Fréttablaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 23
Afgreiðslumaður
Kynnisferðir ehf. óska eftir að ráða
starfsmann til ferðaafgreiðslu í BSÍ.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði, auk
eins annars tungumáls (ensku).
Aðrar kröfur:
Góð tölvukunnátta
Falleg framkoma og þjónustulund
Þekking á landi og þjóð
Um er að ræða vaktavinnu.
Umsóknir sendist til Kynnisferða ehf.,
Vesturvör 34, 200 Kópavogi, eða til
sigridur@re.is. Öllum umsóknum er
svarað og farið er með þær allar sem
trúnaðarmál.
SPRON óskar eftir að ráða
öflugan og kraftmikinn
viðskiptastjóra í útibú SPRON
í Lágmúla.
Helstu verkefni:
• Almenn fjármálaþjónusta og ráðgjöf til
viðskiptavina SPRON
• Kynning og sala á vörum og þjónustu-
leiðum SPRON
• Öflun nýrra viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði viðskipta eða
sambærileg menntun
• Reynsla af bankastörfum er kostur
• Reynsla og/eða áhugi á markaðs- og
sölumálum
• Umsækjendur þurfa að hafa frumkvæði,
skipulagshæfileika og ríka þjónustulund
ásamt hæfni í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ýlfa Proppé Einarsdóttir, þjónustustjóri í Ármúlaútibúi,
í síma 550 1200.
Umsóknir óskast sendar til starfsmannaþjónustu SPRON, starfsmannathjonusta@spron.is,
fyrir 14. október nk. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Viðskiptastjóri
SPRON byggir samkeppnishæfni sína á ábyrgu og hæfu starfsfólki
sem nýtur sjálfstæðis í starfi, ávinnur sér traust viðskiptavina og
veitir þeim framúrskarandi lipra og skjóta þjónustu. Í öllu starfi og
samskiptum bæði innbyrðis og gagnvart viðskiptavinum er áhersla
á TRAUST, FRUMKVÆÐI og ÁRANGUR.