Fréttablaðið - 08.10.2007, Page 12
Forseti Alþingis,
Sturla Böðvarsson, hefur kynnt
breytt deiliskipulag á svonefndum
Alþingisreit, þar sem áætlanir eru
um að koma allri starfsemi Alþing-
is fyrir. Sátt ríkir nú loks um málið
og framundan er frekari greining á
verkefninu, að sögn Sturlu. Enn
sem komið er liggur hvorki fyrir
kostnaðaráætlun né tímaáætlun
fyrir framkvæmdina.
„Ég vil hrósa forseta Alþingis
fyrir að hafa haft frumkvæði að
viðræðum við hagsmunaaðila. Ég
tel að um stórsigur í skipulagsmál-
um í Reykjavíkurborg sé að ræða,“
sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir,
formaður skipulagsráðs Reykja-
víkurborgar, á kynningarfundi á
dögunum.
Rætt var við hagsmunaaðila í
málinu vegna athugasemda sem
komu fram við auglýsta tillögu
fyrr á árinu og segir Sturla að í
meginatriðum verði komið til móts
við athugasemdirnar. Flestar lutu
að niðurrifi hússins Skjaldbreiðar
og tilfærslu Vonarstrætis 12 á horn
Tjarnargötu og Kirkjustrætis.
Í nýju skipulagstillögunni leggur
Alþingi til að Vonarstræti 12 standi
þannig við Kirkjustræti að megin-
framhlið þess verði í línu við eldri
hús í götunni. Þá mun Skjaldbreið
verða endurbyggð í upprunalegri
mynd og hluti nýbyggingar verði
lægri en áður var áformað.
Nýbyggingin, sem áformað er að
reisa bak við húsin við Kirkju-
stræti og meðfram Tjarnargötu og
Vonarstræti, verður 7.100 fermetr-
ar á stærð. Húsin á reitnum verða
tengd með glerbrú á annarri hæð
húsanna. Þá verður gerður 1.900
fermetra bílakjallari undir nýbygg-
ingunni fyrir 75 bifreiðar. Fram-
kvæmdin mun gera Alþingi mögu-
legt að losa rúmlega 4.000 fermetra
leiguhúsnæði við Austurstræti, en
Alþingi greiðir árlega um átta
milljónir króna í húsaleigu, og selja
húsið Þórshamar við Templara-
sund.
Tillögurnar voru unnar í samráði
við Reykjavíkurborg og bíða þær
nú afgreiðslu borgarinnar. Við
tekur hönnun nýbyggingarinnar,
viðgerðir og flutningur gömlu hús-
anna og fornleifaathugun á bygg-
ingarreitnum.
Alþingi á sama reit
Færa á alla starfsemi Alþingis á svonefndan Alþingisreit. Efnt var til samkeppni
um nýbyggingu á svæðinu árið 1985 og bar Sigurður Helgason sigur úr býtum.
22 árum síðar kynnti forseti Alþingis nýja tillögu að deiliskipulagi reitsins.
„Þetta er tími sögulegs tækifæris fyrir
Búrma,“ sagði Ibrahim Gambari, sendifulltrúi Samein-
uðu þjóðanna í Búrma, þegar hann greindi öryggisráði
SÞ frá fjögurra daga heimsókn sinni til Búrma í vikunni
vegna harðra aðgerða stjórnvalda við að berja niður
friðsöm mótmæli gegn herforingjastjórninni.
Gambari sagðist tiltölulega bjartsýnn á að leiðtogi
herforingjastjórnarinnar í Búrma, Than Shwe
hershöfðingi, væri reiðubúinn til viðræðna við
stjórnarandstöðuleiðtogann og stofufangann Aung San
Suu Kyi með ákveðnum skilyrðum. Kallaði hann eftir
„hámarks sveigjanleika“ til að koma viðræðunum á
sem fyrst.
Gambari sagðist þó ekki hafa fengið að hitta nein
flokkssystkini Suu Kyi né fulltrúa munka og nemenda
sem fóru fyrir mótmælunum sem voru þau mestu gegn
herforingjastjórninni í Búrma frá árinu 1988.
