Fréttablaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 50
Við verðum að byggja
álver og járnblendi-
og batteríverksmiðju
og virkjanir sem búa
til rafmagn fyrir ál-
verið og járnblendið
og batteríverksmiðj-
una. Þetta verðum við
einfaldlega að gera til
að viðhalda stöðugleika og
forðast yfirvofandi atvinnuleysi.
Stöðugleiki er nauðsynlegur því í
honum felst að stöðugt færri ein-
staklingar eignast stöðugt fleiri
fyrirtæki svo óstöðug samkeppni
hverfur. Stöðugleiki er einnig mik-
ilvægur í stjórnmálum. Það veit ís-
lenska þjóðin, enda hefur hún ekki
þorað að kjósa sér nýja ríkisstjórn
síðan óstöðugleikadraugurinn kvað
niður verðbólgudrauginn.
Og atvinnuleysið. Guð forði
okkur frá því að þurfa ekki á út-
lendingunum að halda, fyrirgefið,
fólki af erlendu bergi, til að vinna
fyrir okkur. Við þyrftum mögu-
lega að byrja að tala um innflytj-
endamál og allir vita að hver sem
segir sína skoðun á þeim, sama
hvað hann segir, verður sjálfkrafa
að rasista og fúlmenni nema hann
vinni hjá Alþjóðahúsinu.
Við þyrftum einnig að hugsa um
hverjum við hleyptum inn í landið
og hlusta á sjálfa innflytjendurna.
Margir þeirra furða sig nefnilega
á því að við tökum opnum örmum
á móti mörgum löndum þeirra sem
hvergi komast annars staðar að
sökum skuggalegrar fortíðar. Við
þyrftum mögulega að fylgja inn-
flytjendunum eftir og sjá til þess
að þeir fengju mannsæmandi laun
og jafnvel menntun. Það getur ekki
verið gott fyrir samfélagið.
Atvinnuleysið hefði líka í för
með sér að tólf ára börn fengju
ekki lengur vinnu í Krónunni og
Bónus. Þunglynd börn og ungl-
ingar myndu neyðast til þess að
fara heim og gera eitthvað annað
en renna skinku gegnum strika-
merkjalesara, eitthvað sem er
orðið jafngildi þess að flaka fisk.
Þau neyddust þá til að sinna ein-
hverjum óþarfa áhugamálum og
eins og alþjóð veit er það gjörsam-
lega gagnslaus iðja á þessum síð-
ustu og hnattvæddu tímum. Það er
enginn peningur í því.
– ódýrari valkostur
Vantar
þig
auka-
pening?
Pósthúsið leitar að duglegu og morgunhressu
fólki til að bera út blöð milli 6 og 7 á
morgnana. Um er að ræða holla og hressandi
útiveru, annars vegar á virkum dögum og hins
vegar um helgar.
Njóttu þess að taka daginn snemma, hreyfðu
þig og fáðu borgað fyrir það.
Allar nánari upplýsingar veitir dreifingardeild
Pósthússins í síma 585 8330. Einnig er hægt
að sækja um á www.posthusid.is
Pósthúsið ehf | Suðurhrauni 1 | 210 Garðabæ | Sími: 585 8300 | posthusid.is
Pósthúsið er ungt og öflugt
dreifingarfyrirtæki á sviði
blaða- og vörudreifingar.
Hjá Pósthúsinu starfa um
sjöhundruð manns að
uppbyggingu á fjölbreyttum
og skemmtilegum vettvangi.
H
im
in
n
o
g
h
af
/
S
ÍA