Fréttablaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 54
„Ég kom eiginlega alveg af fjöllum
þegar ég las þetta í blöðunum um
morguninn, hafði ekki hugmynd
um að ég væri búinn að kaupa þenn-
an þátt,“ segir Pálmi Guðmunds-
son, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.
Eins kom fram í fjölmiðlum á mið-
vikudag er Emilía Björk Óskars-
dóttir hætt í Nylon og er þegar
hafin leit að arftaka hennar. Í
fréttatilkynningu frá Einari Bárð-
arsyni, umboðsmanni sveitarinnar,
stóð að tekist hefðu samningar við
Stöð 2 og Sirkus um sýningar á
raunveruleikaþætti um leitina.
„Þetta kom okkur skemmtilega á
óvart að við skyldum vera búnir að
fá þennan þátt yfir til okkar. Ég
hafði samband við Einar út af þessu
og hann sagði mér að fjölmiðlar
hefðu rangtúlkað
þetta en ég gat ekki
betur séð en að
þetta stæði í frétta-
tilkynningunni,“
bætir Pálmi við. Í
seinni fréttatil-
kynningunni frá
Einari sem var
send út laust fyrir
klukkan tíu kom
fram að Skjár einn
og Stöð 2 hefðu
sýnt þættinum tölu-
verðan áhuga. Sjónvarpsstjórinn
vildi þó ekki gefa upp hvort Stöð 2
myndi kaupa þáttinn, sagði þetta
allt vera á byrjendastigi.
Björn Þór Sigurðsson, sjónvarps-
stjóri Skjás eins, tók í svipaðan
streng og sagðist eingöngu
vita af þessari hugmynd.
„Við erum að velta þessu
fyrir okkur en engin tilboð
hafa þó verið gerð. Þetta
er mjög spennandi fyrir
okkur enda vorum við
með fyrsta þáttinn
um þær stelpur.
Vandamálið er
hins vegar að
flestar sjón-
varpsstöðvar
hafa skipulagt
haustið um
þessar mundir.
En við skoðum
alltaf allt,“ segir
Björn.
Raunveruleikaþáttur í lausu lofti
Bjarni Ármannsson, fyrr-
verandi forstjóri Glitnis, sló
í gegn í eigin kveðjuhófi sem
haldið var á Kjarvalsstöðum
í fyrrakvöld þegar hann vatt
sér upp á svið og söng nokk-
ur lög með Stuðmönnum í
tilefni dagsins.
„Ég vildi syngja mitt síðasta með
Glitni,“ segir Bjarni. Lagalistinn
var úthugsaður og byrjaði á laginu
Strax í dag sem hefst á orðunum:
„Ég var með Bjarna á bjúkkanum
í gær og er með Lalla á lettanum í
dag.“ „Þessar línur þóttu okkur
vel við hæfi,“ segir Bjarni og vísar
með því í þá staðreynd að eftir-
maður hans í starfi er Lárus Weld-
ing. „Svo fórum við í harðara rokk
og tókum „the single hit wonder“
Born to be Wild með Steppenwolf.
Ég hef stundum tekið það þegar er
mikill gír í gangi. Næst kom Svarti
Pétur ruddist inn í bankann sem
er sígilt grínlag í bankaheimin-
um.“ Lagalistinn var ekki tæmdur
því Bjarni var klappaður upp af
samstarfsmönnum sínum og end-
aði á Frank Sinatra laginu My
Way.
Bjarni gefur lítið út á að æfa
slíka framkomu. „Nei, nei, það
þýðir ekkert að vera að æfa allt.
Ég hef nú sungið nokkrum sinnum
með Stuðmönnum áður. Þetta er
allt svo mikið tónlistarfólk sem er
fljótt að taka upp hvers kyns tóna.“
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T S
m
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S k
lú
bb
. 9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
9. HVERVINNUR
3 VIKUR ÁTOPPNUM ÍUSA!
SMS
LEIKUR
ÞESSAR 8 KONUR MUNU
HITTA 1 BRJÁLAÐAN MANN
FRUMSÝND
18.07.07
SENDU SMS J
A DPF
Á NÚMERIÐ 1
900
OG ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ
MIÐA FYRIR
TVO!
FLOTTIR AUK
AVINNINGAR
Í BOÐI!