Fréttablaðið - 18.08.2007, Page 2
Einn mannanna
þriggja sem var handtekinn í
verslun á Akureyri á miðvikudag
var dæmdur í tveggja ára fangelsi
vegna líkamsárásar í vor þar sem
fingur var klipptur af fórnarlamb-
inu. Maðurinn áfrýjaði þeim dómi
til Hæstaréttar sem mun að lík-
indum taka málið fyrir í haust.
Maðurinn, sem er 27 ára gamall,
kom inn í verslunina Strax á Akur-
eyri í annarlegu ástandi og vopn-
aður hafnaboltakylfu. Starfsfólk
hafði samband við lögreglu sem
handtók manninn ásamt konu og
öðrum karlmanni sem með honum
voru. Í bíl þeirra fannst töluvert
magn vopna, meðal annars hafna-
boltakylfur og tvær loftskamm-
byssur, auk fíkniefna. Tvö af þre-
menningunum höfðu einnig verið
handtekin við húsleit í bænum
kvöldið áður.
Eftir skýrslutöku hjá lögreglu
var fólkinu sleppt. Þá fór maður-
inn sem um er rætt rakleiðis í
verslunina aftur og hótaði starfs-
fólkinu lífláti og limlestingum.
Maðurinn á langan brotaferil að
baki. Í fyrra var honum gert að
sök að hafa ráðist á mann með
hafnaboltakylfu og barið hann í
höfðið en samverkamaður hans
klippti fingur af fórnarlambinu
með garðklippum. Fyrir þá lík-
amsárás auk annarra var maður-
inn dæmdur í tveggja ára óskil-
orðsbundið fangelsi.
Bíður fyrirtöku í Hæstarétti
Lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu var um
miðnætti í fyrrinótt tilkynnt um
ökumann í annarlegu ástandi.
Hann var þá staddur á Langa-
tanga í Mosfellsbæ.
Þegar lögreglan kom á staðinn
reyndist ökumaðurinn sofa
ölvunarsvefni í bílnum. Hann
rankaði við sér eftir að lögreglu-
menn höfðu bankað á bílrúðuna
hjá honum. Ummerki sýndu að
hann hafði áður bakkað á kerrur
sem stóðu í nágrenninu. Fíkni-
efni fundust á manninum og var
hann færður á lögreglustöð. Þar
kom í ljós að hann var án
ökuréttinda.
Ók á kerrur og
sofnaði síðan
Eiður, er heimurinn farinn að
smæla framan í Megas?
„Samkvæmt erlend-
um rannsóknum hefur komið í ljós
að umtalsverð aukning er á nýgengi
krabbameins hjá íbúum sem búa í
nálægð við farsímamöstur,“ segir í
athugasemd íbúasamtaka þriðja
hverfis, Hlíðar, Holta og Norður-
mýri, við fyrirhugað fjarskipta-
mastur á lóð Kennaraháskóla
Íslands og Fjöltækniskólans að
Háteigsvegi 43 í Reykjavík.
Samtökin benda á að fyrirhuguð
staðsetning þessa átján metra háa
masturs sé í um 130 metra fjarlægð
frá leikskólanum Klömbrum og í
um 180 metra fjarlægð frá Háteigs-
skóla. Til viðbótar eru Fjöltækni-
skólinn og Kennaraháskólinn
skammt frá.
„Ég er sammála samtökunum í
þessu máli. Maður vill ekki vera á
móti tækninni sem slíkri en á
meðan það eru ekki til rannsóknir
sem sýna að þetta sé meinlaust þá
finnst mér að börnin eigi að njóta
vafans,“ segir Ásgeir Beinteinsson,
skólastjóri í Háteigsskóla.
„Börnin eru í skólanum frá hálf
níu á morgnana til þrjú á daginn og
þá allan tímann undir áhrifum
þessa masturs séu þau til staðar,“
segir hann.
Í athugasemdinni, sem íbúasam-
tökin sendu skipulags- og bygg-
ingasviði, er vísað til tveggja rann-
sókna, frá Ísrael og Þýskalandi, þar
sem niðurstöðurnar sýndu að fólk
sem byggi í innan við 400 metra
fjarlægð frá farsímamöstrum væri
þrisvar til fjórum sinnum líklegra
til að fá krabbamein en það sem
ætti heima lengra frá möstrunum.
„Börn í hverfinu og borginni
allri eiga ekki að vera tilraunadýr
og ekki er hægt að leyfa sér að
taka áhættu þegar kemur að þeirra
heilbrigði,“ segir í erindi íbúasam-
takanna.
„Ég veit ekki um neinar nýlegar
kannanir sem hafa verið að vekja
ugg,“ segir Þorgeir Sigurðsson,
rafmagnsverkfræðingur hjá
Geislavörnum ríkisins sem hafa
eftirlitshlutverk með farsíma-
geislun á almenning.
