Fréttablaðið - 08.10.2007, Page 6
Einar Kristjánsson,
sölumaður hjá RV
RV
U
N
IQ
U
E
10
07
02
Með réttu úti - og
innimottunum
- getur þú stoppað 80%
af óhreinindunum
við innganginn
Á tilboði í októberog nóvember 2007Úti- og innimottur af ýmsum gerðum og stærðum
Wayfarer grá með kanti, 120x180cm
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
H
im
in
n
o
g
h
af
/
S
ÍA
-
9
0
7
1
1
7
3
Frá því árið 2001 – þegar
hryðjuverkaárásirnar á Bandarík-
in voru gerðar – hefur hlutverk
Atlantshafsbandalagsins þrengst
niður í að vera fyrst og fremst
stofnun sem leggur fram herlið til
að framfylgja markmiðum aðal-
lega langt utan landamæra
Evrópu. Þetta fengu meðlimir
öryggis- og varnarmálanefndar
Þingmannasambands NATO að
heyra á þriðja degi ársfundar þess
í Laugardalshöll í gær, í framsögu-
erindi breska öryggismálasér-
fræðingsins Alyson J.K. Bailes
sem nú starfar sem gestakennari
við Háskóla Íslands.
Bailes sagðist eiga erfitt með að
koma auga á þá hlið hins nýja
NATO sem framfylgdi „mýkri“
stefnumiðum – sem krefðust pólit-
ískra aðgerða frekar en hernaðar-
legra – eða stuðlaði að umbótum
til að mynda í nýfrjálsum ríkjum.
Á sama tíma hefði nýtt „hnattrænt
bardagahlutverk“ bandalagsins
orðið æ meira áberandi, ásamt
hinni stanslausu baráttu gegn
nýjum óvinum á borð við hryðju-
verkaöfl og ólöglegri sölu vopna-
búnaðar milli landa.
Reyndar segir Bailes að þar sem
ógnir nútímans séu að svo mörgu
leyti þess eðlis að þau kalla frekar
á borgaralegan viðbúnað fari hlut-
verk Evrópusambandsins í örygg-
ismálum vaxandi, sem aftur geri
tengsl ESB og NATO mjög mikil-
væg.
Gott dæmi um það hversu mjög
starf NATO takmarkist nú orðið
við að bregðast við þróun sem
bandalagið hefði sjálft ekki átt
neitt frumkvæði að sé hvernig það
hafi þurft að bregðast við við-
brögðum Rússa við því sem var í
raun tvíhliða ákvörðun milli vissra
aðildarríkja bandalagsins varð-
andi uppsetningu eldflaugavarna-
stöðva í austanverðri Mið-Evrópu.
Vísaði Bailes þar til beiðni Banda-
ríkjastjórnar um að fá að setja
upp skotstöð fyrir gagneldflaugar
í Póllandi og ratsjárstöð fyrir
sama kerfi í Tékklandi. Ýjaði
Bailes þannig að því að Banda-
ríkjastjórn græfi undan vægi Atl-
antshafsbandalagsins sem stofn-
unar með því að fara sínu fram í
tvíhliða samskiptum við valin
aðildarríki í stað þess að ræða
málin fyrst á vettvangi bandalags-
ins sjálfs.
Um horfurnar á þróun sam-
starfsins yfir Atlantshafið á næstu
árum segir Bailes að ástæða sé
bæði til bjartsýni og áhyggna.
Þörf á samstöðu bandalagsþjóð-
anna yrði áfram rík og því myndi
NATO lifa sem stofnun. Spurning-
in væri hins vegar hvort tengslin
yfir hafið yrðu góð eða slæm. Þar
varaði hún við nokkrum óveðurs-
skýjum sem spillt gætu fyrir;
nefndi hún þar fyrst hugsanlega
hernaðarárás Bandaríkjanna á
Íran, þá upplausn íraska ríkisins
sem Bandaríkjamönnum yrði
kennt um, og loks ef Bandaríkja-
menn grípa til meiri háttar
aðgerða gegn Rússum eða gera
við þá tvíhliða samkomulag alveg
framhjá evrópskum NATO-banda-
mönnum sínum.
