Fréttablaðið - 20.09.2007, Page 8

Fréttablaðið - 20.09.2007, Page 8
Danska lögreglan hefur fundið gullhornin tvö sem stolið var á mánudaginn af safni í bænum Jelling á Jótlandi. Tvær konur og tveir karlar voru handtekin í gær, grunuð um aðild að ráninu. Gullhornin eru tveggja alda gamlar eftirlíkingar af gullhorn- um frá bronsöld. Upprunalegu hornunum var stolið árið 1802. Þar var að verki skuldugur gullsmiður, sem bræddi þau og steypti úr þeim falsmyntir. Hann náðist. Gullhornin eru venjulega geymd í Þjóðminjasafninu í Kaupmannahöfn, en höfðu verið lánuð á víkingasýningu í Jelling, litlu þorpi sem áður var höfuð- staður norrænna manna í Danmörku. Stolnu gull- hornin fundust Jeppabifreið var ekið á stein fyrir framan verslunarmiðstöð í Hafnarfirði í fyrrinótt. Tveir voru í bílnum en ekki liggur fyrir hvor ók. Þeir eru grunaðir um að hafa verið undir áhrifum vímuefna. Lögregla segir að hefði bíllinn ekki lent á steininum sé líklegt að hann hefði endað inni í verslunarhúsinu. Það sem af er vikunni hefur ekki liðið sú nótt að ekki hafi ökumaður verið tekinn úr umferð, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna eða lyfja. Ökumaður í vímu ók á stein Hvaða fyrirtæki þurfti að fresta skráningu hlutafjár í evrum á dögunum? Hver segist hafa verið rekinn úr knattspyrnuliði FH eftir viðtal við Fréttablaðið? Hvað heitir ný heimildar- mynd Sigur Rósar? Aukinn áhugi á lífrænu eldsneyti eins og etanóli sem orkugjafa fyrir bíla, og ríkisstyrkir til framleiðslu á etanóli, hafa leitt til umtalsverðra verðhækkana á matvælum, að því er fram kemur í nýlegri skýrslu Efnahags- og þróunarsamvinnu- stofnunar Evrópu (OECD). Ávinningur af notkun lífræns eldsneytis á bíla er ekki nægur til að gera það að fýsilegum valkosti, segir í skýrslu OECD. Áhersla á etanól-framleiðslu geti valdið skorti á matvælum, en etanól er meðal annars framleitt úr maís. Lagt er til að ríkisstyrkir til framleiðslu etanóls verði felldir niður, og reynt að hemja kolefnisút- blástur með því að skattleggja útblásturinn. Áhugi á lífrænu eldsneyti mun ennfremur setja pressu á enn frekara skógarhögg á þeim svæðum sem henta til ræktunar, og þar með gæti ávinningur umhverfisins af þessu umhverfisvænna eldsneyti orðið minni en til stóð. Bent er á það í skýrslu OECD að aðeins ákveðnar framleiðsluaðferðir etanóls séu vænlegar, í öllum tilvikum séu aukaafurðir sem til falli nýttar, svo sem sykurreyr í Brasilíu. Aðrar aðferðir gætu þegar upp er staðið haft meiri umhverfisáhrif en brennsla bensíns og olíu. Etanól ekki fýsilegur kostur Ráðherra málefna fyrrum Austur-Þýskalands varaði í gær við því að hægri- öfgum yxi ásmegin í sam- bandslöndunum fimm sem áður tilheyrðu Austur-Þýska- landi. Ónóg reynsla af lýðræði og gagnrýninni kennslu á þýskri sögu hefur leitt til „skorts á grundvallar lýðræðissannfær- ingu“ og „hægriöfga-viðhorf- um“ sem hefur gert hægriöfga- flokkum kleift að festa rætur að sögn ráðherrans, Wolfgangs Tiefensee. Mikil aukning hefur orðið í árásum tengdum hægri öfgum í Þýskalandi undanfarið, þar á meðal hjá nýnasistum, og er hægriöfgaflokknum NPD kennt um. Varar við hægri- öfgum í austri „Lögmannafélagið skortir heimildir til að grípa inn í mál sem þessi,“ segir Ingimar Ingason, framkvæmdastjóri Lögmannafélags Íslands, um málefni lögfræðings sem grunaður er um að hafa leitað á börn. Í fréttaskýringaþættinum Kompási á Stöð 2 í fyrrakvöld var fjallað um mál lögfræðings sem grunaður er um að hafa brotið kynferðislega á börnum. Réttað verður í máli mannsins í næstu viku en á meðan mál hans hefur verið í rannsókn hefur hann sjálfur varið aðra menn sem grunaðir eru um barnaníð og meðal annars setið við skýrslu- töku á barni í Barnahúsi. „Þetta er slæm staða sem við höfum sem betur fer ekki lent í áður. Ég vil samt að allt verði gert til að koma í veg fyrir að svona endurtaki sig,“ segir Ingimar. Hann segir að eins og staðan sé nú sé ekkert ákvæði sem gefi heimild til að grípa inn í ef svipaðar aðstæður og þær sem Kompás fjallaði um koma upp. Erfitt geti verið að útfæra slíkt ákvæði en nauðsynlegt sé að reyna að tryggja að siðferðislegir árekstrar komi ekki upp séu menn grunaðir um glæpi eða ákærðir fyrir þá.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.