Fréttablaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 23
Borgar Ólafsson og Jón Bjarni Hrólfsson rall-
akstursmenn fundu draumabílinn í bílskúr á
Írlandi.
„Okkur langaði í betri bíl og færa okkur upp um
flokk í fyrra. Þá fórum við á stúfana og fundum loks
þennan inni í bílskúr á Írlandi,“ segir Borgar Ólafs-
son, sem er aðstoðarökumaður á N1-rallbílnum þar
sem Jón Bjarni Hrólfsson situr við stýrið.
Bíllinn, sem er Subaru Impreza árgerð 2002, kom
til Íslands síðastliðinn vetur og var sérsmíðaður á
Írlandi. „Fyrrverandi eigandi fékk bílinn í sextugs-
afmælisgjöf frá syni sínum. Karlinn keyrði í þrem-
ur keppnum en fékk síðan kransæðastíflu og var
bannað að keppa,“ segir Borgar.
Bíllinn er sex gíra með þrjú hundruð hestafla vél
og að sögn Borgars var búið að setja í hann veltibúr
á Írlandi og sjóða hann allan upp.
„Við þurftum mjög lítið að breyta honum og erum
búnir að keppa á honum það sem af er sumri,“ segir
Borgar sem segir þó bílinn hafa verið í stanslausri
viðgerð síðastliðnar sex vikur.
„Við fórum út af á 170 kílómetra hraða í síðustu
keppni en nú er bíllinn kominn í lag. Við erum með
þrjá bifvélavirkja með okkur enda fer mesta vinn-
an í viðgerð og viðhald milli keppna,“ segir Borgar
sem segir þá félaga hafa labbað út úr bílnum eftir
veltuna án þess að verða nokkuð meint af. „Ég hef
keyrt í tuttugu ár og aldrei velt áður og þetta var
svona eins og að lenda í rússíbanaferð. Við erum
með svo góðan öryggisbúnað að okkur verður ekki
meint af. Við erum með sex punkta öryggisbelti,
sæti sem eru pikkföst, veltigrind, hálskraga og
hjálma,“ segir Borgar sem mælir með rallinu fyrir
ökuþóra.
„Í rallinu stundum við hraðakstur á öruggan hátt
á lokuðum svæðum og fáum útrás þannig. Þar ber
maður aðeins ábyrgð á sjálfum sér og stofnar ekki
lífi annarra í hættu. Enda þrátt fyrir ofsahraða í
rallinu er ég alltaf á löglegum hraða í umferðinni,“
segir Borgar.
Í ár fara fram sex rallkeppnir og í dag keppa þeir
félagarnir í Skagafjarðarrallinu sem er fjórða rall
ársins. Sjá nánari upplýsingar á www.bikr.is
Veltu á tæplega tvö
hundruð kílómetra hraða
Húsvíkingar fagna í viku
Húsavíkurhátíðin hefst á
sunnudaginn og stendur yfir
í viku.
Húsavíkurhátíðin sameinast
hinum árlegu Mærudögum og
sænsku dögunum sem hafa verið
haldnir síðastliðin tvö ár. Hátíðin
hefst sunnudaginn 23. júlí og
lýkur viku síðar, sunnudaginn
29. júlí.
Markmiðið er dagskrá sem
vísar til menningarsögu svæðis-
ins og að auðga menningartengda
ferðaþjónustu á Húsavík og nán-
asta umhverfi.
Hátíðin á að höfða jafnt til hús-
vískra fjölskyldna nær og fjær
sem og innlendra og erlendra
ferðamanna. Hátíðin sameinar
það besta sem heimamenn hafa
upp á að bjóða og afrakstur sam-
bands sem ræktað hefur verið
við Svíþjóð.
Á dagskrá er meðal annars
loftbelgjaferð yfir Skjálfanda,
fjölbreytt námskeið fyrir börn
og fullorðna, ásamt útimarkaði,
flugeldasýningu og dansleikjum.
Nánari upplýsingar: www.nord-
urthing.is.
Tvinnbíll hefur sigrað í fyrsta
skiptið í kappakstri.
Í fyrra var Toyota fyrstur fram-
leiðenda að skrá tvinnbíl til keppni
í kappakstri. Nú hefur fyrirtækið
einnig orðið fyrst til að sigra í
kappakstri. Nei, það var ekki
Prius heldur Supra HV-R sem
vann Tokashi 24 klukkustunda
kappaksturinn í Japan um síðustu
helgi.
Bíllinn er mjög ólíkur þeim
tvinnbílum sem fjöldaframleiddir
eru í dag. Hann er rétt 1.080 kg,
rúm 700 hestöfl og fjórhjóladrif-
inn, en tvinnkerfið endurnýjar
orku frá öllum fjórum hjólunum.
Ástæðan fyrir góðu gengi tvinn-
bílsins er að þeirri orku sem fæst
úr rafmótornum er hægt að
stjórna og stilla nokkur þúsund
sinnum á sekúndu. Því er hægt að
stjórna orkuflæðinu nákvæmlega
til allra dekkja eins og til þarf á
mjög skilvirkan hátt. Þetta er mun
nákvæmari stjórn er hægt er að ná
á hefðbundnum bensínbílum.
Fyrsti tvinn-sigurinn