Fréttablaðið - 18.07.2007, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 18.07.2007, Qupperneq 16
fréttir og fróðleikur Samskipti Rússlands og Bretlands hafa ekki verið eins slæm síðan í kalda stríðinu, eftir að breska ríkisstjórnin tók ákvörðun um að reka fjóra rússneska diplómata úr landi á mánu- dag. Rússar sögðust í gær myndu svara Bretum en sögðu ekki hvernig. Allir diplómatarnir fjórir sem voru reknir frá Englandi starfa hjá samtökum sem tóku við hlut- verki leyniþjónustunnar KGB. Talið er að þetta bendi til þess að bresk yfirvöld gruni að rússneska leyniþjónustan hafi komið nærri morðinu á Litvinenko. Eins og utanríkisráðherra Englands sagði í ræðu á breska þinginu á mánu- dag þá er ljóst að hverjum aðgerð- ir bresku ríkisstjórnarinnar bein- ast. En hann útskýrði orð sín ekki frekar. Ríkisstjórnin í Kreml sagði í gær að hún ætlaði að svara bresku stjórninni á „ákveðinn og viðeig- andi hátt“ en sagði ekki hvað hún hygðist gera. Fréttaritari breska blaðsins The Guardian í Moskvu, Luke Harding, sagði í gær að svar Pútíns yrði óvænt og andstyggi- legt, og ekki endilega það að vísa breskum diplómötum úr landi. Hann sagði að Pútín gæti hugsan- lega vísað breska sendiherranum í Rússlandi, Anthony Brenton, úr landi á næstunni. „Samskipti þjóð- anna eiga eftir að versna til muna á næstu vikum,“ segir Harding. Bretar hafa ekki rekið rússneska diplómata úr landi síðan 1996, sem var svar þeirra við því að yfirvöld í Rússlandi ráku níu breska dipl- ómata úr landi fyrir meintar njósn- ir. James Nixey, sérfræðingur í málefnum Rússlands hjá Chatham House hugmyndaveitunni, segir hins vegar að sambandið á milli þjóðanna sé verra en það var þá því svo margir neikvæðir þættir spili inn í núna. Samskipti Rússa og Vesturlanda hafa versnað á margvíslegan hátt á liðnum mánuðum og nægir að minnast á að Rússar hafa hótað því að koma fyrir loftskeytum við landamæri Póllands ef Banda- ríkjastjórn lætur verða af því að koma upp eldflaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu. Upphafið að þessari deilu Rúss- lands og Bretlands er andlát fyrr- verandi starfsmanns rússnesku leyniþjónustunnar FSB – sem var búin til þegar sovéska leyniþjón- ustan KGB var lögð niður – Alex- anders Litvinenko í London í nóv- ember í fyrra. Bresk yfirvöld komust að því í desember að Lit- vinenko hefði verið drepinn með geislavirku efni sem heitir pólon 210. Rannsókn breskra yfirvalda beindist að fyrrverandi KGB- manni, Andrei Lugovoi að nafni, sem átti fund með Litvinenko á hóteli í borginni þegar eitrað var fyrir honum með því að láta pólon 210 í teið hans. Litvinenko var fyrrverandi FSB- maður sem flúði frá Rússlandi árið 2000. Rússnesk yfirvöld höfðu handtekið hann eftir að hann hafði sagt frá því að þau ætluðu að drepa rússneska auðkýfinginn Boris Ber- ezovsky, sem er svarinn fjandmað- ur Pútíns Rússlandsforseta. Ber- ezovsky hefur verið í útlegð í Englandi frá árinu 2000. Litvin- enko vændi auk þess yfirvöld í Rússlandi um að hafa sviðsett sprengjutilræði í fjölbýlishúsum í Moskvu til þess að skella skuldinni á hryðjuverkamenn í Tsjetsjeníu og réttlæta þannig aðgerðir gegn þeim. Litvinenko sagði á dánarbeði að Pútín, sem er fyrrverandi yfir- maður rússnesku leyniþjónustunn- ar FSB, hefði látið eitra fyrir sér. Yfirsaksóknari Rússlands, Yuri Chaika, sagði í desember, að Lug- ovoi yrði ekki framseldur til Eng- lands. Í maí virtust yfirvöld í Rúss- landi geta sætt sig við að skipta á Lugovoi í staðinn fyrir Berezov- sky, sem hefur verið ákærður fyrir peningaþvætti í heimalandi sínu og fyrir að leggja á ráðin um að steypa Pútín af stóli. Bresk yfirvöld hafa neitað að framselja Berezovsky til Rúss- lands á þeim forsendum að hann myndi ekki fá sanngjarna máls- meðferð í landinu. Bretar hafa verið gagnrýndir fyrir tvískinn- ung vegna þessa. Réttarhöldin yfir Berezovsky hófust að honum fjar- stöddum í Rússlandi í síðustu viku. Hinn 9. júlí neituðu yfirvöld í Rúss- landi svo endanlega að framselja Lugovoi á þeim forsendum að það bryti gegn stjórnarskrá landsins. Utanríkisráðherra Englands, David Miliband, gaf það út í kjöl- farið að breska ríkisstjórnin hygð- ist refsa Rússum fyrir það. Mili- band tilkynnti svo á mánudag að fjórum rússneskum diplómötum yrði vísað úr landi, sem er hugsan- lega upphafið að köldu stríði á milli þjóðanna tveggja. Kalt stríð milli Rússa og Breta Heldur skrá yfir allar fasteignir landsins Eftirspurn eftir viðskiptaflugi

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.