Fréttablaðið - 18.08.2007, Síða 22

Fréttablaðið - 18.08.2007, Síða 22
F í t o n / S Í A L ygilega jákvæð, glaðsinna og úrræða- góð eru orð sem fólk hefur á hraðbergi þegar Sif Gunnarsdóttur ber á góma. Menningarnótt er enda mikið fyrirtæki sem krefst ríkrar skipulagsgáfu, sem Sif hefur haft frá barnsaldri. Hún hefur ekki aðeins ódrepandi áhuga á menningu og listum heldur er hún nösk þegar kemur að praktískum atriðum á borð við gatnalokun, sorphreinsun og hversu mörg almenningssal- erni þurfa að vera til taks. Skipulagsgáf- una má ef til vill rekja til æskuáranna þegar hún bjó erlendis á námsárum foreldra sinna. Fjölskyldan átti aldrei bíl, heldur ferðað- ist með lestum og rútum. Eins og títt er með námsfólk voru peningar af skornum skammti; á ferðalögum gat það verið áfall að finna aðeins eitt veitingahús í litlum smábæ sem reyndist vera of dýrt. Þetta tók Sif allt saman inn; henni var innrætt að vera skipulögð og rasa ekki um ráð fram. Þetta gerði hana þó alls ekki níska því eins og einn viðmælandi komst að orði er hún „and- skotans aristókrati“ í sér og vill ekkert nema það sé fallegt og vandað og sættir sig ekki við hvað sem er. Hún hefur aftur á móti vaðið fyrir neðan sig og gætir sín á að vita hvernig eigi að mæta reikningum þegar þeir koma og frekar sleppa hlutun- um en sætta sig við það sem hana langar ekki í. Þessi eiginleiki hefur nýst henni vel í starfi því hún getur leikið mörgum boltum á lofti í einu án þess að missa neinn niður. Hún hefur mikinn áhuga á ólíklegustu hlutum, er mikill diplómat í samskipt- um við aðra og smitar frá sér lífsgleði og jákvæðni að enginn er ósnortinn. Að sögn þeirra sem til þekkja var Sif bæði kurteist og þægt barn. Að vísu var hún ekki til friðs fyrr en hún lærði að lesa en það gerði hún hins vegar afar ung. Eftir það þurfti lítið fyrir henni að hafa því hún lá í bókum. Eins og títt er með bókaorma var hún líka mikill innipúki framan af. Tólf ára gömul fór hún hins vegar í gagnfræðaskóla á Englandi og tók þar stakka- skiptum; eins og skólinn hefði leyst hana úr böndum. Átta mánuðum síðar sneri hún aftur heim gjörbreytt – í stað innipúkans var kominn félagsmálafrömuður sem stýrði félagslífinu í Laugalækjarskóla. Úr Laugalækjarskóla lá leiðin í Menntaskólann við Sund. Með henni í árgangi voru meðal annars Steinunn Valdís Óskarsdóttir alþingiskona og Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir mennta- málaráðherra. Eftir stúdents- próf skráði Sif sig í dönsku við Háskóla Íslands. Hún er mikil tungumálamann- eskja, lærði bæði dönskuna og enskuna þegar hún bjó úti. Það kom mörgum hins vegar á óvart að hún færi í dönsku og aðspurð hvers vegna hún lærði ekki bókmennta- fræði, eins og flestir höfðu gert ráð fyrir, svaraði hún víst: „En ég er búin að vera að því alla ævi.“ Að loknu dönsku- námi lærði Sif menningarmiðl- un í Óðinsvéum og þeir sem hana þekkja segja að það hafi verið laukrétt ákvörð- un, tungumálin hafi hreinlega ekki reynt nógu mikið á hana og Sif hafi þurft eitthvað meira fyrir heila- sellurnar. Þegar nær dregur menning- arnótt er álagið jafnan mikið á Höfuðborgar- stofu og Sif vílar ekki fyrir sér að bæta nótt við dag þegar á þarf að halda. En þótt hún vinni mikið kann hún þó líka að njóta lífsins. Í frístundum líður henni vel með bók í hönd auk þess sem hún nýtur þess að gera vel við sig í mat og drykk og ferðast. Stórfjöl- skyldan er líka samhent og hefur þann sið að hittast yfir kvöldverði á hverjum miðvikudegi. Sif hefur þennan sið jafnan í heiðri þótt það komi fyrir að hún skrópi þegar menningarnótt nálgast. Sif verður stressuð eins og aðrir en fer vel með það því það fylgir jafnan mikið spennufall þegar menningar- nótt er afstaðin en hún gætir þess vel að skipu- leggja sig vel svo orkan fari ekki til spillis. Sif er ákaflega vinnusöm og ósérhlífin. Hún er ekki beinlínis kröfuhörð í garð annarra heldur þykir hafa slíkt lag á fólki að hún dregur fram það besta úr því. Enginn stenst ódrepandi áhuga og jákvæðni hennar – það sogast allir í stemninguna. Bókhneigður innipúki sem breyttist í félagsmálafrömuð A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.