Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 32
20. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR2 fréttablaðið nýir bílar
Saab hefur boðið upp á etan-
ól-bíla í Svíþjóð síðastliðin tíu
ár. Núna eru bílarnir komnir til
Íslands og í vikunni var opnuð
fyrsta etanól-eldsneytisstöðin.
„Saab hefur mikla sérstöðu því
allar tegundir bílanna fást með
umhverfisvænum etanól-vélum
sem hlíta svokallaðri „Bio Power“-
tækni. Saab-framleiðendurnir eru
fyrst og fremst flugvélafram-
leiðendur og búa því yfir mörg-
um tækninýjungum sem nýtast
við þróun og framleiðslu á um-
hverfisvænni bílum,“ segir Loft-
ur Ágústsson, markaðsstjóri hjá
Ingvari Helgasyni, sem flytur inn
Saab-bílana á Íslandi.
Hann segir Saab hafa byrj-
að með etanól-vélarnar í Svíþjóð
fyrir um tíu til fimmtán árum og
nú eru þær komnar til Íslands.
„Framboð af Saab með etanól-
vélum eru okkar framlag til um-
hverfisverndar. Eina vandamálið
er bara að það er aðeins ein stöð
hérlendis, sem var opnuð hjá Olís í
Álfheimum í Reykjavík í vikunni.
Þar er hægt að kaupa þetta
eldsneyti og okkar von
og trú er þess vegna
að stjórnvöld hvetji
fólk til að fjárfesta
í umhverfisvæn-
um bifreiðum, lækki
tolla og sjái til þess
að gott framboð
verði á umhverfis-
vænu eldsneyti. Að-
gengi að eldsneytinu er forsenda
fyrir breytingum til frambúð-
ar,“ segir Karl Steinar Óskarsson,
sölustjóri hjá Ingvari Helgasyni.
„Bio Power“-vélar eru smíðað-
ar til notkunar á fjölþættu og um-
hverfisvænu eldsneyti. Þær geta
notað bæði venjulegt bensín og
svokallað náttúruetanól sem í dag-
legu tali er kallað E85 vegna hlut-
fallanna sem er áttatíu og fimm
prósent hreint etanól blandað við
fimmtán prósent af hefðbundnu
bensíni.
Vélarnar draga úr útblæstri
koltvíoxíðs sem nemur allt að sjö-
tíu prósentum miðað við bíla með
hefðbundnar bensínvélar og að
sögn Karls Steinars sparar meðal-
ökumaðurinn rúmlega þúsund
lítra á ári.
„Fólk er gríðarlega forvitið um
aðra eldsneytisvalkosti og vill
gjarnan leggja sitt af mörkum til
náttúruverndar. Skoðanir öku-
manna eru hins vegar lítið mót-
aðar og þeir eru enn að gera upp
við sig hvers konar tegund henti.
Tvinnbíll, etanól-bíll og svo fram-
vegis,“ segir Loftur sem bætir
við að hestöflin verði jafn
mörg og aksturseiginleik-
ar jafn góðir með tilkomu
etanól-vélanna.
„Eina breytingin sem
þarf að gera á vélbúnað-
inum sjálfum eru ending-
arbetri ventlar og ventla-
sæti, auk þess sem þarf að bæta
eldsneytiskerfið til að þola betur
náttúruvæna etanólið, þar á meðal
sjálfan eldsneytistankinn, dælur,
eldsneytislagnir og tengi. Einnig
geta ökumenn sem aka Saab með
„Bio Power“-vélum einfaldlega
notað bara bensín ef E85 náttúru-
etanól er ekki tiltækt,“ segir Loft-
ur.
rh@frettabladid.is
Nýir Saab fáanlegir
með etanól-vélum
Karl Steinar Óskarsson, sölustjóri hjá Ingvari Helgasyni, við Saab 9-5 með etanól-vél.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Í nóvember býður Hekla
upp á umhverfisvænni
Audi þegar A3 sportsback
(e) kemur til landsins.
„Hingað til hefur verið hægt að
fá Audi A3 sportsback, en ekki
þennan sérstaklega umhverf-
isvæna. Núna er hann á leið-
inni og við nafnið bætist e, sem
stendur fyrir environmental
eða umhverfisvænn,“ segir
Guðmundur Ingi Gústavsson,
vörustjóri Audi, hjá Heklu-um-
boðinu.
Nýi Audi-inn uppfyllir
mengunarstaðla Evrópusam-
bandsins sem taka gildi árið
2012 og að sögn Guðmundar
er undirbúningur þegar hafinn
hjá Audi.
„Fólk sýnir mengunarvörn-
um mikinn áhuga um þessar
mundir og sérstaklega vegna
aukinnar umræðu í fjölmiðl-
um. Nýi Audi-inn nær lágmarki
fyrir þessa nýju staðla, sem
eru hundrað og nítján grömm
af koltvísýringsútblæstri að
meðaltali fyrir hvern ekinn
kílómetra og fær þar af leið-
andi frítt í níutíu mínútur í
stöðumæla hjá Reykjavíkur-
borg,“ segir Guðmundur sem
mun afhenda þeim sem tryggja
sér bílinn klukkuskífu sem er
skráð á númer bílsins og geng-
ur í stæði borgarinnar.
Ásamt umhverfisvæna A3
sportsback er einnig væntan-
legur Hybrid-bíll, eða tvinn-
bíll sem kemur til landsins
seinni hluta árs 2008. Sá er að
sögn Guðmundar ólíkur öllum
öðrum tvinnbílum. „Rafgeym-
irinn gerir þennan bíl frá-
brugðinn öllum öðrum tvinn-
bílum því það er ekkert nikkel
í honum. Sá málmur er eitt
eitraðasta efni sem til er og
það er bæði kostnaðarsamt og
erfitt að brjóta það niður og
eyða því,“ segir Guðmundur og
bætir við: „Nýi Audi A3 sports-
back e er svo með sótagnasíu
eins og allir dísilbílarnir okkar,
sem hefur mikið að segja fyrir
hreinni útblástur og þar af leið-
andi umhverfið í heild.“
Mengunarvarnir
alltaf að aukast
Nýir bílar njóta sín best þegar
þeir eru hreinir og fínir.
Á veturna er aukið álag á lakkið,
vegna tjöru, bleytu og frosts ásamt
salti á vegum. Og þess vegna er
mikilvægt að bóna bílinn vel.
Bónið gerir ekkert gagn á
óhreinum bíl og einnig borgar sig
að gera ráð fyrir þvotti og bóni
einu sinni í mánuði yfir vetrartím-
ann svo að bíllinn komi fallegur og
heill undan vetri.
Einnig er gott að þrífa bílinn vel
að innan og jafnvel bera vatns-
hrindandi efni á rúður. Þrífa rúðu-
þurrkur, dekk og felgur með tjöru-
hreinsi og smyrja þéttigúmmíin í
hurðunum til þess að hurðirn-
ar frjósi ekki fastar. Þetta þarf
síðan að endurtaka reglulega fram
á vor.
Bónað og fínt
Audi kemur með
tvinnbíl á næsta ári
með rafgeymi án
nikkels.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR