Fréttablaðið - 08.10.2007, Side 28

Fréttablaðið - 08.10.2007, Side 28
fréttablaðið fasteignir10 8. OKTÓBER 2007 Danfoss ofnhitastillar Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins Háþróuð og notendavæn hitastýring sem veitir þægilega húshitun og hámarks orkusparnað Við erum leiðandi í framleiðslu ofnhitastilla Sverrir Kristinsson lögg. fast.sali EINARSNES - SKERJAFJÖRÐUR Fallegt lítið parhús í Skerjafirði. Húsið er á þremur hæðum. Fyrsta hæð: Hol, eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Rishæð: Rúmgóð stofa. Kjallari: herbergi, þvottahús og geymsla. (hringstigi er á milli hæða). Sér hellulagt bílastæði. Verð 24,9 millj. GRUNDARHVARF – VIÐ ELLIÐARVATN Glæsilegt og mjög vandað 171,1 fm parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsið stendur á 1.018 fm lóð rétt við Elliðarvatnið og með einstöku útsýni. Guðbjörg Magnúsdóttir innanhús arkitekt hannaði húsið að innan og teiknaði allar innréttingar. Húsið er mjög stílhreint, allur viður er eik. Granít á borðum og gólfefni er gegnheilt eikarparket og flísar. Innréttingar eru sérsmíðaðar. Garðurinn er gróinn og fallegur, sérhannaður af land- slagsarkitekt með gosbrunni, næturlýsingu, hellulögðum göngustígum, timburverönd o.fl. Verð 68,5 millj. Fr u m Hér er um að ræða heila húseign á horni Laugavegs og Snorrabraut sem gefur mikla möguleika. Húsið er þriggja hæða auk kjallara, samtals 868,9 fm að heildarflatarmáli. Húsið er mjög vel byggt og er gólfplata annarrar hæðar sérstaklega styrkt. Lyfta er í húsinu sem fer m.a. niður í kjallara. Á jarðhæð eru tvö verslunararými. Á 2. hæð er stór vinnslusalir (áður útskurðarverkstæði) og þrjú herbergi. Á 3. hæð eru tvær íbúðir, annars vegar 3ja-4ra herbergja 98,2 fm íbúð og hins vegar 4ra herbergja 130,7 fm íbúð. Í kjallara eru síðan miklar geymslur og vinnurými. Önnur hæðin og kjallarinn voru nýtt undir tréskurðarverkstæði. Óskað er eftir tilboðum í eigna. Allar nánari upplýsingar gefur Þorleifur St. Guðmundsson löggiltur fasteignasali Holtasmári 1 - til útleigu Eignamiðlun hefur verið falið að annast útleigu á um 3700 fm í húsi sem er mjög velstaðsett og þekkt. Um er að ræða hluta jarðhæðar, 5.,6.,7. og 8. hæð hússins. Á 5., 6. og 7. hæð eru skrifstofur, fundarsalir, snyrtingar og eldhús. Á 8. hæð er stór matsalur, vin- nusalir, fundarsalur, o.fl. Mjög stórar svalir eru á 8. hæðinni en á öðrum hæðum eru einnig góðar svalir. Á jarðhæð er þjónusturými. Fjöldi bílastæða er við húsið, m.a. í bílageymslu. Húsnæðið verður laust um næstu áramót. Allar nánari upplýsingar gefa Þorleifur St. Guðmundsson og Sverrir Kristinsson löggiltir fasteignasalar á Eignamiðlun. – Til sölu – LAUGAVEGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.