Fréttablaðið - 18.08.2007, Page 89
Sjónvarpsstöðin Sýn
hefur þegar sýnt 21 leik í beinni
útsendingu úr Landsbankadeild
karla í sumar og flestir þeirra
hafa verið miklir markaleikir og
mikil skemmtun fyrir áhorfend-
ur.
Það hafa komið 73 mörk í beinni
útsendingu sem gera 3,5 mörk að
meðaltali í leik en í aðeins fimm
leikjum af 21 hafa mörkin verið
færri en þrjú. „Við byrjum tíma-
bilið á því að sýna frá öllum liðun-
um og síðan metum við það hvaða
leikir eru stærstir fyrir okkar
áskrifendur. Við höfum verið
mjög heppnir í ár því allir þessir
leikir sem við höfum valið hafa
verið frábærir. Við höfum verið
að sýna frá fleiri leikjum því við
höfum aukið fjölda útsendinga á
hverju ári og það hefur komið
mjög vel út,“ segir Hilmar Björns-
son, sjónvarpsstjóri Sýnar, sem
segir það oftast segja sig sjálft
hvaða leikir séu valdir.
„Við vorum sem dæmi með
umdeilda leikinn á milli ÍA og
Keflavíkur. Þá vorum við að
hugsa um það að Guðjón var hjá
Keflavík, það væri rígur á milli
þessara félaga og kveikjuþráður-
inn því dálítið stuttur,“ nefnir
Hilmar um leik sem innihélt færri
mörk en meðaltalið en bauð engu
að síður upp á mikla skemmtun.
Það hefur hins vegar ekki vant-
að mörkin að undanförnu því það
hefur komið 21 mark í síðustu
fjórum leikjunum á Sýn og Hilm-
ar segir form og aðstæður spila
þar stórt hlutverk.
„Þetta er besti tíminn, leik-
menn eru komnir í form og vell-
irnir eru orðnir góðir,“ segir
Hilmar en hann er almennt
ánægður með fótboltann í sumar.
„Boltinn hefur verið góður í
sumar og leikirnir sem ég hef séð
fyrir utan þá sem hafa verið í
beinni hafa verið fínir fótbolta-
leikir,“ segir Hilmar sem ætlar að
sýna leik Fylkis og FH í næstu
umferð.
Markaveisla í leikjum Sýnar
Varnarmaðurinn Sol
Campbell og markvörðurinn
David James, gömlu kempurnar í
liði Portsmouth, voru í gær valdir
í enska landsliðið á nýjan leik.
Enska liðið mætir því þýska í
vináttuleik á miðvikudaginn og
hefur Steve McLaren valið stóran
hóp, alls 28 leikmenn. Campbell
og James hafa ekki komið við
sögu hjá enska liðinu frá því að
McLaren tók við stjórn þess eftir
HM á síðasta ári.
Athygli vekur að McLaren
velur Steven Gerrard í hópinn,
þrátt fyrir beiðni frá Rafa
Benitez, þjálfara Liverpool, um
að hlífa honum vegna tábrots. Þá
er John Terry í hópnum þótt hann
hafi lítið spilað að undanförnu,
sem og David Beckham. Einn
nýliði er í hópnum, Steven Taylor
hjá Newcastle.
Campbell og
James valdir
Atvinnukylfingurinn Birgir
Leifur Hafþórsson komst ekki í
gegnum niðurskurðinn á skandín-
avíska meistaramótinu í golfi sem
nú stendur yfir í Stokkhólmi.
Birgir Leifur lék á alls sjö
höggum yfir pari á fyrstu
tveimur hringjunum og var
nokkuð langt frá því að komast
áfram.
Birgir Leifur lék á tveimur
höggum yfir pari í gær en hann
náði sér alls ekki á strik á fyrsta
hringnum á fimmtudag, lék þá á
fimm höggum yfir pari. Birgir
Leifur fékk tvo fugla í gær en
fjóra skolla og lék því 12 holur á
pari.
Komst ekki
áfram í Svíþjóð
TÓNLISTIN ÚR MYNDINNI KOMIN Í VERSLANIR