Fréttablaðið - 18.08.2007, Síða 80
Dönsku hönnuðirnir Naja Munthe
og Karen Simonsen sýndu hönnun
sína á nýafstaðinni tískuviku í
Kaupmannahöfn. Þær hanna undir
nafninu Munthe Plus Simonsen og
stofnuðu fyrirtæki sitt árið 1994.
Sumarlína þeirra fyrir árið 2008
vakti athygli í Kaupmannahöfn og
þótti gagnrýnendum hún æði
fögur. Þær sóttu áhrif í rómant-
íska tíma en blönduðu þeim áhrif-
um við harðari línur, slettu af átt-
unda áratugnum og örlitlum
glamúr.
Fötin voru afar klæðileg, mikið
af léttum kjólum, buxum með háu
mitti og fallegum jökkum. Efnin
voru silki, nælon, bómull og þunnt
leður. Litapallettan fór um víðan
völl; svart, hvítt, skærbleikt, app-
elsínugult, fjólublátt, eiturgrænt
og mjúkir gráir tónar.
Föt frá Munthe Plus Simonsen
eru seld í búðum um allan heim og
meðal annars í Bretlandi, Banda-
ríkjunum, Rússlandi og Frakk-
landi og fyrirtækið rekur verslan-
ir í Kaupmannahöfn, Árósum,
Stokkhólmi og Reykjavík. Sú síð-
astnefnda er á Vatnsstíg 3 og
eflaust er nú hægt að finna þar
fallegar haustvörur.
Rómantísk hönnun frá Danmörku