Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.10.2007, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 08.10.2007, Qupperneq 2
Margir lögðu leið sína í Perluna í gær á sérstaka skemmtidagskrá í tilefni af alþjóð- lega geðheilbrigðisdeginum. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver- andi forseti Íslands, flutti ávarp og boðið var upp á margvíslega skemmtan og fróðleik. Allir gestir fengu að gjöf stuttermabol sem á er letrað fyrsta geðorðið:„hugsaðu jákvætt það er léttara,“ á átta tungu- málum. Sölu Kiwanis-manna á K- lyklinum lauk í gær en ágóðinn rennur til geðheilbrigðismála. Gekk salan vonum framar, að sögn Bernhards Jóhannessonar, formanns K-dagsnefndar. Ekki lá ljóst fyrir í gær hve mikið safnaðist en greint verður frá því í dag. www.lyfja.is - Lifið heil Bólusetning gegn inflúensu – engin bið Lyfja Lágmúla: alla daga kl. 15–19 Lyfja Smáralind: alla daga kl. 13–15 Lyfja Laugavegi: föstudaga kl. 13–17ÍSLE N S K A /S IA .I S L Y F 3 93 45 0 9/ 07 Belgísk stjórnvöld hafa sent óvenjuleg fyrirmæli til sendiráða ríkisins um víða veröld: Ef einhver spyr hvort flæmsku- og frönskumælandi hlutar landsins séu að klofna í sundur þá ber að svara því afdráttarlaust neitandi. Nærri fjórum mánuðum eftir að þingkosningar fóru fram í landinu hefur óeining milli systurflokka í flæmsku- og frönskumælandi hlutanum valdið því að þrátt fyrir þingmeirihluta á belgíska sambandsþinginu hefur þeim ekki enn tekist að mynda ríkisstjórn. Meginorsök ágreiningsins er krafa flæmsku- mælandi stjórnmálamanna um aukna sjálfsstjórn til handa landshlutastjórnunum. Belgía er enn óskipt land Lögreglumenn á Suðurnesjum beittu táragasi á um fimmtíu manna hóp sem var með ólæti fyrir utan skemmtistaðinn Trix í Reykjanesbæ aðfaranótt sunnudags. Ólátabelgirnir voru flestir á þrítugsaldri og höfðu brotist út hópslagsmál þeirra á milli. Þeir veittust svo að lögregluþjónunum með höggum og spörkum og sá lög- regla þann kost vænstan að leysa hópinn upp með táragasi. Engan sakaði alvarlega en nokkrir leituðu til læknis vegna minniháttar áverka. Lögregla segir engan hafa verið handtekinn en eftir eigi að taka ákvörðun um framhaldið. Slagsmál leyst upp með táragasi „Ég er ekki strengja- brúða,“ segir Jóhanna Eiríksdóttir, sem á föstudag sagði af sér for- mennsku í Kraftlyftingasambandi Íslands. Hún segir sér hafa verið þröngvað út úr stjórninni vegna þess að hún vildi að kraftlyftinga- menn sæktust eftir aðild að Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Ekki hafi verið vilji fyrir því meðal áhrifamanna í sambandinu vegna þess að því myndu fylgja regluleg lyfjapróf. „Stjórnin fylgdi ekki formannin- um að málum og þá hefur skip- stjórinn ekkert að gera í brúnni lengur,“ segir Jóhanna. „Þeir eru ekki mikið fyrir breytingar þarna og í raun eru tveir menn sem stjórna eiginlega öllu.“ Þar á hún við þá Auðun Jónsson og Hjalta Úrsus Árnason, en hvorugur þeirra situr í stjórn sambandsins. Jóhanna lagði fram tillögu á fundinum um að annaðhvort sækt- ist Kraflyftingasambandið eftir aðild að ÍSÍ eða þá alþjóðlegu sam- bandi þar sem lyfjapróf tíðkast alls ekki. Um þetta gátu menn ekki sæst en harðar deilur urðu á fundinum. Við formannsembættinu tók Jakob Baldursson, kallaður Skaga- Kobbi í lyftingaheiminum, en hann var áður varaformaður. Ekki náð- ist í Jakob í gær. Tveir lyftinga- menn úr röðum sambandsins, þeir Auðunn og Jón „bóndi“ Gunnars- son, hafa orðið uppvísir að lyfja- notkun á árinu. Bergur, er lífið ekki bara betra án rafmagns? Átta fyrrverandi starfsmenn Nordic Construction Line (NCL) hafa fallið frá kröfum sínum í garð fyrirtækisins. Að sögn Sverris