Fréttablaðið - 18.07.2007, Page 35

Fréttablaðið - 18.07.2007, Page 35
Emilía Björg Óskarsdóttir hefur ákveðið að segja skilið við Nylon- flokkinn eftir þriggja ára sam- starf. Brotthvarf Emilíu var ákveðið fyrir nokkru en var haldið leyndu af tillitsemi við fyrirætlað brúðkaup hennar nú um helgina. Fréttablaðið hafði meðal annars samband við söngkonuna fyrir nokkrum vikum en þá neitaði hún þessu staðfastlega. Einar Bárðar- son, umboðsmaður sveitarinnar, upplýsti hins vegar að þetta hefði verið frágengið þá en ákveðið hefði verið að láta ákvörðunina ekki skyggja á sjálfan brúðkaups- daginn. Til stendur að finna staðgengil fyrir Emilíu og er ráðgert að áheyrnarprufur hefjist í ágúst. Þá hefur verið samið við Saga Film um gerð sjónvarpsþátta um leitina og hvernig nýjum meðlimi reiðir af í hinni sívinsælu stúlknasveit. Verða þættirnir sýndir á Stöð 2 og Sirkus. Emilía hætt í Nylon Hljómsveitin Steed Lord er í opnu- viðtali í nýjasta tölublaði tímarits- ins Missbehave í New York. Reynd- ar koma fleiri Íslendingar við sögu í blaðinu því þar er einnig að finna umfjöllun um Björk Guðmunds- dóttur og „tískuleyndarmál“ henn- ar. Missbehave er nýtt tímarit sem fjallar bæði um tísku og tónlist, en leikkonan í American Beauty, Mena Suvari, prýðir forsíðu þessa nýjasta tölublaðs sem er það fjórða í röðinni. Það var Colby Katz sem myndaði meðlimi Steed Lord fyrir viðtalið, en hún hefur meðal ann- ars tekið myndir fyrir Vanity Fair, Time Magazine, Marie Claire og The New York Times Magazine svo nokkur séu nefnd. Katz tók mynd- irnar þegar meðlimir Steed Lord voru staddir í tónleikaferð í Miami í Flórída fyrr á árinu. „Bringing the heat – from Ice- land“ segir í umfjöllun blaðsins um sveitina. Þar er þess jafnframt getið að hljómsveitin eigi sér fáa sína líka, enda fái hún innblástur úr jafn ólíkum áttum og frá Prince, The Diplomats, Janis Joplin og New Kids on the Block. Svala Björgvinsdóttir, sem gengur undir nafninu Kali í bandinu, er sögð reynsluboltinn í hópnum og tekið er fram að hún hafi tekið upp lög frá 7 ára aldri, enda sé hún dóttir hinnar íslensku stjörnu „Bo Hall- dorsson“. Þá kemur fram að eftir að hafa gefið út tvær sólóplötur sé Svala nú gengin til liðs við Steed Lord þar sem „hjarta hennar er“. Blaðamaður er augljóslega hrifinn því í lok viðtalsins segir að aðdá- endur Steed Lord geti til allrar lukku fengið að sjá það sem hann kallar „tísku- og tónlistarspreng- ingu“ með eigin augum enda séu fyrirhugaðir tónleikar í Bandaríkj- unum, Bretlandi, Ástralíu og Þýskalandi. Steed Lord í glans- tímariti í New York Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is Opið mánudaga–föstudaga 8–18, laugardaga 10–16 og sunnudaga 12–16

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.