Fréttablaðið - 18.08.2007, Page 1

Fréttablaðið - 18.08.2007, Page 1
Laugardagur *Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í júlí 2007 Lestur meðal 18–49 ára á höfuðborgarsvæðinu 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 34% B la ð ið M o rg u n b la ð ið F ré tt a b la ð ið 37% 71% Bretinn Roger Johnson var fyrirmynd Action Man-dúkk- unnar þegar hann var í sérsveit breska hersins. Hann ætlar að hjóla hringinn í kringum Ísland í lok ágúst. AFMÆLISVEISLA! OPIÐ 10–18 Opið í dag Laugardag Smiðjuvegi 76 200 Kópavogur Baldursnes 6 603 Akureyri www.tengi.is Viltu vinna MacBook? Vantar þig fartölvu fyrir skólann í haust? Þú gætir verið svo heppin/n að fá hana frítt! Kíktu í Apple bæklinginn sem fylgir Fréttablaðinu í dag. apple.is Olíuhreinsunarstöð af þeirri stærð sem Íslenskur hátækniiðnaður hyggst reisa á Vestfjörðum myndi blása út 400 þúsund tonnum af koldíoxíði á ári hverju. Gert er ráð fyrir því bæði í stefnumörkun umhverfisráðu- neytisins og Kyoto-bókuninni að slíkur útblástur minnki talsvert á næstu árum. „Miðað við þann tíma sem mun líða frá því að ákvörðun er tekin og þangað til stöðin tæki til starfa, þá reynir ekki á losunar- heimildir fyrr en við upphaf nýs Kyoto-tímabils,“ segir Ólafur Egilsson hjá Íslenskum hátækni- iðnaði. Samkvæmt Kyoto-bókuninni skuldbindur Ísland sig til þess að halda útblæstri gróðurhúsaloft- tegunda innan við 3,1 milljón tonn árlega árin 2008 til 2012. Undan- farin ár hefur útblásturinn alltaf verið yfir þessari tölu. Viðbótarákvæði í Kyoto-bókun- inni, sem á við um Ísland, segir að útstreymi koldíoxíðs frá stóriðju sem tekin hefur verið til starfa eftir árið 1990 megi ekki vera meira en 1,6 milljónir tonna að meðaltali á ári. Efasemdir eru uppi um að olíuhreinsunarstöð rúmist innan þessa ákvæðis, þar sem þær stóriðjuframkvæmdir sem nú þegar hafa verið leyfðar á tímabilinu fylla nánast allan losunarkvótann. Í febrúar á þessu ári gaf umhverfisráðuneytið út skýrslu um stefnumörkun í umhverfis- málum. Þar kemur fram að lang- tímasýn stjórnvalda sé að „minnka nettólosun gróðurhúsalofttegunda um 50 til 75 prósent fram til 2050, miðað við árið 1990.“ Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Ekki náðist í Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra vegna málsins. 400 þúsund tonn af útblæstri á hverju ári Útblástur koldíoxíðs vegna olíuhreinsistöðvar á Vestfjörðum stangast á við markmið stjórnvalda um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Björgólfur Guðmundsson var valinn besti auðmaður Íslands sam- kvæmt mati álitsgjafa Fréttablaðsins. „Ég er að sjálfsögðu ánægður og stoltur,“ sagði Björgólfur meðal annars í samtali við Fréttablaðið þegar niðurstað- an lá fyrir. Sonur Björgólfs, Björgólfur Thor, hafnaði í öðru sæti og fast á hæla hans fylgdi Jóhannes Jónsson úr Bónus. Aðrir sem skoruðu hátt voru systkinin Ingibjörg og Sigurður Pálmabörn. Ólafur Ólafsson og Ingunn Wernersdóttir voru einnig nefnd til sögunnar. Kosinn besti auðjöfurinn hús&heimiliLAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 Rússneskar sprengju- flugvélar flugu þrisvar sinnum inn á loftvarnasvæði Íslands við austur- strönd landsins aðfaranótt föstu- dagins og í gærmorgun. Gera má ráð fyrir að sprengjuvélarnar hafi verið sex talsins því í hverju flugi eru yfirleitt tvær vélar. „Sprengjuflugvélarnar flugu í hálf- hring framhjá landinu og var fylgst með þeim á ratsjám,“ segir Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarkona Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur utan- ríkisráðherra. Kristrún segir að ekki sé hægt að svara því núna hvort vélarnar hafi farið inn í lofthelgi Íslands. Breskar og norskar orrustu- þotur flugu í veg fyrir rússnesku vélarnar og fylgdu þeim eftir þar til þær flugu út af loftvarnasvæði Atlantshafsbandalagsins. Kristrún segir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra muni líklega bregðast við málinu í dag. Hún segir að rætt verði við sendi- herra Rússlands á Íslandi. Vladímír Pútín Rússlandsforseti greindi frá því í gær að Rússar ætli að hefja eftirlitsferðir flughersins að nýju en þeir hættu þeim við lok kalda stríðsins. Pútín segir að aðrar þjóðir hafi ekki hætt þeim og að það ógni öryggi Rússlands. Rætt við sendiherra Rússa

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.