Fréttablaðið - 18.08.2007, Side 81
Forynja nefnist ný búð sem Sara
María Eyþórsdóttir opnar í dag en
Sara er oftast kennd við búðina
Nakta apann sem hún rekur einn-
ig. Í Forynju verður margt spenn-
andi í boði og þar á meðal heimilis-
vörur eins og koddar og rúmföt
sem hönnuð eru af Söru og hennar
aðstoðarteymi. „Það verður opnun
hérna í dag, tónlistaratriði og létt-
ar veitingar í boði,“ segir Sara en
nýja búðin er í Tryggvagötu 16,
þar sem verslunin Má Mí Mó var
áður til húsa.
„Við verðum með okkar eigin
hönnun eins og hefur verið í
Nakta apanum auk nýju heimilis-
varanna. Einnig verðum við með
barnaföt frá hönnuðunum Önnu
Rún og Signýju sem báðar eru
útskrifaðar úr Listaháskóla
Íslands. Svo verðum við með
skartgripi frá okkur úr plexigleri
en það er á stefnuskránni að bæta
silfurskartgripum við.“
Nakti apinn hefur vakið athygli
fyrir líflega innanhússhönnun og
segir Sara Forynju líka ætla að
taka á sig hressilega mynd.
„Í þessari búð er markhópurinn
eldri svo hún verður aðeins öðru-
vísi. Það er ekki ennþá komin
mynd á hana, ætli það gerist ekki
bara síðasta daginn.“
Búðin opnar klukkan sex og eru
allir velkomnir.
Fjölbreytt hönnun
í ForynjuBreskur
ljósmyndari
hefur verið
dæmdur til að
inna af hendi
140 klukku-
stunda samfé-
lagsþjónustu
fyrir að hafa
ráðist á Heather
Mills, fyrrver-
andi eiginkonu
Bítilsins Pauls
McCartney, og
reynt að taka af henni mynd.
Atvikið átti sér stað á neðan-
jarðarlestarstöð 5. júlí á síðasta
ári. Ljósmyndarinn kom aftan að
Mills, greip um öxl hennar og
sneri henni við til að smella af
henni mynd. Var henni ekki
skemmt og höfðaði mál gegn
honum.
Mills vann
dómsmál
Vandræðagemlingurinn Amy Winehouse
er komin í meðferð vegna drykkju- og
eiturlyfjavandamála sinna og hefur því
frestað fyrirhuguðum tónleikum sínum,
á V Festival í Bretlandi og Rock en Seine-
hátíðinni í Frakklandi.
„Amy Winehouse hefur frestað öllum
tónleikum sínum í þessum mánuði af
heilsufarsástæðum,“ sagði talskona
hennar. „Fjölskylda hennar hefur beðið
fjölmiðla um að fá ró og næði af þess-
um sökum.“
Winehouse, sem er 23 ára, vann Brit-
verðlaunin í febrúar sem besta söngkon-
an. Sló hún í gegn með fyrstu plötu sinni,
sem hafði m.a. að geyma lagið Rehab.
Hún hefur verið mikið í sviðsljósinu
vegna sukksams lífernis og óttast margir
um heilsufar hennar. Í síðustu viku var
hún lögð inn á sjúkrahús vegna „alvar-
legrar ofþreytu“, eins og útgáfufyrirtæki
hennar lét hafa eftir sér. Herma fregnir
þó að hún hafi verið lögð inn vegna
ofneyslu á áfengi og öðrum vímuefnum.
Blake Fielder-Civil, eiginmaður
Winehouse, hefur viðurkennt að hún eigi
við vandamál að stríða.
„Þetta hefur verið erfiður tími fyrir
mig og Amy. Staðreyndin er samt sú að
við erum ennþá saman og ætlum aftur á
þennan stað í kvöld,“ sagði hann og átti
þar við meðferðarheimilið. „Aðalatriðið
er að mér og Amy líður betur. Ekki hafa
neinar áhyggjur því hún fær góða
umönnun. Hún er staðráðin í að ná heils-
unni aftur.“
Winehouse hefur verið tilnefnd sem
besti nýliðinn og sem söngkona ársins á
MTV-verðlaunahátíðinni sem verður
haldin í byrjun september.
Ef allt gengur að óskum fer hún síðan
í tónleikaferð um Norður-Ameríku í
næsta mánuði og um Evrópu í október.
Winehouse í vandræðumTenórinn Garðar Thor Cortes hefur
þotið upp klassíska vinsældalistann
í Bretlandi á ný eftir að smáskífan
með laginu Hunting high and low,
sem norsku strákarnir í
A-ha gerðu frægt á árum
áður, kom út þar ytra fyrir
tveimur vikum. Garðar
stökk aftur upp í 2. sæti
listans fyrstu vikuna eftir
útgáfu smáskífunnar og
er sem stendur í 3. sæti
listans.