Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 64
Valsmenn fá eitt tækifæri enn Björn Bergmann Sigurðarson gerði betur en þrír þekktustu markaskorarar Skagamanna síðustu áratugi þegar hann skoraði tvennu í sínum níunda leik í efstu deild. Björn Bergmann var aðeins á undan Pétri Péturssyni sem skoraði tvennu í sínum þrettánda leik fyrir rúmu 31 ári. Fréttablað- ið skoðaði byrjun fjögurra þekktra markakónga Skaga- manna og bar saman hvenær þeir skoruðu fyrst tvö mörk í sama leiknum í efstu deild. Sló við Pétri, Arnari og Þórði Lið umferða 13-18 í Landsbankadeild kvenna var valið í gær. Margrét Lára Viðarsdóttir, Val, var valin besti leikmaður umferðanna og Elísabet Gunnars- dóttir, Val, var valin besti þjálfar- inn. Ennfremur voru stuðnings- menn Valsliðsins valdir bestu stuðningsmennirnir. Ásamt Margréti Láru voru í lið- inu fimm liðsfélagar hennar hjá Val. Margrét Lára var að vonum sátt með verðlaun sín, en deilir þeim með Valsliðinu. „Þetta er gríðarlegur heiður náttúrulega en fótboltinn er hópíþrótt og Valslið- ið á þetta allt í heild sinni. Þetta er búið að vera frábært sumar bæði hjá mér og liðinu og við göngum sáttar út úr tímabilinu, þrátt fyrir að komast ekki í bikarúrslit.“ Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, tók í sama streng. „Þetta er búið að vera skemmtilegt tímabil og örugglega skemmtilegasta tímabil sem við höfum spilað síðan ég tók við Valsliðinu. Við unnum náttúrulega tvöfalt í fyrra og misstum einn titil núna, þannig að það er alltaf hægt að gera betur.“ KR átti fjóra fulltrúa í liðinu og þar á meðal framherjann Olgu Færseth. Olga var vissulega sátt við viðurkenninguna, en hafði blendnar tilfinningar til leiktíðar- innar í heild sinni. „Það er auðvitað svekkjandi að tapa bara einum leik á tímabilinu og verða ekki Íslandsmeistari, en þetta er bara það sem við búum við og þá má bara ekki tapa meira en einu stigi. En við settum stefn- una á titil í sumar og við misstum af deildinni, þannig að nú er okkar eina tækifæri að vinna bikarinn. Ég á von á hörkuleik gegn Kefla- vík og við munum mæta alveg brjálaðar í þann leik og ætlum okkur að klára hann.“ Eini leikmaður í liði umferða 13- 18 utan Vals og KR, var Greta Mjöll Samúelsdóttir leikmaður Breiðabliks. Margrét Lára og Elísabet útnefndar bestar Björn Bergmann átti góðan leik þegar ÍA og Valur átt- ust við í Landsbankadeildinni á Laugardalsvelli síðastliðinn mánu- dag og skoraði bæði mörk ÍA í 2-2 jafntefli liðanna. Mörkin voru jafnframt fyrstu mörk Björns í Landsbankadeild- inni og hann var því að vonum sáttur með þau, en var að sama skapi ósáttur með að ÍA hafi misst leikinn niður í jafntefli. „Ég er náttúrulega mjög sáttur með mörkin, en mér fannst við eiga að vinna leikinn. Fyrirfram hefðum við kannski verið sáttir með jafn- tefli á móti Val, en eins og þetta spilaðist þá var rosalega svekkj- andi að fá á sig mark, í stöðunni 2- 1, þegar við vorum fannst mér að stjórna leiknum.“ Björn er þó að mestu afar sáttur með gengi ÍA liðsins í sumar. „Þetta er búið að vera mjög fínt sumar hjá okkur og þriðja sæti er ásættanlegur árangur og við verð- um og ætlum okkur að halda því sæti. En það var vissulega leiðin- legt að detta út úr bikarnum á móti Fylki.“ Björn, sem er aðeins 16 ára gamall og er að stíga sín fyrstu skref í Landsbankadeildinni í sumar, setti sér ákveðin markmið fyrir tímabilið. „Ég ætlaði bara að vinna mér fast sæti í byrjunarliðinu, en ég lenti í smá meiðslum í byrjun móts og það var leiðinlegt, en ég er búinn að ná mér góðum af þeim.“ Björn ber liðfélögum sínum í ÍA söguna vel og að þeir hafi stutt vel við bakið á honum í sumar. „Þeir hafa hjálpað mér mjög mikið, sér- staklega bræður mínir Þórður og Bjarni og Guðjón Þórðar hefur reynst mér vel og er mjög góður þjálfari.“ Spurður út í framhaldið kvaðst Björn hafa í nógu að snúast. „Ég ætla mér náttúrulega að klára tímabilið af krafti með ÍA og svo hef ég verið að spila með U-17 ára landsliði Íslands og var valinn í hópinn fyrir undankeppni Evrópu- mótsins sem fer fram í Serbíu dagana 27. september til 2. okto- ber. Ég var líka í æfingahópnum með U-19 ára landsliðinu sem spil- aði tvo æfingaleiki á móti Skotum á dögunum, en gat ekki spilað vegna meiðsla.“ „Ég er samningsbundinn ÍA út næsta tímabil og hef fullan hug á því að spila hér heima á næsta tímabili og svo er ég í fjölbrauta- skóla hér á Skaganum, þannig að ég er ekkert að hugsa lengra en það,“ sagði Björn að lokum. Björn Bergmann Sigurðarson, leikmaður ÍA, er leikmaður 16. umferðar Lands- bankadeildar karla í fótbolta, samkvæmt mati Fréttablaðsins, en hann skoraði sín fyrstu mörk í Landsbankadeildinni þegar ÍA mætti Val á Laugardalsvelli. Bandarísku leikmenn- irnir Ifeoma Okonkwo og Tamara Bowie, sem báðar léku hér á landi í Iceland Express deild kvenna í fyrra, eru nú á leiðinni til reynslu hjá Euroleague-liðinu TTT Riga frá Lettlandi. Það er eitt sæti í boði í liðinu og munu þær báðar reyna að heilla þjálfara lettnesku meistarana. Ifeoma varð fimmfaldur meistari með Haukum í fyrra en Bowie fór mikinn með liði Grindavíkur. Berjast báðar um sama sætið Keflvíkingar hafa fyllt leikmannahóp sinn fyrir tímabilið í körfuboltanum. Keflvíkingar sömdu við þrjá erlenda leikmenn sem eiga allir það sameiginlegt að vera góðir skotmenn. Þetta eru þeir B.A Walker, 23 ára og 180 cm bak- vörður frá Bandaríkjunum, Anthony Susnjara, 26 ára 205 cm miðherji frá Ástralíu og loks Colin O´Reilly 23 ára og 197 cm framherji frá Írlandi. Skyttur til Keflavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.