Fréttablaðið - 18.07.2007, Page 36

Fréttablaðið - 18.07.2007, Page 36
Fatahönnuðarins fræga, Gianni Versaces, var minnst í Mílanó á sunnudag, en þá voru liðin tíu ár frá því að Versace var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Miami. Vinir og aðdáendur Giannis flykktust í óperuhúsið La Scala til að horfa á ballett til heiðurs hönnuðinum. Eftir sýninguna buðu systkini Giann- is, Donatella og Santo Versace, 500 vinum hans til kvöldverðar í Palazzo Reale. Gisele Bündchen er ekki lengur andlit og líkami undirfatafyrir- tækisins Victoria‘s Secret en hún hefur nóg að gera og er nú andlit nýs ilmvatns frá hönnuðunum Dolce & Gabbana. Á blaðamanna- fundi sem haldinn var í tilefni af útkomu ilmvatnsins var Gisele spurð um nýlega Dior-hátískusýn- ingu þar sem hún gekk fyrst fram á tískupallinn. „Ég hef aldrei í lífinu verið svona stressuð. Það eina sem ég gat sagt og hugsað var: „Getur ein- hver hjálpað mér? Ég vil ekki vera fyrst fram. En þetta var að sjálf- sögðu mjög spennandi,“ sagði Gisele og bætti því við að hún hefði varla náð andanum af spenningi. „Ég bað guð um að hjálpa mér að klára þetta. Sem ég gerði og þurfti svo að setjast niður og horfa á sýn- inguna í hálftíma. Það var ekki bara ég sem var stressuð heldur við allar stelpurnar enda var þetta stórviðburður.“ Gisele gat varla andað fyrir stressi Tónlistarmennirnir KK og Maggi Eiríks verða á faraldsfæti um landið á næstunni til að kynna nýj- ustu plötu sína Langferðalög. Tón- leikaferðin hefst á Borg í Gríms- nesi á fimmtudag og byrja tónleikarnir kl. 20.30. Kvöldið eftir leika þeir félagar í Duushús- um í Keflavík og á laugardag ligg- ur leiðin í Bíóhöllina á Akranesi. Á sunnudagseftirmiðdaginn verða síðan stórir fjölskyldutónleikar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík. Fimmtudaginn 26. júlí liggur leiðin vestur á firði og verða tón- leikar haldnir í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Laugardaginn 28. júlí verða þeir á Græna hattinum á Akureyri og ferðinni lýkur með fjölskyldutónleikum í félagsheim- ilinu Ljósheimum við Sauðárkrók. Ferðast um landið ÚTSALAN Í FULLUM GANGI ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.