Fréttablaðið - 18.08.2007, Side 10
Breskur karlmaður,
sem fæddur er í Eistlandi, var í
gær dæmdur í fjögurra mánaða
fangelsi fyrir að stela kortanúm-
erum og bóka flugferðir á þeim.
Maðurinn, sem er 26 ára gamall,
játaði brot sín við yfirheyrslu.
Hann stal kortanúmerunum á bar
þar sem hann starfaði sem þjónn
og nýtti sér þau til þess að kaupa
ýmsa þjónustu, þar á meðal flug-
ferðir, einkum frá London til
Íslands og þaðan áfram til borga á
Norðurlöndum, meðal annars
Stokkhólms. Hann bókaði alls níu
flug hingað til lands frá því í apríl
á þessu ári með því að nota stolin
kortanúmer.
Upp komst um manninn þegar
fólk, sem hafði greitt með korti á
barnum í London, tók eftir því að
flugför hefðu verið bókuð með
þeirra kortanúmeri sem þau könn-
uðust ekki við.
Upphæð þeirra brota sem snúa
að ólöglegu athæfi mannsins hér á
landi nemur um 800 þúsund krón-
um en heildarumfang brota
mannsins er þó nokkuð meira.
Að sögn Eyjólfs Kristjánssonar,
hjá lögreglunni á Suðurnesjum,
eru brot af þessu tagi litin alvar-
legum augum og rannsóknir á
þeim oft tímafrekar.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur
varist frétta af málinu, vegna
rannsóknarhagsmuna, frá því
maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald fyrir um viku.
Ákæra yfir manninum var þing-
fest í Héraðsdómi Reykjaness í
gær og var hann dæmdur strax í
kjölfarið, þar sem málið var að
fullu upplýst.
Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra
vann að rannsókn málsins ásamt
lögreglunni á Suðurnesjum. Upp-
lýsinga var aflað í samvinnu við
lögreglu á Englandi en maðurinn
hefur áður komið við sögu lög-
reglu þar í landi fyrir fjármála-
misferli.
Maðurinn var dæmdur til þess
að greiða rúmlega 1,3 milljónir
króna í skaðabætur og 500 þúsund
í kostnað vegna fjársvikanna.
Pantaði fjölda flugferða
á stolin kortanúmer
Breskur karlmaður var í gær dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að stela
kortanúmerum viðskiptavina sinna á bar í London til þess að bóka flugferðir til
Íslands. Maðurinn var í gæsluvarðhaldi í viku áður en hann var dæmdur.
Þeim Gíslínu Magnúsdóttur
og Gísla Óskarssyni, frístunda-
bændum í Vestmannaeyjum, var
illa brugðið þegar þau fóru að
athuga með búfénað sinn á fimmtu-
dagskvöld. Hundur hafði komist í
hænurnar þeirra og drepið fimm.
„Þetta var ekki skemmtileg
aðkoma og sorglegt að sjá þær
liggja þarna eins og hráviði út um
allt,“ segir Gíslína. Fyrst rákust
þau hjónin á tvær dauðar hænur í
hlöðunni. Sú þriðja lá í valnum í
fjárhúsinu og tvær voru utan-
dyra.
„Það var fiður út um allt og
þegar við skoðuðum hænurnar
sáum við að þær höfðu verið bitn-
ar svo það er líklegast að þarna
hafi verið hundur á ferðinni,“
segir Gíslína sem saknar mest
hænunnar Bellu sem var hænd að
mannfólkinu. Auk hænsnanna
fimm sem drápust eru þrír ungar
horfnir.
Hænurnar þeirra Gíslínu og
Gísla fá að ganga frjálsar um utan-
dyra en hafa kofa til að kúra í á
nóttunni. Gíslína segir að svona
nokkuð hafi aldrei komið fyrir
áður. „Það er mikið um hunda hér
í Eyjum en flestir hafa þá í bandi,“
segir hún.
Ferðaskrifstofa
Afturköllun að frumkvæði Mattel
www.neytendastofa.is
www.safety.mattel-online.com
Mattel, Inc. afturkallar að eigin frumkvæði eina vöru úr „CARS“
vörulínunni með vöruheitinu „Sarge“ sem framleidd var á tímabili-
nu frá mars 2007 til júlí 2007. Afturköllun leikfanganna er niður-
staða aukinna rannsókna og stöðugra prófana á vegum Mattel.
