Fréttablaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 5

Fréttablaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 5
Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á að skapa gott og aðlaðandi starfsumhverfi fyrir fyrirtækin í bænum og leggur ríka áherslu á skilvirka þjónustu bæjarstofnana. Bærinn vill stuðla að nýrri atvinnuuppbyggingu en styrkleiki atvinnulífs Hafnarfjarðar felst í reynslu og þekkingu á stóriðju, iðnaði, hafnarstarfsemi, framleiðslu- og þekkingariðnaði, ferðaþjónustu, menningarstarfsemi, verslun og þjónustu. F A B R I K A N Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 26. október í Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, sími 585 5500. Þjónustuverið er opið alla virka daga frá kl. 8 - 17. Allar upplýsingar eru á www.hafnarfjordur.is Glæsilegar atvinnulóðir á besta stað Fjölbreytt og öflugt atvinnulíf | Nálægð við alþjóðaflugvöll og þjónustuhöfn | Greiðar samgöngur Hellnahraun 3 afmarkast af háspennulínum til norðurs, Krýsuvíkurvegi til austurs og væntanlegum Ofan- byggðavegi til suðurs. Á svæðinu eru lausar 100 lóðir, stærðir frá 2.700 m2. Austurhluti svæðisins er skilgreindur sem athafnasvæði samkvæmt Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025. Á svæðinu er gert ráð fyrir atvinnustarfsemi þar sem lítil hætta er á mengun, s.s. léttum iðnaði, hreinlegum verkstæðum og umboðs- og heildverslunum. Á þessum hluta svæðisins eru lausar 32 lóðir, sem afhentar verða í júní 2008. Vesturhluti svæðisins er skilgreindur sem iðnaðarsvæði í flokki B2. Á svæðinu er gert ráð fyrir iðnaði og atvinnustarfsemi sem hefur óverulega mengandi áhrif á umhverfi sitt. Á þessum hluta svæðisins eru lausar 68 lóðir, sem afhentar verða í nóvember 2008. Hellnahraun 2 afmarkast af háspennulínum til norðurs og suðurs og Krýsuvíkurvegi til austurs. Á svæðinu eru lausar 3 lóðir við Einhellu, stærðir 4.700 – 5.500 m2, sem eru tilbúnar til afhendingar. Hellnahraun 2 er skilgreint sem iðnaðarsvæði í flokki B2 sbr. ofangreint. Kapelluhraun 1 afmarkast af fyrirhugaðri legu Reykja- nesbrautar til norðurs og kvartmílubraut til suðurs. Á svæðinu eru lausar 14 lóðir, stærðir 3.000 – 14.000 m2, sem afhentar verða síðla árs 2008. Kapelluhraun 1 er skilgreint sem iðnaðarsvæði í flokki B3. Flokkur B3 gerir m.a. ráð fyrir þungaiðnaði sem getur haft neikvæð umhverfisáhrif í för með sér og er háður lögum og reglum um mengunarvarnir. Hafnarfjarðarbær auglýsir lausar til umsóknar atvinnulóðir í Hellnahrauni 2. og 3. áfanga og Kapelluhrauni 1. áfanga. Skipulagsuppdrættir, skipulags- og byggingarskilmálar ásamt umsóknareyðublöðum og úthlutunarreglum, upplýsingum um gatnagerðargjald, gjalddaga/eindaga o.fl., fást afhent í Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6 og hér á heimasíðu Hafnar- fjarðarbæjar www.hafnarfjordur.is. Eftirtaldar upplýsingar og fylgiskjöl skulu fylgja umsókn og er það skilyrði þess að þeim sé veitt viðtaka: Tilgreina skal á hverju af ofangreindum svæðum er sótt um lóð, hversu stórri lóð er óskað eftir og gera grein fyrir fyrirhugaðri starfsemi og umhverfisáhrifum hennar. Fyrirtækjum ber að skila ársreikningi sínum fyrir árið 2006 og milliuppgjöri fyrir árið 2007 árituðum af löggiltum endurskoðendum. Einnig þarf að fylgja yfirlýsing lána- stofnunar um fjármögnun byggingarframkvæmda. Lóðum er eingöngu úthlutað til lögaðila. Hver umsókn kostar 3.000 kr. sem greiðast þegar umsókn er skilað. Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 26. október í Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6. Þjónustuverið er opið alla virka daga frá kl. 8 - 17. Umsóknum má skila rafrænt. Greiðsla fyrir umsókn leggist inn á reikning nr. 0327-26-59, kt. 590169-7579 og kvittun fyrir greiðslu sendist á info@hafnarfjordur.is. Þeim sem þegar hafa sótt um lóðir verður sent bréf og ber þeim að staðfesta umsóknir sínar með þeim upplýsingum sem óskað er eftir í auglýsingu þessari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.