Fréttablaðið - 20.09.2007, Qupperneq 39
FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 9nýir bílar fréttablaðið
Vatnskassinn er ein af mikilvægustu líffærum
bílsins. Því þarf að huga vel að honum, sérstaklega
á þessum tíma árs þegar kalt er í veðri. Frostlögur-
inn gegnir þar þýðingarmiklu hlutverki og einfalt
er að láta fylgjast með frostþoli bílsins með því að
biðja um þá þjónustu á bensínstöðvum. En frost-
lögurinn ver líka innviði kælikerfisins fyrir tær-
ingu og ryði og því er nauðsynlegt að skipta öðru
hvoru alveg um á kassanum. Mismunandi frost-
lögstegundir geta líka þolað hvor aðra mjög illa og
dregið úr verndunarmætti blöndunar. -gun
Ver vatnskassa
skemmdum
Rannsóknir sýna að langflest umferðarslys, eða um
90 prósent, verða vegna mistaka ökumanna. Þessi
mistök verða vegna þess að ökumenn hafa ekki hug-
ann við aksturinn af ýmsum ástæðum. Þreyta og
syfja hafa oft áhrif.
Nú hefur Volvo kynnt búnað sem ætlað er að
sporna við syfju og athyglisbresti ökumanna. Þetta
er í fyrsta sinn sem búnaður af þessu tagi er í fólks-
bílum og nefnist hann „Driver Alert Control“. Þá
hefur Volvo einnig kynnt búnað sem skynjar þegar
bíllinn fer mjög nærri eða yfir akreinalínu án þess
að honum sé stýrt þangað. Þá varar bíllinn ökumann-
inn við. Þetta kerfi kallast „Lane Departure Warn-
ing“. Hægt verður að fá þennan búnað saman í einum
pakka sem nefnist „Driver Alert System“ eða viðvör-
unarkerfi fyrir ökumann. Kerfið verður fáanlegt í
lok þessa árs í Volvo S80, V70 og XC70. -hs
Ýtir við þreyttum ökumönnum
Volvo hefur kynnt búnað sem varar ökumann við.
Þegar fjárfest er í nýjum bíl þá
er eigandinn jafnan stoltur þegar
hann brunar á honum um göt-
urnar, splunkunýjum og glans-
andi. Óskar þess jafnvel að hann
geti haldist nýr og ferskur lengi á
eftir.
Því miður
eldist bíll-
inn og kíló-
metrafjöld-
inn eykst
jafnt og
þétt, ilm-
urinn af nýja bílnum
dofnar og loks er hann orðinn eins
og gamall vinur. Ýmislegt er hægt
að gera til þess að hjálpa bílnum
að vera eins og nýr og eitt af því
er að skipta reglulega um olíu og
síur.
Flestir bílaframleiðendur mæla
með því að skipt sé um olíu og
síur á átta til tíu þúsund kílómetra
fresti eða sex mánaða fresti miðað
við eðlilegan akstur en á vefsíð-
unni autorepair.about.com er
mælt með því að slíkt sé gert mun
oftar, eða á 4 til 5 þúsund kílómetra
fresti. Sé þetta gert frá því að bíll-
inn er alveg nýr verður vélin leng-
ur hrein og endist því betur. - sig
Viðhald vélar
Áður en sólelskandi aðdáendur
VW Polo teygja sig í sólvörn og
sólgleraugu ber að hafa í huga að
þessi ofursvali Polo blæjubíll er
enn bara hugmynd og líkan. Það
var blæjubílasérfræðingurinn
Karmann sem hannaði líkanið, en
bíllinn sýnir margar nýjungar sem
finna má í blæjubílum framtíðar.
Mest áberandi er bílþak með sól-
lúgu úr gleri, ef veðrið býður ekki
upp á að taka þakið alveg niður.
Pólóinn er einnig búinn Cabrio Ov-
erhead Protection System (COPS)
sem notar fasta rúlluslá aftan við
aftursætin. Þessi öryggisþáttur
styrkir bílinn nóg til að hægt sé að
leggja aftursætin niður og bætir
við mikilli hagkvæmni í þá tegund
bíla sem vanalega tekur ekki til-
lit til þess háttar rýmismöguleika.
Farangursgeymslan er einnig að-
gengilegri og stærri vegna snjalls
upprúllanlegs afturglugga. Að
innan er ferskur andvari tryggður
þótt veðrið sé annað úti, en hann
fæst gegnum fjögur rafleiðniljós
í fóðri þaksins, sem einnig skapa
umlykjandi birtu í bílnum.
Polo blæjubíll
Bíllinn er enn á hugmyndastigi.