd í nágrenni Flugstöð-
var Leifs Eiríkssonar og í
umhverfi bæjarfélagsins.
Vond lykt í
Sandgerði
Tilkynnt var um
innbrot í Laugalækjaskóla á
fjórða tímanum í fyrrinótt. Þar
hafði gluggi verið spenntur upp
og tölvuturni stolið.
Nokkru síðar, um fimmleytið,
var tilkynnt um innbrot í vinnu-
skúra á Dalbraut, sem er í næsta
nágrenni. Ekki liggur fyrir hverju
var stolið úr skúrunum, en þar
fannst blóðslóð á vettvangi.
Að sögn varðstjóra lögreglunn-
ar á höfuðborgarsvæðinu er talið
líklegt að innbrotin séu tengd, þar
sem svo stutt var á milli staðanna
tveggja. Ekki hefur tekist að hafa
hendur í hári þjófsins, en málið er
í rannsókn.
Blóðslóð fannst
í vinnuskúrum
Nýr, fallegri og miklu betri Opel.
Glænýr Astra Turbo
2.290.000 KR. OPEL ASTRA TURBO – 17” ÁLFELGUR, 6 GÍRA, 180 HESTAR
35.387* KR. Á MÁNUÐI. ENGIN ÚTBORGUN
Nýi Opel Astra Turbo er fallegasti bíllinn á götunni. Astra eru alltaf léttir
og snöggir en með Turbo eykst krafturinn til muna. Stórglæsileg hönnun
helst í hendur við kraftmikla vél og magnaða aksturseiginleika. Stöðugleiki
á veginum er frábær og útvortis hönnun minnkar vindmótstöðu.
Niðurstaðan er kraftmikill og lifandi akstur.
Hlaðinn aukabúnaði
www.opel.is