Fréttablaðið - 20.09.2007, Qupperneq 52
Listamaður sem biður um lífsviðurværi fær stundum lítil svör.
Sýna má fram á að iðja hans er í raun þjóðhagkvæm en sú röksemd
hefur einn galla: Hún blandar arðsemi í málið. Ávinningur
sköpunar er ekki efnahagsleg stærð. Hann felst í því sem nefna
mætti innra gildi.
Kannski ég reyni að varpa ljósi á þetta.
1) Ríkur maður borgar meiri skatt en ég því ríkidæmið á uppruna
sinn í samfélaginu. Hann hefur notið góðs af virðisaukandi
efnahagslegu gildi þess sem er auðvitað langt umfram hans eigin
fjárfestingar. Athafnir hans eru þó væntanlega líka til hagsbóta
fyrir heildina.
2) Hann nýtur ekki aðeins góðs af efnahagslegum mætti samfé-
lagsins því hann nýtir sér líka gildið sem stendur á bak við þennan
mátt og myndar innihald mannlegra athafna, þekkingu, merkingu,
ímynd.
3) Til eru menn sem munu aldrei geta hagað hugsunum sínum eða
athöfnum eftir arðsemi þeirra. Þeir eru helteknir af uppgötvun eða
sköpun og sú iðja hlítir eigin lögmálum. Þetta eru hinir heilögu
fávitar sem við köllum vísindamenn, hugsuði og listamenn. Þeir
gætu fyrir slysni komist í efni en oftast eru laun þeirra rýr.
4) Rétt eins og til er fæðukeðja í náttúrunni mætti tala um nytja-
keðju í mannfélaginu. Allt það sem ríki maðurinn græðir á er endi
langrar keðju: Vara, vinnsluaðferð, auglýsing, ímynd eða kerfi
nýtir sér uppfinningamann sem nýtir sér verkfræðing sem nýtir
sér stærðfræðing og svo koll af kolli. Einhvers staðar neðst í
keðjunni er vinna skapandi manns sem smýgur um heim hugmynd-
anna eins og ánamaðkur í mold og breytir rotnun í líf. Vinna
skapandans mótar reyndar einnig þann heim þar sem varan er
eftirsóknarverð:
Hún býr til skynjun á heiminum. Býr til heiminn eins og við
skynjum hann. Allt innihald, sjálf merking lífins byggir á vinnu
heilagra fávita.
5) Það er gott að vita að einkafyrirtæki hafa aukið stuðning við
listir. Þessum stuðningi má samt ekki rugla saman við líknarmál:
Hann er í raun endurgjald fyrir innra gildi. Sem efnislífið þrífst á.
Menn andans eru hvorki ölmusu- né athafnamenn. Samfélag sem
setur þá í þessi hlutverk geldist.
6) Ríkið ætti að viðurkenna skuld fyrirtækja við skapendur með
því að búa í haginn fyrir kostun: Veita skattaívilnun. Það er þó
verra ef þetta dregur úr hlut ríkis í menningarlífinu. Kostun er
eingöngu til að gæða það meira lífi, auka á fjölbreytni og gera vöxt
þess ófyrirsjáanlegri. Heilbrigður vöxtur er nefnilega alltaf villtur
og óheftur vöxtur.
Heilagir fávitar
ATH Kl. 16.30
Í dag verður fyrirlestur í Sólborg á Félagsvísindatorgi í
stofu K 201 um hámenningu eða lágmenningu og þann
hæpna greinarmun sem þar er á.
Það er breski fræðimaðurinn Matthew Kieran sem
talar, meðal annars um menningargagnrýni og þann
vanda sem hofmóður og snobb valda henni. Sá vandi
gerir það erfiðara en ella að koma með réttmæt rök í
menningarumræðunni, til dæmis í deilum um hámenn-
ingu og lágmenningu eða kvörtunum um útþynningar-
áhrif alþýðumenningar. Matthew Kieran er heimspek-
ingur og hefur haldið fyrirlestra við Columbia-háskóla,
Háskólann í Maribor, Genf, Oxford og víðar. Hann er
hér vegna Sjónlistaverðlaunanna.
