Fréttablaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 17
omxgroup.com/nordicexchange
Viltu starfa í spennandi og alþjóðlegu umhverfi?
Störfin felast í:
Þjónustu og samskiptum við útgefendur skráðra verðbréfa
í Kauphöllinni
Þjónustu og samskiptum við kauphallaraðila
Yfirferð og staðfestingu á lýsingum sem gefnar eru út
vegna almenns útboðs verðbréfa eða töku verðbréfa til
viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði
Eftirliti með upplýsingagjöf skráðra félaga
Vinnu og samskiptum innan OMX kauphallanna
OMX Nordic Exchange Iceland (Kauphöllin) leitar að sérfræðingum
Menntun og hæfni:
Háskólamenntun í viðskiptafræðum eða skyldum greinum
Frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum
Mjög góð enskukunnátta, bæði töluð og rituð
Framúrskarandi íslenskukunnátta, bæði töluð og rituð
Mjög góð tölvukunnátta
Reynsla af fjármálamarkaði æskileg
Vinsamlega athugið að fyrirspurnum vegna ofangreindra starfa verður eingöngu svarað hjá STRÁ
MRI. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Guðný Harðardóttir, gudny@stra.is,
og Gunnar H. Ársælsson, gunnar@stra.is, veita nánari upplýsingar. Viðtalstímar eru frá kl. 13-15
alla virka daga. Vinsamlega sendið starfsferilsskrár og meðfylgjandi prófgögn til stra@stra.is.
Þeir sem eiga umsóknir fyrirliggjandi hringi eða sendi rafpóst og tilkynni þátttöku.
OMX Nordic Exchange gegnir
hlutverki miðlægrar gáttar að
fjármálamörkuðum á Norðurlönd-
unum og í Eystrasaltsríkjunum til
að auka áhuga, tækifæri og
fjárfestingu á öllu svæðinu.
OMX er alþjóðlegur vinnustaður
og er með starfsemi í Ástralíu,
Kanada, Kína, Danmörku, Eistlandi,
Finnlandi, Hong Kong, Íslandi,
Ítalíu, Lettlandi, Litháen, Noregi,
Singapúr, Svíþjóð, Sameinuðu
arabísku furstadæmunum,
Bretlandi og Bandaríkjunum.
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is - www.job.is
Frá Salaskóla
Eftirtalin störf eru laus til umsóknar:
• Stuðningsfulltrúi - 50 - 100% starf
• Starfsfólk í dægradvöl – hlutastarf
Laun samkvæmt kjaras. Launanefndar sveitar-
félaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 570 4600.
Hvetjum karla jafnt sem
konur til að sækja
um störfin.