Fréttablaðið - 18.08.2007, Page 16
[Hlutabréf] Peningaskápurinn ...
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
Kaupþings, telur að hin 270 millj-
arða króna yfirtaka bankans á NIBC
í Hollandi muni auka verðmæti hluta-
fjár í Kaupþingi mikið. Það fæst með
því að kaupa banka sem er á lægri
verðkennitölum en Kaupþing. Hann
bendir ennfremur á að innra virði
Kaupþings um þessar mundir hafi
ekki verið metið lægra síðan bank-
inn fór á markað haustið 2001.
„Við stjórnendur bankans getum
ekki haft mikið álit á því hvernig
markaðurinn metur bréfin okkar.
En markmið okkar er samt að auka
innra virði bankans á hverjum
tíma. Það er það sem við gerum
verulega á þessu ári, úr um 400
krónum á hlut í upphafi ársins í 600
krónur á hvern hlut í lok þessa árs,“
sagði hann á kynningarfundi með
fjárfestum vegna kaupanna á
NIBC.
En hvernig fer bankinn að því að
auka verðmæti hluthafa? „Við
gefum út hlutafé til JC Flowers
[stærsta eiganda NIBC] í banka
sem er metinn á rúmlega 2,3 sinn-
um eigið fé en kaupum banka sem
metinn er á 1,5 sinnum eigið fé.“
Gengi hlutabréfa í Kaupþingi
stóð í 1.090 krónum á hlut í gær
sem þýðir að innra virði bankans
fer niður í 1,8 miðað við væntan
hagnað bankans á árinu og aukn-
ingu eigin fjár vegna kaupanna.
Eykur verðmæti
hluthafa Kaupþings
Innra virði bankans er ekki lægra frá skráningu.
Mikill viðsnúningur varð á öllum
fjármálamörkuðum í gær eftir að
Bandaríski seðlabankinn lækkaði
óvænt vexti af lánum, sem hann
lánar til lánastofnana, niður í 5,75
prósent eða um hálft prósentustig.
Þetta var tilraun bankans til að
draga úr þrengingum á lánamörk-
uðum sem staðið hafa yfir í nær
tvo mánuði.
Hlutabréf í Kauphöll Íslands,
tóku mikið stökk upp á við við tíð-
indin. Úrvalsvísitalan hækkaði um
2,94 prósent í gær og þarf að fara
aftur til 23. febrúar á síðasta ári til
að finna meiri dagshækkun. Velt-
an var mikil, um 26,1 milljarður
króna. Markaðurinn náði þó ekki
að yfirvinna tap fimmtudagsins
þegar markaðsvirði hlutabréfa í
Kauphöll féll um 118 milljarða
króna. Ávinningur gærdagsins
nam níutíu milljörðum.
„Það er alveg ljóst að margir
voru búnir að finna kauptækifæri
en voru að bíða eftir réttu tíma-
setningunni til að koma inn af
krafti á markaðinn,“ segir Harald-
ur Yngvi Pétursson hjá greining-
ardeild Kaupþings. Hann telur of
snemmt að meta það hvort þetta
þýði að frekari hækkanir séu í
uppsiglingu.
Þá styrktist krónan um 0,79 pró-
sent eftir mikla lækkun að undan-
förnu. Gengisvísitalan endaði í
125,1 stigi en fór lægst niður í 123
stig. Exista leiddi hækkanir gær-
dagsins, enda hefur félagið fallið
mest á undanförnum dögum og
vikum. Gengi félagsins hækkaði
um fimm prósent. Bréf Bakkavar-
ar, Landsbankans, FL Group og
Kaupþings hækkuðu um þrjú pró-
sent eða meira.
Nærri 12,6 milljarða króna velta
var með bréf Straums-Burðaráss
sem hækkaði um 2,9 prósent.
Straumur seldi fimm prósent í
sjálfum sér fyrir 10,2 milljarða
króna.
Miklar dægursveiflur
á fjármálamörkuðum
Gærdagurinn var sá besti í Kauphöllinni í eitt og hálft ár. Fjárfestar stukku inn
á markaðinn eftir óvæntar fréttir frá seðlabanka Bandaríkjanna.
