Fréttablaðið - 20.09.2007, Síða 40

Fréttablaðið - 20.09.2007, Síða 40
 20. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR Ssang Yong Kyron og Chevrol- et Captiva fást báðir í Bílabúð Benna. Benedikt Eyjólfsson framkvæmdastjóri segir þá báða mjög vel útbúna en þó á afar viðráðanlegu verði. „Við byrjuðum að flytja Ssang Yong Kyron inn í maí á síðasta ári. Hann fékk strax mjög góðar við- tökur og var uppseldur fram til áramóta,“ segir Benedikt. Hann segir að á fyrsta árinu hafi Bíla- búð Benna selt sjötíu bíla og það sem af er þessu ári hafi tæplega hundrað jeppar selst til viðbótar. „Þetta er jeppi sem er byggður á grind og með hátt og lágt drif,“ segir Benedikt og bætir við: „Tollareglur á Íslandi eru þannig að bílar sem eru með vélar í stærðinni 1.999 rúmsentímetrar og minni lenda í þrjátíu prósenta tollflokki. Þessi bíll er þar því vélin er tæplega tveir lítrar.“ Benedikt segir bílinn vera með dísilvél sem skili 142 hestöflum. „Það sem er enn betra er að hún er 310 Newtonmetrar í togi, þannig að vélin er töluvert afl- mikil þótt hún sé ekki stór að rúm- taki. Þetta gerir það að verkum að við getum boðið sjálfskiptan dísiljeppa á 31 tommu dekkjum á 3.590.000 krónur,“ segir Bene- dikt. Hann bendir á að inni í því verði sé hraðastilling, loftkæl- ing, dökkar rúður, sætahitarar og fleira þannig að bíllinn er mjög vel útbúinn. „Kaupendurnir eru mjög ánægðir og má segja að þeir séu að selja fullt af bílum fyrir okkur í dag því þeir senda vini sína og kunningja til okkar að kaupa bíla,“ segir Benedikt og brosir. Chevrolet Captiva er líka með mótor sem er innan við 2.000 rúm- sentímetrar og því einnig í þrjá- tíu prósenta tollflokki. „Yfir nítíu prósent af Captivabílunum sem við seljum eru sjö manna,“ segir Benedikt. „Þarna bjóðum við mjög ríkulega búinn bíl með loft- kælikerfi, hitastýrt miðstöðvar- kerfi, cruise control, stöðug- leikakerfi, nálgunarvörn, dökkar rúður, sjö sæta bíl með dísilvél og sjálfskiptingu á 3.890.000,“ segir Benedikt og segir skýringuna á því vera að Chevrolet Captiva sé í lægra tollþrepinu eins og Ssang Yong Kyron-jeppinn. „Við erum líka að ná feikna- sölu á þessum bíl eða rúmlega hundrað bíla á þessu ári þannig að þessir bílar hafa heldur betur slegið í gegn. Ég held að stóra ástæðan sé sú að fólki finnst út- litið smart, það er gott að ganga um bílinn, hann er vel útbúinn og á verulega hagstæðu verði,“ segir Benedikt. sigridurh@frettabladid.is Flottir og vel útbúnir Chevrolet Captiva hefur selst í yfir hundrað eintökum á þessu ári og hefur slegið í gegn hjá Bílabúð Benna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Benedikt Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna, segir Ssang Yong Kyron og Chevrolet Captiva gríðarlega vinsæla enda vel útbúnir bílar á viðráðanlegu verði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ræsir hf. er með söluumboð fyrir EVO bus, sem eru rútur frá Mercedes Benz. „Bílarnir sem við bjóðum upp á kallast EVO bus. Þetta eru stærri bílar til langferða frá Mercedes Benz,“ segir Guðmundur Baldurs- son, sölumaður hjá Ræsi ehf. Bílarnir henta fyrir rútufyrir- tæki, leiguakstur eða stórar fjöl- skyldur og koma í öllum stærðum og gerðum. Allt frá tíu sæta upp í fimmtíu manna, bæði sex gíra beinskiptir eða sjálfskiptir. „Sá nýjasti er Mercedes Benz sprinter 518 sem er með sex sýlindra V dísilvél og er 84 hest- öfl. Þessi tegund hefur verið nær óbreytt síðan 1996. Síðan voru gerðar einhverjar breytingar árið 2001 og núna hafa verið gerð- ar gagngerðar breytingar,“ segir Guðmundur og bætir við: „Hann er með loftfjöðrun að aftan, sem hefur almennt ekki verið fáanleg án sérpantana. Síðan er mótor- inn nokkuð breyttur ásamt og gír- kassanum. Auk þess sem hann er með loftkælingu á toppnum og kæling í öllum bílnum,“ segir Guðmundur, sem segir bílinn standast allar helstu mengunar- varnir. „Bíllinn stenst mengunar- staðalinn Euro- 4 sem var sett- ur í lög í fyrra. Einnig er hann með þriggja punkta öryggisbelti í öllum sætum sem er gríðarlega jákvæð og mikilvæg þróun fyrir stærri bíla,“ segir Guðmundur, sem býst fyllilega við því að bílar að þessari stærð muni nota elds- neyti á borð við gas eða rafmagn í framtíðinni. - rh Annað eldsneyti í framtíðinni Mercedes Benz-rúturnar standast fyllilega kröfur Evrópusambandsins um mengunarvarnir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla Komdu með bílinn til okkar! Frábær verð og góð þjónusta! Alltaf heitt á könnunni! Hjá Glófaxa færðu: Iðnaðarhurðir, bæði sem flekahurðir og rúlluhurðir. Iðnaðarhurðir, með gönguhurðum, með eða án þröskulds. Í hurðunum eru gluggar ísettir plastrúðum sem rispast ekki. Einnig fást eldvarnar- ,öryggis- og bílskúrshurðir. Ármúla 42• Sími 553-4236 / 553-5336 Fax 588-8336 • glofaxi@simnet.is Iðnaðarhurð Rúlluhurð Vörulyftur og veðurhlífar Hraðlyftihurð Eldvarnarhurð Hlið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.