Fréttablaðið - 08.10.2007, Síða 39
Hvernig væri heimurinn ef kalda
stríðið hefði ekki endað, heldur
hitnað upp allsvakalega? Það er
spurningin sem World in Conflict,
nýi leikur sænska fyrirtækisins
Massive, reynir að svara. Árið er
1989 og Sovétríkin riða á barmi
falls en í stað þess að hrynja eins
og gerðist snúa þau vörn í sókn og
hefja skyndisókn á Vestur-Evrópu.
Bandaríkin og NATO bregðast við
og þriðja heimsstyrjöldin hefst.
Herir Bandaríkjanna eru
dreifðir út um allan heim að berj-
ast við rauðu ógnina og á meðan
nota Sovétmenn tækifærið og nýta
sér veikleika Bandaríkjanna heima
fyrir og ráðast á vesturströnd
Bandaríkjanna.
Leikurinn er hernaðarkænsku-
leikur sem hefur verið strípaður
niður í kjarnann, þú þarft ekkert
lengur að pæla í að byggja stöðvar,
græða peninga og fleira. Það eina
sem skiptir máli er herkænska og
hugrekki. Með því að einfalda spil-
un leiksins niður í það sem raun-
verulega skiptir máli hefur Massive
dottið niður á snilldarhugmynd.
Maður stjórnar hersveitum sínum í
leiknum og spannar sögusviðið
gervöll Bandaríkin og hluta af
Evrópu.
Saga leiksins er sögð í gegnum
handteiknuð teiknimyndaatriði á
milli borða þar sem sýndar eru
venjulegar manneskjur sem lenda
í innrás Sovétmanna og þurfa að
reyna að verja heimaland sitt.
Sögumaður leiksins er enginn
annar en Alec Baldwin og gefur
hann sögunni mannlegan blæ. Það
er ótrúlegt hvað góð raddsetning
getur hjálpað til að fá mann til að
sökkva sér í söguna. Tónlist frá
tímabilinu eins og Whitesnake og
Tears for Fears er að finna í
leiknum ásamt nýrra lagi með
Audioslave.
Netspilun leiksins er hjarta og
sál hans og World in Conflict gerir
nýja hluti í þeirri deild. Leikurinn
býður upp á að hver sem er getur
hoppað inn í leik í miðjum klíðum á
milli allt að sextán spilara. Leikur-
inn hefur stuðning fyrir klön,
nákvæma tölfræði um spilun not-
enda og leiðtogaborð þar sem fólk
getur fylgst með hverjir eru bestu
leikmennirnir á netinu.
Leikurinn skartar einni flottustu
grafík síðustu ára og þeir sem eru
með bestu mögulegu skjákortin og
Windows Vista verða ekki sviknir.
Ef kalda stríðið
stæði enn í dag
WWW.N1.IS
Komdu með bílinn fyrir 20. október og þú
bæði sparar og losnar við alla bið.
Hjólbarðaþjónusta N1 er búin fyrsta flokks tækja-
kosti og hefur á að skipa reynslumiklu starfsfólki.
N1 BÍLAÞJÓNUSTA
EKKI BÍÐA
EFTIR FYRSTA
SNJÓNUM...
Vetrarpakki fylgir dekkja-
umgangi til 20. október
Þeir sem kaupa umgang af dekkjum fyrir
20. október fá sérstakan kaupauka; bílabón,
bílasápu, svamp, tjöruhreinsi og sköfu.
Mættu tímanlega og vertu klár í veturinn.
15% afsláttur til
20. október
Afsláttur af umfelgun, vetrardekkjum og þjón-
ustu. 10% afsláttur fyrir Viðskiptakortshafa auk
5% í formi punkta fyrir Safnkortshafa – samtals
15%. Þú getur sótt um kort á staðnum og nýtur
þá afsláttarins.
-15%
Dekkjahótel
Notaðu bílskúrinn í eitthvað skemmtilegt og
láttu okkur geyma fyrir þig sumardekkin.
Tekið er við dekkjum á öllum afgreiðslustöðum
hjólbarðaþjónustu N1. Í vor mætirðu einfaldlega
á sama verkstæði og sumardekkin bíða tilbúin.
Réttarhálsi 2, Reykjavík 587 5588
Fellsmúla 24, Reykjavík 530 5700
Ægisíðu 102, Reykjavík 552 3470
Langatanga 1a, Mosfellsbæ 566 8188
Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði 555 1538
Dalbraut 14, Akranesi 431 1777
Hrafn Gunnlaugsson frumsýndi
kvikmyndina Emblu á lokadegi
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinn-
ar í Reykjavík. Kvikmyndin er
endurklipping á myndinni Hvíta
víkingnum sem var frumsýnd
fyrir fimmtán árum og leikstjór-
inn hefur aldrei viljað gangast við.
Aðalleikkona kvikmyndarinnar,
Marie Bonnevie, var mætt til að
sjá nýja útgáfu myndarinnar sem
hún lék í aðeins sextán ára gömul
og þakkaði Hrafn henni kærlega
fyrir að sækja landið heim.
Embla frumsýnd