Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 4
www.lyfja.is - Lifið heil ÍS L E N S K A S IA .I S L Y F 3 89 96 0 9. 20 07 Acidophilus Bifidus + FOS Mjólkursýrugerlar, góðir fyrir meltinguna. Champignon DETOX + FOS og Spirulina Hreinsaðu líkamann – eyðir óæskilegri lykt. Milk Thistle DETOX Hreinsaðu líkamann að innan. Psyllium Husk Fibre Rúmmálsaukandi, gott fyrir meltinguna. 30% afsláttur af Vega vítamínum Meira en helmingur kvenna sem kusu í þingkosningun- um í vor kaus vinstriflokka, og hefur hlutfallið ekki verið hærra í áratugi, segir Einar Mar Þórðarson, stjórnmálafræðingur hjá Félagsvís- indastofnun Háskóla Íslands. Þetta er meðal niðurstaðna íslensku kosn- ingarannsóknar- innar, en Ólafur Þ. Harðarson, prófessor við Háskóla Íslands, hefur gert slíkar rannsóknir frá árinu 1983. Þar er kosningahegð- un landsmanna greind í síðustu sjö alþingiskosningum. „Það er athyglisvert að sjá að kvennafylgið hefur verið að færast til vinstri,“ segir Einar Mar. Í kosn- ingunum 2007 kusu 53 prósent kvenna vinstriflokka, en 35 prósent karla. Munurinn á kynjunum var 18 prósentustig, og hefur ekki verið meiri á þeim árum sem rannsókn- irnar ná til. Árið 1983 kaus svipað hlutfall karla og kvenna vinstriflokka, 42 og 43 prósent, en síðan hafa leiðir skil- ið, karlar styðja nú síður vinstri- flokka en fylgi kvenna við þá hefur aukist. Skýringarnar á mismunandi kosningahegðun kvenna og karla eru margvíslegar, segir Einar Mar. Svo virðist sem konur séu hallari undir sterkara ríkisvald og öflugt velferðarkerfi en karlar. „Fyrsta skýringin sem manni dettur í hug er að í íslensku samfé- lagi bera konur ennþá meiri ábyrgð á heimilum og börnunum,“ segir Einar Mar. Vinstri flokkarnir hafi einnig tekið jafnréttismálin upp á sína arma, og þegar konur sæki út á vinnumarkaðinn en virðist ekki njóta réttinda og launa á við karl- menn myndist eftirspurn eftir þeim sem tala rödd kvenna. Rannsóknir sýna einnig að konur eru hallari undir umhverfisvernd en karlar, og áhersla Samfylkingar og Vinstri grænna á umhverfismál hefur því höfðað frekar til kvenna en karla, segir Einar Mar. Helmingur kvenna kaus vinstriflokka Hlutfall kvenna sem kusu vinstriflokka komst í fyrsta skipti yfir 50 prósent í alþingiskosningum í vor. Heldur fleiri karlar kusu vinstriflokka en í kosningun- um 2003 en bilið milli kynjanna jókst engu að síður talsvert milli kosninga. Hagsmunasamtök kráareigenda í miðborginni voru stofnuð á fundi í gær. Tæplega hundrað manns mættu, segir Ragnar Ólafur Magnússon, eigandi skemmtistaðarins Óliver, sem situr í stjórn samtakanna. „Veitingahúsamenn ætla að styðja hver annan í þessu ferli sem hófst með orðum lögreglu- stjóra fyrir nokkrum dögum,“ segir hann. „Við ætlum að gæta hagsmuna okkar og eigna.“ Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, hefur sagst vilja stytta afgreiðslutíma skemmtistaða í miðbænum þannig að þeir loki klukkan tvö. Verja hagsmuni kráareigenda Meirihluti fjárlaga- nefndar Alþingis er sammála Rík- isendurskoðun um að mörg þeirra vandamála sem komu upp við endurnýjun Grímseyjarferju megi rekja til ófullnægjandi undirbúnings og skorts á form- festu þegar ákvarðanir um auka- verk voru teknar. Einnig að gerð kostnaðaráætlunar, útboðslýsing og eftirlit skuli hafa verið á sömu hendi. Meirihlutinn vill að reglur um flutning fjárheimilda milli verk- efna og milli ára verði gerðar skýrari en nú er og að þess verði gætt að kostnaður við endurbætur verði framvegis færður á stofn- kostnaðarliði en ekki sem rekstrar- framlög. Drög að skýrslu fjárlaganefnd- ar um málið voru lögð fram á fundi hennar í gær en þar sem stjórnar- andstaðan gat ekki fellt við sig við þau var afgreiðslu málsins frestað þar til í dag. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins vill stjórnarandstaðan beina sjónum að framkvæmda- valdinu en ekki því að reglur séu óskýrar. „Það náðist ekki samstaða um sameiginlega niðurstöðu og málið verður tekið upp á fundi á morgun [í dag],“ sagði Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Nefndin hefur haldið nokkra fundi um málið og fengið til sín gesti sem að því koma. Skýrari reglur og breytt verklag Lík konu fannst í bifreið á Nýja-Sjálandi fyrir utan heimili fjölskyldu þriggja ára stúlku sem fannst á lestarstöð í Ástralíu á laugardaginn eftir að faðir hennar hafði yfirgefið hana þar. Fréttavefur BBC greinir frá þessu. Lögregla vildi ekki staðfesta að líkið væri af 27 ára móður stúlkunnar en hafði áður lýst yfir áhyggjum af öryggi hennar þar sem tilkynningar um heimilisof- beldi höfðu áður borist frá þessu heimili. Lögregla leitar föðurins sem er kínverskur ríkisborgari. Lík fannst við heimili barnsins Öflug bílsprengja varð sjö manns að bana í Beirút, höfuðborg Líbanons, í gær. Sprengjan var ætluð Antoine Ghanem, 64 ára þingmanni sem hliðhollur er stjórnvöldum. Hann lést í sprengingunni. Ghanem er sá áttundi í röðinni af þekktum andstæðingum sýrlenskra stjórnvalda sem er myrtur í landinu frá árinu 2005. Líbanskur ráðherra sagði ljóst að verið væri að losa sig við þingmenn meirihlutans sem er andsnúinn stjórnvöldum í Sýrlandi. Yfir 20 manns særðust í árásinni. Líbanskur þing- maður myrtur Nefbrot, brotnar tennur, skurðir í andliti og fleiri meiðsl eru afleiðingar fjögurra líkams- árása. Málin hafa verið þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Í fyrsta málinu barði maður annan, þar sem hann sat í bíl, og nefbraut hann. Í næsta máli sló maður annan með hnefahöggi, þannig að brotnaði upp úr fjórum tönnum, fórnarlambið fékk glóð- arauga og sár í munn. Þriðja ákæran er vegna rúm- lega tvítugs manns sem sló annan með glasi. Sá fékk fjölmarga skurði í andlit. Í fjórða málinu réðst maður á sambýliskonu sína og slasaði hana talsvert. Nefbrot, sár og brotnar tennur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.