Herforingjastjórnin lýsti í gær yfir að 500 munkar
hefðu verið handteknir og að búið væri að sleppa öllum
nema 109. Sagði einnig að leit stæði yfir að fjórum
munkum sem leiddu mótmælin. Ban Ki-moon,
framkvæmdastjóri SÞ, ítrekaði í gær að „valdbeiting
gegn friðsömum mótmælendum er viðurstyggileg og
óásættanleg“.
Sænsk stjórnvöld
ætla að senda fimm tonn af
kjarnorkuúrgangi til eyðingar í
Sellafield
endurvinnslustöð-
inni í Englandi.
Þórunn
Sveinbjarnardótt-
ir umhverfisráð-
herra hefur sent
sænskum
starfsbróður
sínum bréf og
lýst yfir áhyggj-
um vegna ákvörðunarinnar.
Í bréfi Þórunnar segir að íslensk
stjórnvöld óttist að þessar
aðgerðir grafi undan kröfu
Íslendinga og fleiri þjóða um að
endurvinnslustöðinni verði lokað,
auki hættu á mengunarslysi og
sendi röng skilaboð um með-
höndlun á kjarnorkuúrgangi.
Heppilegra væri að úrgangurinn
yrði grafinn í Svíþjóð.
Úrgangur Svía
til Sellafield
„Það er hver höndin
uppi á móti annarri þarna, enda
átti ég aldrei von á að menn gætu
gengið í takt með
bæði Jón
Magnússon og
Kristin H.
innanborðs.“
Þetta segir
Margrét Sverris-
dóttir, fyrrum
framkvæmda-
stjóri Frjálslynda
flokksins.
Nokkuð hefur gengið á innan
flokksins eftir að Sigurjón
Þórðarson var ekki ráðinn
framkvæmdastjóri flokksins.
Margrét minnir á ummæli
flokksformannsins um tilraunir
hans til að koma í veg fyrir að
flokkurinn legði upp laupana, en
óvíst væri hvort þær gengju upp.
Þau ummæli segi sína sögu.
Undrast ekki
erjur í flokknum
Há örorkutíðni
undanfarin ár hefur orðið til þess
að Íslendingum á vinnumarkaði
fjölgar lítið. Frá þessu er greint í
nýrri samantekt Samtaka
atvinnulífsins.
Örorkulífeyrisþegar voru
13.200 í lok árs 2006, um átta
prósent vinnuafls. Segir í
samantektinni að fjöldi nýrra
örorkumatsúrskurða hafi veruleg
fjárhagsleg áhrif á gjöld og
skuldbindingar ríkissjóðs og
lífeyrissjóða og að þörf fyrir
erlent vinnuafl skýrist meðal
annars af fjölgun öryrkja. -
Fjölgun öryrkja
hefur mikil áhrif
á vinnumarkað
Styrktarfélagi krabbameins-
sjúkra barna (SKB) barst nýlega
peningagjöf að upphæð 9.850
krónur.
Þrjár stúlur höfðu safnað
peningum á tombólu fyrir utan
verslunina 10-11 í Hafnarfirði.
Stúlkurnar heita Birgitta,
Ísabella og Bergþóra og eru
félagsmenn í SKB þeim afar
þakklátir fyrir stuðninginn að því
er kemur fram í tilkynningu.
Gáfu SKB tæp-
ar tíu þúsund
Vinnueftirlitið
óskar eftir ábendingum um
fyrirmyndar-fyrirtæki í tengslum
við Vinnuverndarvikuna 2007,
Hæfilegt álag er heilsu best.
Fyrirhugað er að veita þeim
viðurkenningu sem standa sig vel
í að skapa góðar vinnuaðstæður
þar sem álag við vinnu er heppi-
legt og breytilegt.
Horfa skal til áhættumats
varðandi álag á hreyfi- og
stoðkerfið með þátttöku starfs-
manna, áætlun um forvarnir og
heilsuvernd, fræðslu og þjálfun í
góðri líkamsbeitingu og vinnu-
tækni og notkun hjálpartækja svo
dæmi séu nefnd.
Ábendingar má senda á
gudmundur@ver.is fyrir 15.
október.
Fyrirmyndar-
fyrirtækja leitað