Fréttablaðið - 18.08.2007, Síða 95

Fréttablaðið - 18.08.2007, Síða 95
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Magnús Rúnar Magnússon „Það er í anda bankans að fara ótroðnar slóðir og þetta á eftir að gera umhverfið í nýja húsinu skemmtilegra,“ segir Svali Björgvinsson, framkvæmda- stjóri starfsmannasviðs Kaup- þings. Farið er að sjá undir lok framkvæmdanna við við- byggingu höfuðstöðva bank- ans í Borgartúni og mun hluti nýju bygg- ingarinnar verða tekinn í notkun af starfsmönnum um helgina. Óhætt er að fullyrða að nýja byggingin sé afar glæsileg á að líta og þá ekki síður innandyra. Gegnsæ fundar- herbergi sem virðast hanga niður úr lofti byggingarinnar vekja þar sérstaka athygli en ekki er vitað til þess að þau eigi sér hliðstæðu hér á landi. „Við köllum þetta fljúgandi fundarherbergin,“ segir Svali en um er að ræða alls sex fundarherbergi, 10-15 fer- metrar á stærð, sem hengd eru upp í loft með þunnum járn- stútum. Veggir herbergjanna eru úr gleri en af eðlilegum ástæðum er gólfflöturinn það ekki. Fundar- herbergin líta því út eins og stór glerkassi sem nánast svífur í lausu lofti, en 40 sentímetra langar brýr tengja þau við skrifstofuganginn. „Hluti af hugsuninni á bak við herbergin er að nýta plássið sem best en við vildum einnig prófa eitthvað sem enginn annar hefur gert,“ segir Svali og bætir við að fljúgandi fundarherbergin setji sannarlega svip sinn á höfuðstöðv- arnar. „Hvað burðarþol varðar er þetta mikið afrek og hönnunin er einstök. Við hlökkum mikið til að taka herbergin í notkun,“ segir Svali. Leikkonurnar Elma Lísa Gunnars- dóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir og María Heba Þorkelsdóttir hafa gramsað í geymslum og safnað saman dóti sem þær munu selja á menningarlegum flóamarkaði í dag. „Þetta er kynngimagnaður flóamarkaður,“ sagði Elma Lísa dularfull. „Við erum með fullt af gersemum,“ bætti hún við. Á meðal fjársjóðanna eru föt, glingur, skór, töskur og eitthvað af barnafötum. Elma Lísa er enginn nýgræðing- ur í flóamörkuðum og hefur stund- um staðið vaktina í markaðnum sem fram fer í Sirkusportinu. „Ég er komin með lager af dóti. Þetta er hins vegar afmeying þeirra Eddu og Maríu,“ sagði hún og hló við. „Það er gaman að vera margar saman í þessu, það er ekkert skemmtilegt að vera einn,“ bætti hún við. Þar sem dagurinn er helgaður menningu í Reykjavík, fær flóa- markaðurinn sömu yfirskrift. „Okkur fannst við hæfi að hafa þetta á menningardaginn, svo við getum hjálpað fólki að velja menn- ingardressið,“ sagði Elma Lísa. „Við tökum vel á móti því og bjóð- um upp á stíliseringu líka, fólki að kostnaðarlausu,“ bætti hún við. Fyrir utan menningarbraginn sem leikkonurnar þrjár ljá markaðnum, verður einnig eitthvað um óvæntar uppákomur. „Það verður mystísk- ur trúabador á staðnum, og spá- kona að spá í bolla. Svo verðum við auðvitað með heitt á könnunni,“ sagði Elma Lísa, sem ekki vildi ljóstra upp um fleira. Markaðinn menningarlega er að finna í FÍL húsinu að Lindargötu 6. Hann verður opinn frá hádegi til klukkan 18. Leikkonur stílisera flóamarkaðsgesti Örlygur Steinar Arnalds, níu ára, er fantagóður breikari. Í vikunni vakti hann athygli fyrir frammi- stöðu sína á breiksýningu í Kringlunni, enda yngsti breikar- inn í hópnum sem þar kom fram. „Hann byrjaði mánuði fyrir átta ára afmælið sitt,“ útskýrði móðir hans, Anna Sigríður Örlygsdóttir, sem segir áhugann hafa verið til staðar frá þriggja, fjögurra ára aldri. „Aldurstakmarkið í Kram- húsinu var hins vegar átta ár,“ sagði hún. Örlygur segir breik hafa orðið ofan á, þar sem að aðrar íþróttir höfði ekki til hans. „Mér finnst fótbolti og þannig ekkert skemmtilegt,“ sagði hann. Hann kveðst ekki eiga neitt uppáhalds- spor í breikinu, sem samanstend- ur af hreyfingum og sporum sem flesta óar við að reyna að fram- kvæma. „Mér finnst bara allt gaman. Sum sporin eru erfið, en ég æfi mig líka heima,“ sagði hann. Metnaðurinn er á sínum stað. „Ég byrjaði líka í fimleikum til að styrkja mig í breikinu,“ sagði Örlygur. Breikið sótti Örlygur fyrst hjá Natöshu Monay Royal í Árbæjar- þreki, en síðar í Kramhúsinu. Natasha hefur staðið fyrir keppn- um í breiki, og Örlygur hreppti annað sætið í fyrra. Hann hefur þó breikað víðar en í Kringlunni. „Örlygur breikaði á Spáni í sumar. Á einum veitinga- staðnum var reglulega danssýn- ing með breikatriðum, og hann var tekinn upp í þau. Hann var bara í sjálfboðavinnu,“ bætti hún við. Örlygur, ætlar að halda áfram í breikinu, mun breika fyrir fram- an Háskóla Íslands í dag, þar sem Latabæjarhlaupið fer fram. Níu ára breikari með mikinn metnað Auglýsingasími – Mest lesið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.