Fréttablaðið - 19.09.2007, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 19.09.2007, Blaðsíða 48
Af eðlislægri forvitni hef ég stundum leiðst út í tilraunir sem eiga að miða að bættri heilsu og betra lífi. Úthaldið hefur nú reyndar verið minna en trúgirnin svo enn sem komið er sitja fáar sérþarfir eftir. Svona tveimur dögum eftir kaup á rándýrri spír- úlínu er ég til dæmis búin að stein- gleyma henni og kemst þar af leið- andi aldrei að því hvort hún virkar eins vel og haldið er fram. ár hef ég með andakt fylgst með fólki – sem komið er á æðra plan í leitinni að tilgangi lífs- ins – stunda reglubundna föstu. Það þýðir að í marga daga sam- fleytt neita þessar staðföstu mann- eskjur sér um annað en fljótandi grænmeti, vatn og grænt te. Til- gangurinn er einfaldlega að hreinsa líkamann af alls kyns úrgangi og fylla af ferskri orku. Þetta hljómar alveg nógu einfalt til að jafnvel ég skilji og auk þess eru sannfærandi frásagnir fólks- ins af dásamlegri líðan í hungur- verkfallinu. uppástunga vinkonu minnar á dögunum um sameiginlega föstu fannst mér alveg gráupplögð. Vegna þess að hún hefur einbeitt- ari sjálfsaga tók hún að sér fræði- lega kaflann, las sér til og afhenti mér svo glósur til að styðjast við í meinlætinu. Hugmyndin varð reyndar strax dálítið súrari þegar ég sá að daglegar stólpípur væru mikilvægar í ferlinu. Mögulegar aukaverkanir væru svo andfýla, höfuðverkur og svimi. Mín prívat aukaverkun til viðbótar verður svo átakanleg geðvonska, sem er persónuleikabrestur sem verður því miður mjög áberandi þegar ég er svöng. er klukkan 11.32 að morgni fyrsta sultardagsins og mér er óglatt af hungri. Það sem af er dagsins hef ég drukkið frekar vondan djús sem ég pressaði sjálf og horfði öfundsjúk á meðan á annað heimilisfólk úða í sig rúnnstykkjum og dýrindis kaffi. Ég fékk hins vegar marga bolla af hrútleiðinlegu grænu tei og er nú stútfull af andoxunarefnum og sjálfsvorkunn. Í blöðum dagsins má lesa að hundruð bíða eftir offitumeðferð og dramatískar offituaðgerðir eru nú líka gerðar á börnum. Átröskunin á sér margar myndir. Kannski vegna þess að öll hugsun mín er í augnablikinu ríg- bundin við ýmsar kræsingar finnst mér á dularfullan hátt við öll vera systkin í þjáningunni. Sultur The pursuit of perfection RX 350 sameinar glæsileika, fágun, gríðarmikið afl og einstakt öryggi. Hann er athvarf frá álagi hinna virku daga. Hann er hrein upplifun þar sem landið hættir að setja þér takmörk og víður sjóndeildarhringur opnar þér nýja möguleika. Komdu og gefðu Lexus RX 350 færi á að uppfylla ýtrustu kröfur sem þú gerir til lúxussportjeppa. Niðurstaðan verður gagnkvæm virðing milli þín og RX 350, bíls sem er smíðaður til að standa undir ströngustu væntingum. Verð frá: 5.520.000 kr. Nýbýlavegi 6 Kópavogur Sími 570 5400 www.lexus.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /T O Y 3 80 43 0 8/ 07 SJÓNDEILDARHRING ÞÚ ÖÐLAST NÝJAN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.