Fréttablaðið - 08.10.2007, Side 16

Fréttablaðið - 08.10.2007, Side 16
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab- ladid.is eða hringja í síma 550 5000. Í fyrsta sinn í níutíu ára sögu Læknafé- lags Íslands situr kona í formannsstóln- um. Birna Jónsdóttir er þó ekki ókunn starfi samtakanna enda hefur hún starfað þar í sex ár sem gjaldkeri. „Ég hef alltaf haft áhuga á félagsmálum og stjórnun,“ segir Birna sem bæði sat í stjórn í menntaskóla og í stúdentaráði í háskóla. „Ég hef á síðustu sex árum séð þau verkefni sem koma inn á borð hjá stéttarfélagi eins og læknafélag- inu en þau mál ganga sum hver árum saman. Því dýpra sem maður sekkur í málin því athyglisverðari verða þau,“ segir Birna og bætir við að það gleðji sig mjög að félagar hennar í Lækna- félaginu treysti henni sem talsmanni sínum. Birna er röntgenlæknir og hefur í fimmtán ár rekið, ásamt fleirum, fyrirtækið Röntgen Domus Medica. Hún hefur mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig hægt sé að bæta aðstæður í heilbrigðiskerfinu. „Það ætti að vera til annar valkostur við rekstur hins opin- bera í heilbrigðiskerfinu,“ segir Birna með áherslu og telur að sérstaklega eftir að sjúkrahúsin á höfuðborgarsvæðinu voru sameinuð ætti að vera til sjúkra- húsrekstur sem sé í höndum annarra en hins opinbera til mótvægis við opin- beran rekstur. „Mér finnst mjög slæmt að hafa einokun í einhverjum rekstri,“ segir Birna. Máli sínu til stuðnings nefnir hún Háskólann í Reykjavík sem hafi örvað Háskóla Íslands, þá hafi Fréttablaðið örvað Morgunblaðið líkt og Stöð 2 Ríkissjónvarpið. „Heilbrigðismál eru vandasöm og flókin og það er bæði betra að vera sjúklingur sem hefur valkost og starfs- maður.“ Birna tekur þó skýrt fram að hún vilji áfram hafa almannatryggingakerfið en að tryggingarnar eigi að gefa kost á því að kaupa þjónustu af fleirum en ríkinu. „Mér finnst afskaplega slæmt þegar eitt ráðuneyti, eins og heilbrigðisráðu- neytið, á að ákveða hvaða þjónustu eigi að veita, framkvæmi hana sjálft og fylgist svo með sjálfu sér hvernig gengur,“ segir Birna sem er fullviss þess að margir aðrir læknar séu á sama máli og hún sjálf. Birna hefur ákveðið að gera for- mannsstarfið að sínu aðalstarfi og mun því draga úr vinnu hjá Röntgen Domus Medica. Hún mun þó reyna að sinna sínum hugðarefnum í frístundum sem eru hannyrðir og bókalestur en hún segist forfallinn lestrarhestur. Þetta þykir henni best að stunda í sumar- bústaðnum, þá oft umvafin fjölskyldu sinni sem er æði stór en Birna á fimm börn og átta barnabörn. AFMÆLI „Það er sjaldgæft að allt gangi að óskum á sama tíma í lífinu.“ Framtíðarsýn Háskólaseturs Vestfjarða verður kynnt í dag í Vestra-Húsinu á Ísafirði. Markmiðið er að verða Háskóli hafs- ins, að sögn Mörthu L. Marthensdóttur, þjónustu- og kennslu- stjóra, sem segir staðbundið meistaranám verða í boði. Hún segir einnig að þegar hafi verið mótuð námsleið í haf- og strandsvæðastjórnun í samvinnu við Háskólann á Akureyri sem eigi að fara af stað haustið 2008. Fleiri slíkar náms- leiðir séu í undirbún- ingi og frumgreinanám hefjist í háskólasetrinu í janúar 2008. Kynningin er öllum opin og hefst klukkan 15.30. Léttar veitingar verða í boði að henni lokinni. Háskóli hafsins Björgunarskóli Landsbjarg- ar átti þrítugsafmæli fyrir skemmstu og hélt upp á það með því að taka nýtt skrán- ingakerfi í notkun og kaupa fjarfundabúnað. Skólinn hefur haldið uppi öflugu fræðslustarfi fyrir félaga í samtökunum og aðra lands- menn. Á hverju ári eru haldin um 180 námskeið um allt land og er fjöldi þátt- takenda um 3.500 manns ár hvert. Björgunarskóli þrítugur Mönnum rænt á Breiðafirði Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, amma og langamma, Kristjana Sigurðardóttir áður til heimilis að Arahólum 4, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 8. október nk. kl. 13.00. Elísabet Kristinsdóttir Guðmundur Sveinsson Sigríður Sigurðardóttir Jóhann Vilbergsson Reynir Sigurðsson Sigríður Bragadóttir Hlín Sigurðardóttir Gísli Jónsson Júlíana Sigurðardóttir Hannes Pétursson barnabörn og langömmubörn. 25 ára afmæli Þorvaldur Heiðar Guðmundsson 25 ára. Sæl öll, vinir og vandamenn! Ég á 25 ára afmæli í dag. Ég ákvað að sleppa veisluhöld- um þar sem ég er bara fátækur námsmaður en endilega sláið samt á þráðinn til mín og kastið á mig kveðju í síma: 695-4267. Plís!! Útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa, langafa, langalangafa, bróður og mágs, Sigurðar Jónssonar Hjallabraut 33, Hafnarfirði áður Flókagötu 16a, Reykjavík, verður gerð frá Hjallakirkju í Kópavogi, miðvikudag- inn 10. október kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamleg- ast afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins eða Krabbameinsfélagið. Helga Sigríður Ólafsdóttir Jón Ólafur Sigurðsson Ragnheiður Þórðardóttir Guðný Sjöfn Sigurðardóttir Þórarinn Sigurðsson Sigurður Þór Jónsson Erla Sigfúsdóttir Guðni Jónsson Elín Jóhannesdóttir Bjarki Már Jónsson Birgitta Sif Jónsdóttir Ingólfur Freyr Þórarinsson Hannes Berg Þórarinsson Svanhildur Jónsdóttir Svane Gunnar O. Svane langafabörn og langalangafabarn.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.