„Við förum eftir alþjóðlegum
viðmiðunarmörkum um rafsegul-
svið. Nokkrum metrum frá sendi
mælist segulsviðið venjulega
innan viðmiðunarmarka. Segul-
svið frá GSM-síma sem menn eru
með við eyrað er margfalt sterk-
ara en frá sendunum, en þó innan
viðmiðunarmarka,“ segir hann.
Frestur til athugasemda rann út
í gær. Samkvæmt upplýsingum
hjá skipulags- og byggingasviði
verða athugasemdir við deili-
skipulagið skoðaðar á næstu
dögum.
Telja að mastur auki
líkur á krabbameini
Íbúar við Háteigsveg eru ósáttir við fyrirhugað farsímamastur í götunni. Íbúa-
samtök í hverfinu hafa sent erindi til borgarinnar sem vísar til rannsókna sem
segja fjórfalt meiri líkur á krabbameini búi fólk í nálægð við farsímamöstur.
Kona var flutt með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á Landspít-
alann í Fossvogi aðfaranótt
föstudags eftir bílveltu á
Snæfellsnesi.
Slysið varð á veginum milli
Hellna og Arnarstapa en ekki er
ljóst hvað olli óhappinu. Konan
var ein í bíl sínum og þegar
vegfarandi kom að henni var hún
föst undir bílnum.
Konan er mikið slösuð en að
sögn vakthafandi læknis á
bæklunardeild var hún ekki í
lífshættu. Hún hlaut mörg
beinbrot og ýmsa aðra áverka.
Mikið slösuð
eftir bílveltu
„Kælirinn var tekinn í burtu
núna í vikunni að beiðni borgar-
stjórnar,“ segir Þorkell Freyr
Sigurðsson, aðstoðarverslunar-
stjóri í vínbúðinni sem er í
Austurstræti.
Lengi vel stóð kælir með bjór í
búðinni. Hann segir þó nokkra
hafa nýtt sér þessa þjónustu og
þá sérstaklega á sólríkum
sumardögum eins og mikið hefur
verið af undanfarið. „Þetta var
lítill heimiliskælir. Sumir vissu af
honum og síðan spurðist þetta
bara út. Fólk kom og spurði hvort
það mætti kíkja í kælinn,“ segir
Þorkell Freyr.
Kælirinn sem var baka til í
búðinni er núna kominn niður í
kjallara.
Volgur bjór í
Austurstræti
„Okkur þykir þetta mjög
undarlegt enda veit ég ekki hvað
fólk ætlar að gera við einn kóng,“
segir Elín Gísladóttir, forstöðu-
maður sundlaugarinnar á Akureyri
en hvíti kóngurinn úr útitafli
sundlaugargarðsins hvarf á
dögunum.
Kóngurinn er stór og mikill og
svo virðist sem honum hafi verið
stolið um hábjartan dag.
Þótt kónginn vanti geta menn
enn teflt í garðinum. „Lögreglan
kom hingað einn daginn með svart
útitaflspeð sem hafði fundist á
víðavangi. Þetta peð kemur ekki úr
okkar tafli en nú hefur það verið
dubbað upp sem hvítur kóngur,“
segir Elín hlæjandi og bætir því
við að líklega séu þarna einhverjar
hrókeringar á ferðinni.
Hrókeringar á
útitaflinu
Kínverskt par hefur óskað
eftir því að fá að nefna barnið sitt
@. Merkið @, sem borið er fram
„at“, er notað í netföng, en
hljómar á kínversku eins og
setningin „elskaðu hann“.
Parið vonast eftir að geta nefnt
son sinn þessu „nútímalega nafni“
samkvæmt Sky News. Allt
mannkynið noti @ í tölvupóst og
því sé þetta gott nafn.
Lögregla íhugar hvort leyfa
eigi parinu að kalla barnið sitt @,
en í Kína eru slíkar ákvarðanir í
höndum lögreglu.
Par vill nefna
barnið sitt @
„Það hefur sjaldan verið jafn mikið
fjör í leikhúsinu. Það hreinlega iðar af lífi,“
segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri á
Akureyri, en Leikfélag Akureyrar æfir nú stíft
fyrir fyrstu frumsýningu haustsins. Þar er á
ferðinni leikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helga-
dóttur sem skartar sautján stórleikurum á
barnsaldri.
Í Óvitunum hefur öllu verið snúið á hvolf. Full-
orðnir leika börn og börn leika fullorðna. Tónlist-
armaðurinn Jón Ólafsson hefur samið tónlist fyrir
verkið en Sigurður Sveinsson leikstýrir.
Í gær stóðu yfir tökur á myndböndum sem notuð
verða í sýningunni. Þar leikstýrði Sigurður átta
ára drengjum í Dressman-auglýsingu, níu ára
sjónvarpsfréttakonu og 45 ára karlmanni sem
auglýsti bleiur.
„Börnin hafa staðið sig ofsalega vel og hér eru
upprennandi stórstjörnur á hverju strái,“ segir
Sigurður. Hann segir gaman að sjá hve mikill
áhugi er á sýningunni en 500 börn komu í prufur í
vor og vildu vera með.
Verkið verður frumsýnt 15. september.