Albertssonar, fram- kvæmdastjóra Afls starfsgreina- félags, létu mennirnir undan þrýstingi fyrirtækisins og hafa nú yfirgefið Austurland og eru taldir á leið úr landi. Mennirnir störfuðu að verkefnum fyrir GT verktaka við Hraunárveitu. Lög- maður Afls hefur kært hótanir sem taldar eru hafa átt sér stað á hóteli mannanna í gær. Í yfirlýsingu frá Afli segir að fulltrúar NCL hafi mætt á hótel mannanna og hótað að þeir myndu aldrei fá vinnu á Íslandi eða í Lettlandi, að þeir fengju ekki far- seðla sína en líka reynt að bera á þá fé og áfengi til að fá þá til að yfirgefa landið strax. Þannig yrði komið í veg fyrir að þeir gæfu frekari skýrslur fyrir dómi eða lögreglu. Samkvæmt yfirlýsing- unni hafi átta mannanna látið undan, fimm ætli hins vegar að standa við mál sitt og í gær hafi tíu bæst í hóp þeirra. Afl hefur farið fram á það við lögreglu að ferð mannanna átta verði stöðv- uð þar sem þeir séu „mikilvæg vitni í kærumáli um skjalafals, hótanir,“ eins og segir í yfirlýs- ingunni, en lögreglan hafi hafnað því. Lögð var fram beiðni til Hér- aðsdóms Austurlands um að mennirnir gæfu skýrslu sem vitni í einkamálum samstarfs- manna sinna. „Frásagnir mannanna eru allar á eina lund. Þeir voru þvingaðir með hótunum um brottrekstur til að kvitta fyrir móttöku mun hærri launa en þeir fengu greidd. Í Lettlandi var samið við þá um 135 þúsunda króna mánaðarlaun fyrir dagvinnu. Meðalvinnutími var um 310 tímar á mánuði og tímalaun því að meðaltali 435 krónur,“ segir í yfirlýsingu Afls. „Tvö lykilvitni í málinu eru túlkar GT verktaka, sem sáu um að deila út launum og fá undir- skriftir á kvittanir. Þeir verða sendir úr landi á næstu dögum ef ekki í dag. Við höfum farið fram á að teknar verði skýrslur af þeim án tafar. Annar þessara manna hefur þegar gefið skýrslu hjá lögreglu þar sem hann viður- kennir að hafa látið starfsmenn kvitta undir skjöl þess efnis að þeir hafi móttekið mun hærri greiðslur en finna mátti í með- fylgjandi umslögum.“ Marteinn Másson, lögmaður GT verktaka, sagði að um „algjör- lega fráleitar“ staðhæfingar væri að ræða. „Ég reikna fastlega með að mínir umbjóðendur leiti réttar síns fyrir dómstólum. Það er ekki hægt að búa við svona rangar sakargiftir.“ Sakaðir um að beita mútum og hótunum Átta Lettar sem hafa talið Nordic Construction Line hlunnfara sig hafa skipt um skoðun. Afl telur þeim hótað til að fá þá til að yfirgefa landið strax. Fimm halda áfram að sækja rétt sinn og tíu hafa bæst við. Rétt sex ár voru í gær frá því fyrstu bandarísku sprengjurnar byrjuðu að falla á Afganistan, innan við mánuði frá hryðjuverkaárásum al-Kaída á New York og Washington 11. september 2001. Með loftárásunum hófst herför Bandaríkjamanna, sem síðan naut stuðnings Breta, Kanadamanna og fleiri NATO-þjóða, gegn stjórn talibana í Afganistan, en al-Kaída- leiðtoginn Osama bin Laden starfaði í skjóli hennar. Með stuðningi afganska Norðurbandalagsins tókst innrásarliðinu að hrekja talibana frá völdum á tæpum tveimur mánuðum. Í byrjun desember 2001 hörfuðu þeir frá höfuðvígi sínu Kandahar og upp í fjöllin á landamærunum við Pakistan, þaðan sem þeir stunda skæru- hernað enn í dag. Herför sem ekki sér fyrir endann á Fyrrverandi gjaldkeri Íþróttabandalags Akraness hefur verið kærður fyrir þjófnað í starfi. Endurskoðunarfyrirtæki mun yfirfara öll fjármál félagsins. Í yfirlýsingu frá aðalstjórn ÍA segir að gjaldkerinn hafi greitt til baka þá upphæð sem hann er talinn hafa stolið auk þess sem áréttað er að traust verði að ríkja í því sjálfboðastarfi sem unnið er á vegum íþróttafélaga. Gjaldkeri kærður fyrir þjófnað

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.