Fréttablaðið - 20.09.2007, Qupperneq 1
Fimmtudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í júlí 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
38%
B
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
D
V
37%
69%
5%
D
VV
D
V
DD
nýir bílarFIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 Umhverfisvænar vélar Allir Saab-bílarnir fást nú með etanólvél.
BLS. 2
Afar ánægð með nýja
leðurjakkann sinn
Umhverfisvænt
í fyrirrúmi
ÚTS
ALA
ÚTS
ALA
ÚTSALA ÚTSALA
BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag
þegar þú átt gott skilið
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
-
0
7-
08
82
Nýtt
bragð!
Seðlabanka Íslands og
Kauphöllina greinir á um hvernig
túlka beri lög um rafræna
eignarskráningu verðbréfa.
Samkvæmt heimildum blaðsins
túlkar Seðlabankinn lögin sem svo
að honum einum sé heimilt að
„taka við innlánum frá reiknings-
stofnunum sem aðild eiga að
verðbréfamiðstöð og annast efnda-
lok viðskipta þeirra með verð-
bréf“ eins og það er orðað í
lögunum. Túlkun Kauphallar var
hins vegar sú að þótt Seðlabankan-
um væri skylt að annast þá
þjónustu væri sú kvöð ekki lögð á
fjármálastofnanir að verða að
leita til bankans.
Greinir á um
túlkun laga
Guðlaugur Þór Þórð-
arson heilbrigðisráðherra ætlar
að leggja niður framkvæmda-
nefnd um byggingu nýs háskóla-
sjúkrahúss og færa verkefnið
annað. Þetta staðfesti Guðlaugur
Þór við Fréttablaðið í gærkvöld
en vildi að öðru leyti ekki tjá sig
um málið.
Alfreð Þorsteinsson, sem hefur
verið formaður, hættir þar af leið-
andi afskiptum af byggingu
sjúkrahússins. „Ég ræddi við ráð-
herra í síðustu viku og hann til-
kynnti mér að hann ætlaði sér að
gera breytingar. Ég veit ekki í
hverju þær felast. En vinnan í
nefndinni hefur gengið vel og er á
áætlun.“
Áætlað er að heildarkostnaður
við byggingu nýs sjúkrahúss
verði á milli 50 og 60 milljarðar
króna. 490 milljónir hafa þegar
verið lagðar til verksins, 1.500
milljónir renna til þess á næsta
ári og svo fjórir milljarðar árlega
næstu ár á eftir.
Fyrsta áfanga á að vera lokið
2013 og framkvæmdum að fullu
lokið 2018.
Leggur Alfreðsnefndina niður
Tveimur mönnum var
bjargað eftir að bátur þeirra
steytti á skeri út af Álftanesi á
tíunda tímanum í gærkvöldi.
Mennirnir slösuðust ekki við
strandið.
Björgunarsveitarmenn fóru á
þremur björgunarbátum á
strandstað. Þegar Fréttablaðið fór
í prentun um klukkan 23 í
gærkvöldi voru björgunarmenn
komnir um borð í bátinn og töldu
þeir líklegt að hægt yrði að draga
hann á flot, enda hefði enginn leki
komið að bátnum.
Tveimur mönn-
um bjargað
Um hundrað björgunar-
sveitarmenn leituðu fram eftir
kvöldi að manni sem féll í Sogið til
móts við bæinn Bíldsfell í gær.
Leitin hafði engan árangur borið
þegar Fréttablaðið fór í prentun.
Leit var hætt í ánni og úr lofti um
hálf tíu vegna myrkurs en leita
átti fram eftir nóttu með hundum.
Tildrög slyssins voru þau að
feðgar við veiðar, 26 og 53 ára,
höfðu vaðið djúpt út í ána þegar
sonurinn missti fótanna. Faðirinn
reyndi að koma honum til bjargar
en flaut þá sjálfur upp.
Sá þriðji í hópnum, bróðir föður-
ins, óð í land eftir aðstoð. Veiði-
menn á vestari bakka árinnar
settu út bát og björguðu syninum
úr ánni, en faðirinn fannst ekki.
Árni Þorvaldsson var einn
þeirra sem kom syninum til hjálp-
ar. „Hann náði að halda sér á floti
meðan við kölluðum út bát sem
var á Bíldsfelli rétt hjá,“ segir
hann. „Þetta var orðið mjög tæpt
þegar við náðum drengnum upp,
hann gat varla staðið í fæturna. Þá
hafði hann verið í ánni í klukku-
tíma eða svo.“
Árni segir botninn þar sem feðg-
arnir stóðu vera lausan í sér, og
það hafi trúlega valdið því að þeir
misstu jafnvægið. „Áin er ekki
mjög straumhörð þar sem þeir
voru en hins vegar allt að tveggja
metra djúp.“
Alls tóku níu björgunarsveitir
þátt í leitinni. Hópar gengu með-
fram árbökkunum, tólf bátar voru
notaðir og þyrla Landhelgisgæsl-
unnar leitaði úr lofti. Kafarar leit-
uðu einnig mannsins. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni barst
tilkynningin um slysið klukkan
fimm, og voru björgunarsveitir
samstundis kallaðar út.
Sonurinn var fluttur á sjúkra-
hús í Reykjavík en var ekki talinn
í lífshættu. Hann var þó kaldur og
hafði fengið vatn ofan í sig.
Umfangsmikil leit
að manni í Soginu
Hátt í hundrað björgunarsveitarmenn leituðu manns á sextugsaldri sem féll í
Sogið síðdegis í gær. Sonur hans, sem einnig féll í ána, bjargaðist við illan leik.
Stjórnvöld í Súdan ætla
að höfða mál á hendur Amnesty
International fyrir ærumeiðingar
vegna ásakana um pyntingar.
Samtökin segja að átta menn,
sem sakaðir eru um að hafa
skipulagt valdarán, hafi verið
beittir hörðu ofbeldi. Þeir eru
sagðir stjórnmálamenn og
fyrrverandi yfirmenn úr hernum.
Stjórnvöld hafa ekki gefið út
ákærur né birt gögn sem benda til
sektar mannanna.
Neita alfarið sök