Straumur fjárfestingabanki seldi
eigin hlutabréf fyrir rúma 10,2
milljarða króna laust eftir klukk-
an tíu í gærmorgun, alls 550 millj-
ón hluti á genginu 18,6. Loka-
gengi bréfa Straums í gær var
19,6 krónur á hlut og eignarhlut-
urinn því seldur 550 milljónum
krónum undir því verði. Sam-
bærilegt verð á hlutabréfum
Straums var síðast að finna í
mars á þessu ári.
Í tilkynningu bankans um kaup-
in til Kauphallar kemur ekki
fram hver sé kaupandi og ekki
hefur komið fram tilkynning á
móti til kauphallar um aukinn
eignarhlut í bankanum. Hlutur-
inn sem seldur var jafngildir 5,3
prósentum af heildarhlutafé
bankans.
Jóhanna Vigdís Guðmundsdótt-
ir, forstöðumaður samskiptasviðs
Straums, segir bréf bankans aug-
ljóslega hafa verið til sölu og ekk-
ert óeðlilegt við viðskiptin. „Bréf-
in voru seld á markaðsverði,“ segir
hún og bætir við að flöggunar-
skylda sé mjög skýr upp á hvenær
kaupendur þurfi að gefa upp eign-
arhlut sinn. Straumur segir hins
vegar að hún fari eftir reglum um
upplýsingagjöf á markaði. Flögg-
unarskylda er hjá kaupendum við
fimm prósenta eignarhlut og því
væntanlega hægt að gefa sér að
enginn einn fjárfestir hafi farið
yfir þau mörk í viðskiptunum.
Seldu eigin bréf
undir lokagengi
Hlutabréfavísitölur í Bandaríkj-
unum og Evrópu tóku við sér í gær
eftir talsverða lækkun í vikunni
eftir að seðlabanki Bandaríkjanna
ákvað að lækka millibankavexti
lánastofnana um 50 punkta í því
augnamiði að draga úr óróa á fjár-
málamarkaði.
Þetta kemur í viðbót við millj-
arða dala innlegg bankans á fjár-
málamarkað en seðlabankar nokk-
urra landa hafa opnað pyngjur
sínar til að gera bönkum kleift að
sækja sér fjármagn á lágum kjör-
um til að koma í veg fyrir lausa-
fjárskort.
Hlutabréfamarkaður í Asíu tók
hins vegar enn eina dýfuna en fjár-
festar þar gerðu ráð fyrir frekari
hrakfregnum af bandarískum fast-
eignalánamarkaði auk þess sem
margir þeirra losuðu um áhættu-
samar fjárfestingar. Nikkei-vísi-
talan féll við þetta um heil 5,4 pró-
sent í kauphöllinni í Japan en
Kospi-vísitalan í Suður-Kóreu fór
niður um 3,2 prósent.
Þrátt fyrir inngrip seðlabankans
vestanhafs er ekki víst hvort það
dugi til að róa markaðinn en frétta-
stofan Associated Press segir óvíst
hvað framtíðin ber í skauti sér.
Inngrip seðlabanka hífði upp vísitölur
Fagnaðarlæti brutust út í bönk-
um í Sófíu í Búlgaríu sem sáu um
sölulok á 90 prósenta hlut Novat-
ors, félags í eigu Björgólfs Thors
Björgólfssonar, í búlgarska síma-
fyrirtækinu BTC til bandaríska
fjármálafyrirtækisins AIG Glo-
bal Investment Group í gær-
morgun. Verðið nam 1,4 milljörð-
um evra, um 127 milljörðum
íslenskra króna. Þetta er einhver
stærsta skuldsetta yfirtakan í
SA-Evrópu til þessa.
Tómas Otto Hansson, fram-
kvæmdastjóri hjá Novator, sem
stýrði uppbyggingu fyrirtækis-
ins í þau tæp fjögur ár sem
Novator átti hlutinn, segir við-
brögðin hafa komið sér á óvart.
„En þetta voru náttúrulega
stærstu viðskiptin sem farið hafa
í gegnum kauphöllina hér,“ segir
Tómas, sem staddur var í Sófíu í
gær.
Hagnaður Novator af sölunni
er sagður 60 milljarðar króna.
Tómas segir það nærri lagi en
bendir á að verðið endurspegli
mikla umbreytingu á BTC. „Þetta
hefur verið langur og strangur
vegur,“ segir hann og vísar til
þess að Novator hafi staðið fyrir
mikilli hagræðingu innan veggja
BTC. „Hagnaðurinn gefur ein-
hverja mynd af því sem hefur
gerst.“
Novator selur BTC