Fréttablaðið - 18.07.2007, Page 21
Arnar Freyr Birkisson hefur stundað siglingar
frá því hann var tíu ára.
„Þetta er mjög skemmtilegt sport. Sérstaklega þegar
vindurinn er mikill og báturinn fer hratt. Þá fer adren-
alínið af stað,“ segir Arnar Freyr Birkisson átján ára
Akureyringur sem siglir og kennir á seglbáta.
„Ég er búinn að stunda þetta sport síðan ég var átta
ára svo það eru komin tíu ár. Pabbi kenndi þetta á
sínum tíma og þegar hann spurði hvort ég vildi ekki
prófa ákvað ég að slá til,“ segir Arnar Freyr sem
stundar engar aðrar íþóttir þar sem sjósportið tekur
sinn tíma. „Ég byrjaði á námskeiðum hér hjá siglinga-
félaginu Nökkva og sigldi þá litlum skútum. Smám
saman þróaðist þetta yfir í stærri báta,“ segir hann en
Arnar Freyr býst við að stunda bátasportið fram eftir
aldri. „Ef maður byrjar í þessu er maður kominn með
bakteríuna,“ segir hann brosandi.
Arnari Frey hefur gengið vel á mótum en hann var í
fyrsta sæti á Eimskipsmótinu sem haldið var í Hrísey
í sumar og aðspurður segist hann stefna á meistara-
titla í sportinu. „Ég mæli með þessu sporti fyrir alla,
bæði stráka og stelpur á öllum aldri. Að sjálfsögðu
felst ákveðinn peningur í þessu en þetta sport er ódýrt
miðað við margt annað. Peningurinn felst aðallega í
fötunum sem þú þarft að kaupa en svo borgarðu gjald
til að vera í klúbbnum og getur þá notað báta klúbbs-
ins. Við erum aðallega að sigla á sumrin og bíðum allt-
af spennt eftir vorinu til að geta byrjað.“
Siglingar eru fyrir alla
Sundbolir & bikiní
stærðir 38 - 52