Fréttablaðið - 20.09.2007, Side 56

Fréttablaðið - 20.09.2007, Side 56
Kvikmyndaverin í Hollywood eru farin að undirbúa sig undir verk- fall leikara sem talið er að skelli á í júní. Töluvert mikil framleiðsla er því í kvikmyndaborginni um þessar mundir en bæði Universal og Walt Disney hafa þó ákveðið að fresta tökum á tveimur stórum myndum sem áttu að fara í tökur á næsta ári. Disney ákvað að fresta tökum á þriðju myndinni í Narníu-flokkn- um en frumsýning hennar átti að vera í maí 2009. Þeirri dagsetn- ingu hefur nú verið framlengt til ársins 2010. Upphaflega stóð til að frumsýna eina Narníu-mynd á hverju ári og því ljóst að yfirvof- andi verkfall setur strik í þann reikning. Í staðinn verður allt kapp lagt á að klára framleiðsluna á nýj- ustu kvikmynd úr smiðju Jerrys Bruckheimer, G-Force. Universal hefur tekið sömu ákvörðun með kvikmyndina The Wolf Man með Benico Del Toro í aðalhlutverki en hún átti að fara í sýningar þann 12. nóvember á næsta ári. Þeim frum- sýningardegi hefur nú verið breytt og kemur The Wolf Man að öllum líkindum ekki í kvikmyndahús fyrr en haustið 2009. Verkfall yfirvofandi Bandarískt grín hefur verið í töluverðri uppsveiflu að undanförnu eftir að fram- leiðendur uppgötvuðu að Jim Carrey var ekki eina hráefnið sem þurfti til að framleiða grínefni fyrir hvíta tjaldið. Undanfarin ár hafa það verið hinir svokölluðu frat pack-liðar sem hafa framreitt gott grín. Wedding Crashers með þeim Owen Vilson og Vince Vaughn varð hreint út sagt ótrúlega vinsæl og markaði í raun endalok konungstímabils Jims Carrey og annarra geiflu- andlita. Áhorfendur gerðu meiri kröfur heldur en bara grín um fruss, kúk og piss eins og Dumb&Dumber. Þeir vildu safa- ríkt og vel skrifað grín með smá slettu af bjánaskap. Og Frat Pack fór létt með að matreiða slíkar uppskriftir. Þótt ekki sjái fyrir endalokin á vinsældum The Frat Pack hafa óskilgetin afkvæmi þeirra verið að færa sig upp á skaftið. Meðal þeirra er hinn kanadíski Seth Rogen en þrátt fyrir ungan aldur (Rogen er fæddur 1982) hefur honum tekist að vera hluti af hand- ritshópi The Ali G-Show, leikið í Anchorman, Donnie Darko og You, Me and Dupree auk þess að vera einn framleiðanda nýjustu mynd- ar Owens Wilson, Drillbit Taylor. En þekktastur er Rogen sennilega fyrir leik sinn í 40 Year Old Virgin og nú síðast hinum ofurvinsælu Knocked Up og Superbad. Hann skrifaði einnig handritið að Super- bad ásamt samstarfsfélaga sínum og vini, Evan Goldberg, en mynd- in er byggð á skrautlegum æsku- árum þeirra beggja. Rogen er fæddur í Bresku Kól- umbíu í Kanada og eftir að hafa hlustað á plötuna They‘re All Gonna Laugh at You! með Adam Sandler ákvað hann að grín skyldi verða lifibrauð sitt. Aðeins sextán ára gamall fluttist hann til Los Angeles þar sem bandaríski leik- stjórinn Judd Aptow tók hann undir sinn verndarvæng. Reyndar minntu þessi flutningar eilítið á félagsskipti ungra knattspyrnu- manna til stórliða í Evrópu því foreldrar Rogens fóru með syni sínum og sáu um að allir samning- ar væru í lagi. En Rogen var ekki lengi að fá vel launaða vinnu og hóf fljótt störf við sjónvarpsþátt- araðirnar Freaks and Geeks og Undeclared sem báðar fengu prýðilega dóma en var slaufað eftir aðeins eitt ár. Aptow var höf- uðpaurinn á bak við þær báðar og hélt mikilli tryggð við ungstirnið og sannfærði framleiðendur 40 Year Old Virgin að hann myndi vel valda stóru hlutverki í þeirri mynd. Í kjölfar velgengni þeirrar myndar varð leiðin greið fyrir Rogen og honum hefur nú tekist að komast í hóp þeirra grínista sem hann leit upp til á sínum yngri árum. Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, kynnti dagskrá sína á blaðamannafundi í Nor- ræna húsinu í gærmorgun en hátíðin verður sett formlega þann 27. september og stendur til 7. október. Kvikmyndahátíðin hefur sjaldan eða aldrei verið jafn glæsileg, alls verða 87 mynd- ir sýndar og að þessu sinni verð- ur einnig boðið upp á skemmti- lega viðburði, svo sem sýningu Jaws í Laugardalslauginni og bílabíó á gamla varnarsvæðinu en þar geta áhorfendur séð Amer- ican Graffiti í einni stærstu bygg- ingu Íslands. Þetta er í fjórða sinn sem Alþjóðlega kvikmyndahátíðin er haldin í Reykjavík en hún hefur vakið mikla athygli út fyrir land- steinana fyrir fjölbreytt úrval kvikmynda frá öllum heimshorn- um og meðal annars verið kölluð „best geymda leyndarmálið á hátíðarrúntinum“. Hátíðin veitir einum listamanni verðlaun sem Uppgötvun ársins en það þykir einsdæmi að kvikmyndahátíð skuli ákveða að verðlauna frum- raunir eða önnur verk höfunda. Myndirnar sem koma til greina eru þrettán en í dómefndinni sitja þau Hal Hartley, Kirsi Tykkayla- inen og Friðrik Þór Friðriksson. Sérstakur heiðursgestur hátíð- arinnar verður síðan Aki Kauris- mäki og verður hinn svokallaði Finnlands-þríleikur leikstjórans sýndur í heild sinn af því tilefni. Kaurismäki verða síðan veitt verðlaun fyrir framúrskarandi listræna kvikmyndasýn. Miða- salan á hátíðina hefst í dag á heimasíðu hennar, riff.is. Lifandi og alþjóðleg hátíð Hepburn og Guinness í uppáhaldi Sen du sms JA SE F á nú me rið 1 900 og þú gæ tir u nni ð b íóm iða og ma rgt flei ra! SMS LEIKUR 99 kr S M S. V in ni ng ar a fh en tir í BT S m ár al in d, M eð þ át tt ök u er t þ ú ko m in n í S M S kl úb b

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.