4 bílar hafa verið fluttir til Íslands.
Mattel afturkallar að eigin frumkvæði segulleikföng sem fram-
leidd voru á tímabilinu frá 2002 til 31. janúar 2007, þeirra á meðal
tilteknar dúkkur, fígúrur, leikfangasett og fylgihlutir með litlum
öfl ugum seglum sem gætu losnað af. Afturköllunin er til viðbótar
afturköllun Mattel að eigin frumkvæði í nóvember 2006 á átta
leikföngum og byggir á viðamiklu innra eftirliti með vörumerk-
jum frá Mattel. Allar vörur sem um ræðir voru framleiddar fyrir
lok janúar 2007. Viðbótarafturköllunin er ekki vegna tilkynninga
um meiðsli heldur vegna fjölgunar tilkynninga um lausa segla og
vegna nýrra og strangari reglna Mattel um heldni segla.
Á Íslandi nær afturköllunin til 4 vara í línunni Doggie Day Care,
af þeim voru 488 stykki flutt inn, og 19 vörur í línunni Polly
Pocket en 1.006 stykki af þeim voru flutt inn. Vörurnar voru
seldar í leikfangaverslunum Hagkaupa og í Leikbæ.
Við ráðleggjum neytendum að taka þessar vörur af börnum tafar-
laust og skila þeim í leikfangaverslanirnar. Leikfangaverslanirnar
geta aðeins tekið við vörum sem seldar voru hjá þeim. Aðrar vörur
þarf að senda til Mattel í Danmörku. Mattel mun senda
neytendum nýja vöru að jafnvirði eða meira.
Upplýsingar um vörurnar má nálgast á vef Mattel
www.safety.mattel-online.com eða á
www.neytendastofa.is Hægt er að hafa samband við
Mattel í Danmörku í síma +45 43 20 75 75
(á dönsku/ensku)
MIKILVÆG AUGLÝSING UM AFTURKÖLLUN
VEGNA ÖRYGGIS
Fyrrverandi
dómsmálaráðherra frá tíma
aðskilnaðarstefnunnar í Suður-
Afríku játaði sig í gær sekan um
morðtilraun á þekktum kirkjuleið-
toga árið 1989 með því að koma
eitri fyrir í fötum hans. Þáverandi
lögreglustjóri og þrír lögreglu-
menn játuðu einnig sekt.
Adrian Vlok, sem er sjötugur,
var dómsmálaráðherra frá 1986 til
1989. Hann er í dag mjög trúaður
og í fyrra þvoði hann fætur kirkju-
leiðtogans, Frank Chikane, í frið-
þægingarskyni.
Nærbuxum sem voru gegnsósa
af öflugu taugaeitri var komið
fyrir í ferðatösku Chikane sem
lést næstum því vegna eitrunar-
innar. Chikane, sem er í dag einn
helsti ráðgjafi forseta Suður-Afr-
íku, Thabo Mbeki, segist hafa fyr-
irgefið Vlok.
Vlok var dæmdur til tíu ára skil-
orðsbundins fangelsis. Þrír sam-
verkamenn hans fengu einnig skil-
orðsbundna dóma.
Margir binda vonir við að málið
verði til þess að þeir sem stóðu á
bak við glæpi stjórnvalda gagn-
vart borgurum á tíma aðskilnað-
arstefnunnar í Suður-Afríku
verði látnir sæta ábyrgð. Hávær
krafa er einnig uppi um að sama
skuli eiga við um frelsisbaráttu-
menn Afríska þjóðarráðsins
(ANC) sem börðust gegn stjórn-
völdum.
Fólk sem sætti pyntingum og
fjölskyldur þeirra sem hurfu eða
voru myrtir af öryggissveitum
stjórnvalda mótmæltu fyrir utan
réttarsalinn í gær. Einnig mót-
mæltu ættingjar fólks sem lést af
völdum sprengja sem frelsisbar-
áttumenn ANC komu fyrir.
Eitraði fyrir kirkjuleiðtoga