Hlutverk NATO hef-
ur þrengst síðan 2001
Á þriðja degi NATO-þingsins var þróun hlutverks NATO og framtíð til umræðu.
Fengu þingfulltrúar að heyra að hlutverk bandalagsins hefði þrengst til muna á síð-
ustu árum. Tengslin yfir Atlantshafið myndu haldast en margt gæti spillt fyrir þeim.
Hundruð ungmenna, sem handtekin
voru eftir slagsmál við lögreglu á götum Kaup-
mannahafnar á laugardag, hafa verið látin laus en
margir hinna handteknu eiga ákæru yfir höfði sér
vegna ofbeldisins. Frá þessu greindu lögregluyfir-
völd í Kaupmannahöfn í gær.
Slagsmálin upphófust á laugardag er lögregla
aftraði þúsundum ungmenna frá því að ryðjast til
inngöngu í tóma byggingu í norðvesturhluta
borgarinnar sem unga fólkið vill fá afnot af í stað
Ungdómshússins svonefnda sem rifið var á
Norðurbrú í vor. Mótmælendurnir kveiktu elda og
reyndu að klifra yfir lögreglubíla sem lokuðu
götunni. Þá skaut lögreglan táragasi að mótmæl-
endum og allt fór í bál og brand.
Alls voru 437 manns handteknir á laugardags-
kvöld og aðfaranótt sunnudags, að því er Flemming
Steen Munch, talsmaður Kaupmannahafnarlögregl-
unnar, greindi frá í gær. Enginn meiddist að hans
sögn.
Flestir hinna handteknu voru Danir en í hópnum
voru líka Þjóðverjar, Svíar, Finnar, Norðmenn,
Bretar, Spánverjar og fólk af fleiri þjóðernum.
Jóna Fanney Frið-
riksdóttir, bæjarstjóri á Blöndu-
ósi, hefur sagt upp starfi sínu.
Hún hyggst söðla um í orðsins
fyllstu merkingu og verða fram-
kvæmdastjóri Landsmóts hesta-
manna, sem haldið verður á
Gaddstaðaflötum við Hellu í júlí
á næsta ári.
„Ég hef verið í hestamennsku í
sumarfríunum mínum, farið með
ferðamenn yfir Kjöl og haft mjög
gaman af. Það verður því ánægju-
legt að fást við hestamennskuna
af meiri alvöru,“ segir hún.
Jóna Fanney hefur verið
bæjarstjóri á Blönduósi í fimm
og hálft ár. Þótt hún hafi ekki
áhuga á bæjarstjórastöðunni
lengur kveðst hún ekki ætla að
segja alfarið skilið við bæjar-
pólitíkina á Blönduósi heldur
halda áfram sem bæjarfulltrúi.
„Mér bauðst þetta nýja starf og
fannst það spennandi. Það er allt-
af gaman að prófa eitthvað nýtt,“
segir Jóna sem sér einnig fram á
að geta varið meiri tíma með
manni og börnum eftir breyting-
arnar.
„Þetta verður hörkuvinna en
það stendur líka alltaf til að eiga
meiri tíma með fjölskyldunni,“
segir hún.
Bæjarstjóri söðlar um
Unglingspiltur, sem
misþyrmt var af unglingagengi í
Stokkhólmi á föstudagskvöldið,
lést í gær.
Hann hefði orðið sautján ára í
dag. Pilturinn komst aldrei aftur
til meðvitundar eftir að hafa legið
í einn og hálfan sólarhring á
sjúkrahúsi.
Fimm unglingar, sem allir eru
fæddir árið 1991, eru grunaðir
um að hafa gengið í skrokk á
drengnum. Svíar eru slegnir eftir
atburðinn, að sögn vefútgáfu
Aftonbladet, og hafa sænsk blöð
birt myndir af blómum og kertum
á gangstéttinni þar sem ódæðið
var unnið.
Unglingur lést
af sárum sínum
Hefur þú farið á Alþjóðlega
kvikmyndahátíð í Reykjavík?
Á Bjarni Ármannsson að láta
kaup sín í REI ganga til baka?