Leikhúsið Skámáni er lagst í
útrás: sviðsetning Stefáns Baldurs-
sonar á leikritinu Killer Joe sem
var sett upp á liðnum vetri og er
nú á fjölum Litla sviðs Borgar-
leikhússins, verður á fjölum Þjóð-
leikhússins í Litháen á komandi
vori. Einnig hafa leikhús í Moskvu
sýnt sýningunni áhuga.
Einnig hafa verið þreifingar frá
einu aðalleikhúsinu í Moskvu.
Formlegt boð barst þess efnis nú í
vikunni, að leikhópnum væri
boðið að sýna verkið á sviði Þjóð-
leikhússins litháíska, sem staðsett
er í Vilníus. Þá hefur eitt stærsta
leikhúsið í Moskvu, Vakhtangov-
leikhúsið sem er fornfrægt og virt
leikhús þar í borg, sýnt áhuga á að
fá sýninguna í heimsókn. Er verið
að kanna hvort af því geti orðið í
tengslum við gestaleikinn í Lithá-
en í vor. Killer Joe var lofað af
gagnrýnendum á sínum auk þess
sem sýningin hlaut átta tilnefn-
ingar til Íslensku leiklistarverð-
launanna, Grímunnar í sumar.
Sýningin var tilnefnd sem besta
sýning ársins, fyrir bestu leik-
stjórn (Stefán Baldursson) og
fjórir af fimm leikurum sýningar-
innar, þau Þröstur Leó Gunnars-
son, Björn Thors, Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir og Maríanna Clara
Lúthersdóttir voru tilnefnd sem
bestu leikarar ársins. Þröstur Leó
hlaut svo Grímustyttuna. Þá hlaut
Filippía Elísdóttir tilnefningu
fyrir bestu búninga og Pétur Ben
fyrir bestu tónlistina.
Sýningar eru hafnar að nýju
eftir sumarleyfi og hefur Jörund-
ur Ragnarsson tekið við fimmta
hlutverki verksins. Hann er nýút-
skrifaður leikari sem vakið hefur
mikla athygli að undanförnu í
kvikmyndinni Veðramótum og
þáttaröðinni Næturvaktinni á Stöð
2. Á komandi vori mun Skámáni
sýna verkið á Akureyri í boði
Leikfélagsins þar. Sýningar verða
allnokkrar á Litla sviðinu á þessu
hausti en tveir aðalleikendur sýn-
ingarinnar, Björn Thors og Unnur
Ösp, verða í vetur í Bretlandi að
leika í Hamskiptunum í leikstjórn
Gísla Arnar Garðarssonar og Dav-
ids Farr þegar sýningin fer upp á
ný í Bretlandi. Næstu sýningar á
Killer Joe eru í kvöld og annað
kvöld og síðan föstudaginn 28.
október.
Killer Joe til austantjaldslanda
Íslensku barnabókaverð-
launin voru afhent í gær í
sal Digranesskóla í Kópa-
vogi. Að þessu sinni bárust
dómnefnd Verðlaunasjóðs
íslenskra barnabóka 13
handrit til lestrar.
Niðurstaða dómnefndar varð sú að
Loforðið eftir Hrund Þórsdóttur
væri besta handritið og því hlýtur
Hrund Íslensku barnabókaverð-
launin árið 2007. Í dag kemur bókin
Loforðið út hjá Vöku-Helgafelli.
