Fréttablaðið - 18.07.2007, Side 35
Emilía Björg Óskarsdóttir hefur
ákveðið að segja skilið við Nylon-
flokkinn eftir þriggja ára sam-
starf. Brotthvarf Emilíu var
ákveðið fyrir nokkru en var haldið
leyndu af tillitsemi við fyrirætlað
brúðkaup hennar nú um helgina.
Fréttablaðið hafði meðal annars
samband við söngkonuna fyrir
nokkrum vikum en þá neitaði hún
þessu staðfastlega. Einar Bárðar-
son, umboðsmaður sveitarinnar,
upplýsti hins vegar að þetta hefði
verið frágengið þá en ákveðið
hefði verið að láta ákvörðunina
ekki skyggja á sjálfan brúðkaups-
daginn.
Til stendur að finna staðgengil
fyrir Emilíu og er ráðgert að
áheyrnarprufur hefjist í ágúst. Þá
hefur verið samið við Saga Film
um gerð sjónvarpsþátta um leitina
og hvernig nýjum meðlimi reiðir
af í hinni sívinsælu stúlknasveit.
Verða þættirnir sýndir á Stöð 2 og
Sirkus.
Emilía hætt í Nylon
Hljómsveitin Steed Lord er í opnu-
viðtali í nýjasta tölublaði tímarits-
ins Missbehave í New York. Reynd-
ar koma fleiri Íslendingar við sögu
í blaðinu því þar er einnig að finna
umfjöllun um Björk Guðmunds-
dóttur og „tískuleyndarmál“ henn-
ar.
Missbehave er nýtt tímarit sem
fjallar bæði um tísku og tónlist, en
leikkonan í American Beauty,
Mena Suvari, prýðir forsíðu þessa
nýjasta tölublaðs sem er það fjórða
í röðinni. Það var Colby Katz sem
myndaði meðlimi Steed Lord fyrir
viðtalið, en hún hefur meðal ann-
ars tekið myndir fyrir Vanity Fair,
Time Magazine, Marie Claire og
The New York Times Magazine svo
nokkur séu nefnd. Katz tók mynd-
irnar þegar meðlimir Steed Lord
voru staddir í tónleikaferð í Miami
í Flórída fyrr á árinu.
„Bringing the heat – from Ice-
land“ segir í umfjöllun blaðsins um
sveitina. Þar er þess jafnframt
getið að hljómsveitin eigi sér fáa
sína líka, enda fái hún innblástur
úr jafn ólíkum áttum og frá Prince,
The Diplomats, Janis Joplin og
New Kids on the Block. Svala
Björgvinsdóttir, sem gengur undir
nafninu Kali í bandinu, er sögð
reynsluboltinn í hópnum og tekið
er fram að hún hafi tekið upp lög
frá 7 ára aldri, enda sé hún dóttir
hinnar íslensku stjörnu „Bo Hall-
dorsson“. Þá kemur fram að eftir
að hafa gefið út tvær sólóplötur sé
Svala nú gengin til liðs við Steed
Lord þar sem „hjarta hennar er“.
Blaðamaður er augljóslega hrifinn
því í lok viðtalsins segir að aðdá-
endur Steed Lord geti til allrar
lukku fengið að sjá það sem hann
kallar „tísku- og tónlistarspreng-
ingu“ með eigin augum enda séu
fyrirhugaðir tónleikar í Bandaríkj-
unum, Bretlandi, Ástralíu og
Þýskalandi.
Steed Lord í glans-
tímariti í New York
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is
Opið mánudaga–föstudaga 8–18,
laugardaga 10–16 og sunnudaga 12–16