Fréttablaðið - 07.10.2007, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
7. október 2007 — 272. tölublað — 7. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Bæklingur fylgir með
inni í blaðinu í dag.
HÚSAVÍK „Ég er með fjóra unglinga á heimilinu og
þeir sitja núna saman við eldhúsborðið og spjalla.
Ég man bara ekki eftir að það hafi gerst áður,“ segir
María Guðmundsóttir í Heimabakaríinu á Húsavík.
Rafmagnslaust varð á Húsavík og í nágrenni frá
tíu í gærmorgun og fram eftir degi. Raflínum sló
saman í slydduhríð og norðanátt.
„Við vorum sem betur fer nýbúin að baka. Það var
samt ýmislegt eftir, til dæmis átti eftir að fletja
marsípan á þrjár kökur og þeyta svolítið af rjóma,“
segir María sem dró fram gömul tæki á borð við
handþeytara og kökukefli. „Svo kveiktum við bara á
kertum og skrifuðum hjá viðskiptavinum sem
ætluðu að greiða með kortum,“ segir hún. „Ég sagði
svo unglingunum að gráta ekki þótt þeir gætu ekki
hlaðið símana sína. Nú hefðu þeir tækifæri til að
kynnast því hvernig lífið var þegar ég var
unglingur,“ segir María.
„Sem betur fer var bræla á miðunum,“ segir
Héðinn Jónasson, verkstjóri Fiskmarkaðarins á
Húsavík, en í betri tíð hefði aflinn að líkindum orðið
ónýtur í rafmagnsleysinu. - kdk
Húsvíkingar og nærsveitungar hurfu til fyrri hátta í rafmagnsleysinu í gær:
Brauðið selt við kertaljós
BJARTVIÐRI - Í dag verða
suðvestan 5-8 m/s norðvestan
til, annars hæg breytileg átt.
Skýjað með köflum á landinu
norðvestanverðu, annars bjartviðri.
Hiti 0-8 stig, svalast til landsins en
mildast við ströndina.
VEÐUR 4
NATO-ÞING Meðal ræðumanna á
öðrum degi
ársfundar
Þingmannasam-
bands Atlants-
hafsbandalagsins
í Laugardalshöll í
gær voru
rússneskur
hershöfðingi og
þrír ráðherrar úr
ríkisstjórn
Íslands.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra minnti í sinni
ræðu á að öryggi alls NATO-
svæðisins ætti að vera jafn vel
tryggt. Þótt friðvænlegt væri nú á
norðurjaðrinum mætti bandalagið
ekki trassa að fylgjast með honum
heldur ætti að vera fært um að
mæta nýjum ógnum sem þar
kunna að koma upp.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra talaði á fundi þeirrar
nefndar sem hefur með borgara-
legt öryggi að gera og Össur
Skarphéðinsson iðnaðarráðherra á
fundi vísinda- og tækninefndar
þingsins. - aa / sjá síðu 6
Ársfundur NATO-þingsins:
NATO trassi
ekki norðrið
BIKARINN Í FJÖRÐINN FH lagði Fjölni að velli í framlengdum bikarúrslitaleik í knattspyrnu í gær með tveimur mörkum gegn einu.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu FH sem liðið verður bikarmeistari. Matthías Guðmundsson skoraði bæði mörk FH-inga en Gunnar Már
Guðmundsson gerði mark Fjölnis. Á myndinni sést Daði Lárusson fyrirliði FH hampa bikarnum glæsta. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Vilja að Orkuveitan
selji hlut sinn í REI
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja að Orkuveitan dragi sig út úr Reykjavík
Energy Invest og hyggjast ræða málið á fundi sínum á morgun. Hætt hefur verið
við að bjóða völdum starfsmönnum REI og OR sérkjör á hlutabréfakaupum.
HK komst áfram
Handknattleikslið HK
komst áfram í EHF-
bikarnum í gær eftir
sigur á Conversa-
no. Markvörður
Conversano hrækti
á áhorfendur.
ÍÞRÓTTIR 27
Guðni Ágústsson:
Flokksmenn
reiðir Birni Inga
Guðni Ágústsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, segist hafa orðið
var við mikla óánægju innan flokks
síns með framgöngu Björns Inga
Hrafnssonar, borgarfulltrúa flokks-
ins, við samruna REI og Geys-
is Green Energy. „Fólk reiddist yfir
þessum miklu kaupréttarsamning-
um sem er nú sem betur fer búið
að draga til baka,“ segir hann.
„Ég held að það sé mikilvægt fyrir
okkur að hitta okkar sveitarstjórn-
armenn á suðvesturhorninu strax
eftir helgina og fara yfir þessi mál,“
segir Guðni.
Hann reifar jafnframt þá hug-
mynd að almenningur í þeim
sveitarfélögum sem eiga Orkuveit-
una ætti mögulega að fá sama rétt
á kaupum í félaginu og starfsmenn
REI og OR.
STJÓRNMÁL Á fundi borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins á morgun
verður rædd tillaga um að
Orkuveita Reykjavíkur (OR) selji
hlut sinn í Reykjavík Energy
Invest (REI). Borgarfulltrúarnir
telja að opinbert fyrirtæki á borð
við Orkuveituna eigi ekki að standa
í gróðastarfsemi á samkeppnis -
markaði og munu leita eftir
samkomulagi við borgarstjóra um
málið.
Bjarni Ármannsson, stjórnar-
formaður REI, segir áhuga á fyrir-
tækinu mikinn og efast ekki um að
kaupendur væru fyrir hlut
Orkuveitunnar, færi svo að hún
drægi sig úr verkefninu.
Á fundinum á morgun verður
líka rædd tillaga um að einhver
þeirra taki sæti Hauks Leóssonar,
í stjórn Orkuveitunnar. Haukur er
núverandi formaður stjórnar
Orkuveitunnar og situr þar sem
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Borgarfulltrúarnir vilja skipta
honum út til að fyrirbyggja að
upplýsingabrestur af því tagi sem
þeir telja hafa orðið í aðdraganda
þessa máls endurtaki sig. Þess ber
að geta að Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son situr nú þegar í stjórn Orku-
veitunnar.
Stjórn REI hefur rift gerðum
samningum um kaup starfsmanna
fyrirtækisins og valinna starfs -
manna Orkuveitunnar á hlutum í
REI og býðst þeim öllum að kaupa
á sömu kjörum. - sh / sjá síðu 4
INGIBJÖRG SÓL-
RÚN GÍSLADÓTTIR
„LISTIN ER VISST
MÓTVÆGI VIÐ STÓRIÐJUNA.“
Ríkharður Valtingojer opnar nýtt listasetur
á Stöðvarfirði.
16
Eiki blóðálfur
Eiríkur Hauksson þykir
sláandi líkur fígúrum í
vinsælum tölvuleik á
netinu.
FÓLK 30
Fékk hjálp frá
pabba
Guðmundur Jónsson
naut aðstoðar föður
síns, hins 75 ára Jóns
Helgasonar, á nýrri
sólóplötu sinni.
FÓLK 22
Á leiði Jónasar
Fáklæddar yngismeyjar á
leiði Jónasar Hallgríms-
sonar prýða nýtt plötu-
umslag Megasar.
FÓLK 30