Fréttablaðið - 08.10.2007, Page 10
B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - Sími 575 1200 - www.bl.is - www.bmw.is
Velgengni í mismunandi myndum.
Þitt er valið.
BMW 318 Advantage kr. 3.810.000
BMW 320 Exclusive kr. 4.290.000
BMW 325xi xDrive Prestige Edition kr. 5.900.000
Advantage, Exclusive og Prestige edition eru aukahlutapakkar sem gerir glæsilega
BMW 3 línu enn glæsilegri. Nánari upplýsingar hjá sölumönnum í síma 575 1210.
Ertu að leita þér að sportlegum lúxusbíl fyrir þig og vinnuna? Viltu færast nær sólinni, veginum og frelsinu - með blæjuna niðri og vindinn einan að förunaut.
Vantar þig meira rými svo að áhugamálin komist fyrir í bílnum. Eða langar þig til að upplifa ósvikna akstursánægju eins og hún gerist best. BMW 3 línan stendur
undir væntingum í ótal myndum og rúmlega það. Komdu í reynsluakstur og upplifðu alla kosti BMW 3 línunnar af eigin raun.
Flugþreyta hamstra á
stinningarlyfjum, sprengja sem
gerir hermenn samkynhneigða
og botnlaus súpuskál eru meðal
vísindalegra rannsóknarefna sem
hlutu hin vafasömu Ig-nóbels-
verðlaun í ár sem eru veitt fyrir
„afrek sem koma fólki til að hlæja
í fyrstu en síðan til að hugsa“.
Verðlaunahafar hinna eigin-
legu nóbelsverðlauna sáu um að
afhenda Ig-nóbelsverðlaun sem
voru veitt í tíu flokkum.
Ekki eru peningaverðlaun í
boði heldur handgerður verð-
launagripur, viðurkenning og
heiður. Á afhendingarathöfninni í
Harvard-háskóla á fimmtudags-
kvöld hélt aðalræðumaður kvölds-
ins tveggja mínútna ræðu þar
sem einungis orðið „kjúklingur“
kom fyrir.
Ákveðið var að verðlauna vís-
indamenn við argentískan háskóla
sem fundu út að hamstrar á stinn-
ingarlyfjum voru helmingi fljót-
ari að jafna sig á sex klukku-
stunda tímamun eftir að hafa
ferðast milli tímabelta.
Ig-nóbelsverðlaunin í næringar-
fræði hlaut prófessor við Corn-
ell-háskóla sem sýndi fram á að
fólk borðaði 73 prósentum meira
úr súpuskál sem var fyllt jafn-
óðum með slöngum sem lágu í
hana.
Friðarverðlaun Ig-nóbelsins
hlaut Bandaríkjaher fyrir tillögu
um að þróa „hýra sprengju“ efna-
vopn sem myndi láta óvini vilja
njóta ásta hver með öðrum frekar
en að ráðast á aðra. Enginn fékkst
þó til að veita þeim verðlaunum
viðtöku.
Grín-nóbelsverðlaunin afhent
Skipulagsstofnun telur að fyrirhugað álver Norðuráls
Helguvík sf. muni ekki valda verulega neikvæðum eða óafturkræfum
áhrifum á umhverfi eða samfélag á Suðurnesjum. Þetta er mat
stofnunarinnar á umhverfisáhrifum 250.000 tonna álvers í Helguvík,
með fyrirvara um umhverfisáhrif tengdra framkvæmda.
Skipulagsstofnun bendir á að þeir virkjunarkostir sem Hitaveita
Suðurnesja hyggst nýta vegna fyrsta áfanga álversins eiga eftir að
fara í umfjöllun samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum og
suma á einnig eftir að fjalla um samkvæmt skipulags- og byggingar-
lögum.
Sveitarfélögin þurfi að huga vel að þessari stöðu þegar kemur að
leyfisveitingum.
Skipulagsstofnun telur að vegna óvissu um flutningsleiðir raforku
þurfi sveitarfélögin að huga að því hvort bíða eigi með leyfisveitingar
fyrir byggingu álversins þar til niðurstaða liggur fyrir.
Fyrirhugaður rekstur í Helguvík er háður lögum um losun gróður-
húsalofttegunda og telur Skipulagsstofnun að áður en Norðuráli
Helguvík sf. verður veitt framkvæmda- og byggingarleyfi þurfi að
liggja fyrir hvort fyrirtækið fær þá losunarheimild sem það þarf eða
það hafi sýnt fram á hvernig losun gróðurhúsalofttegunda verði
mætt.
Hefur ekki óafturkræf áhrifFinnski saksóknarinn
Simo Kolehmainen hefur ákveðið
að fara í dómsmál gegn Susan
Kuronen, fyrrverandi unnustu
finnska forsætisráðherrans Matti
Vanhanens, útgáfufyrirtækinu
Etukeno og eiganda þess, Kari
Ojala, að sögn finnska dagblaðs-
ins Hufvudstadsbladet.
Þremenningarnir eru ákærðir
fyrir að hafa brotið gegn lögum
um friðhelgi einkalífsins með
útgáfu bókarinnar Unnusta
forsætisráðherrans sem Kuronen
skrifaði. Í henni segir Kuronen
frá sambandi sínu við Vanhanen
en bókin kom út í fyrra og vakti
mikla athygli.
Útgefandinn Ojala telur
ákæruna ógn við tjáningarfrelsið
og segir að verði þau dæmd verði
ekki lengur hægt að gefa út
ævisögur í Finnlandi.
Talin brot á frið-
helgi einkalífs