Að mati dómnefndar lýsir sagan
á einstakan hátt þeim tilfinningum
sem bærast með ellefu ára stelpu
sem verður fyrir því að missa bestu
vinkonu sína. Sagt er frá vináttu
stelpnanna, áfallinu og söknuðinum
og síðast en ekki síst litla skrítna
lyklinum og loforðinu sem Ásta
gefur vinkonu sinni og sver við
leynistaðinn að standa við. Loforðið
er áhrifarík og spennandi saga sem
lætur engan ósnortinn, segir í áliti
dómnefndar.
Höfundurinn, Hrund Þórsdóttir,
er 26 ára gömul, menntuð í stjórn-
málafræði og blaðamennsku og
starfar nú um stundir hjá útgáfufé-
laginu Birtíngi. Loforðið er fyrsta
bók hennar.
Barnabókaverðlaunin, sem nema
nú 400.000 krónum, auk samnings-
bundinna ritlauna voru veitt í
fyrsta sinn árið 1985. Margir höf-
undar, sem nú hafa fest sig ræki-
lega í sessi, hafa einmitt fengið
verðlaunin snemma á rithöfundar-
ferlinum. Má þar nefna Guðmund
Ólafsson, fyrir bók sína Emil og
Skunda og Friðrik Erlingsson fyrir
Benjamín dúfu. Báðar þessar
bækur urðu gríðarvinsælar og
síðar voru gerðar kvikmyndir
byggðar á sögunum. Kristín Steins-
dóttir varð þekktur höfundur fyrir
verðlaunabókina Franskbrauð með
sultu og Ragnheiður Gestsdóttir
fyrir Leik á borði en þá eru aðeins
fáir verðlaunahafar nefndir.
Í dómnefnd sátu þetta árið þau
Sigþrúður Gunnarsdóttir, útgáfu-
stjóri barnabóka hjá Eddu útgáfu,
Kristín Ármannsdóttir, dóttir
Ármanns Kr. Einarssonar rithöf-
undar, sem stofnaði verðlaunin á
sinum tíma, Jón Freyr Þórarinsson,
fyrrverandi skólastjóri, fulltrúi
Sumargjafar, Sigríður Matthías-
dóttir bókavörður, fulltrúi IBBY á
Íslandi, og þau Tryggvi Þór
Tryggvason og Berglind Vignis-
dóttir, 14 ára nemendur í Digranes-
skóla.
Verðlaunasjóður íslenskra barna-
bóka var stofnaður 30. janúar 1985
í tilefni af sjötugsafmæli Ármanns
Kr. Einarssonar rithöfundar (1915-
1999). Að sjóðnum standa fjöl-
skylda Ármanns, bókaútgáfan
Vaka-Helgafell, Barnabókaráðið,
Íslandsdeild IBBY-samtakanna og
Barnavinafélagið Sumargjöf. Full-
trúar þessara aðila skipa dómnefnd
sem velur úr handritum en einnig
eru í henni hverju sinni tveir grunn-
skólanemar, fulltrúar lesenda.
Megintilgangur sjóðsins er að
örva fólk til að skrifa fyrir börn og
unglinga og stuðla þannig að auknu
framboði úrvalslesefnis fyrir æsku
landsins. Sjóðurinn efnir árlega til
samkeppni um Íslensku barnabóka-
verðlaunin sem veitt eru fyrir besta
handrit sem berst í samkeppni hans
að mati dómnefndar.
Það skiptir máli að spara á réttum stað.
Vegmúla 2 – 108 Reykjavík – 550 1310 – verdbref@spron.is – www.spronverdbref.is
*Nafnávöxtun miðast við 31. ágúst 2006 til 31. áúgst 2007, skv. sjodir.is. Peningamarkaðssjóður SPRON er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Rekstrarfélag SPRON. Útboðslýsingu má nálgast á heimasíðu SPRON Verðbréfa, www.spronverdbref.is.
Þú ert ekki hjá SPRON Verðbréfum
Peningamarkaðssjóður SPRON hefur gefið langhæstu ávöxtun allra
peningamarkaðssjóða á Íslandi síðustu 12 mánuði eða 15,4%*