Fréttablaðið - 08.10.2007, Page 40
Ennþá
TENNIS Í VETUR
Skráning og upplýsingar
17.900 kr.
Tennis er skemmtileg hreyfing.
Enska úrvalsdeildin
Spænska deildin
Ítalska deildin
Er kominn með mitt eigið stuðningsmannalag
Lewis Hamilton hjá
McLaren féll úr leik í Kínakapp-
akstrinum í gær og missti því af
tækifæri til að tryggja sér titilinn.
Því munu úrslitin í stigakeppni
ökuþóra ekki ráðast fyrr en í loka-
keppninni í Brasilíukappakstrin-
um 21. október næstkomandi.
Kimi Räikkönen hjá Ferrari vann
í Kína og er enn með í baráttunni,
sem og Fernando Alonso, liðsfélagi
Hamilton hjá McLaren, sem varð
annar í Kínakappakstrinum.
Hamilton leiddi kappaksturinn í
Kína en varð að hætta eftir að hafa
misst stjórn á bílnum þegar hann
var að fara inn á viðgerðarsvæði í
lok 31. hrings og menn furðuðu sig
á því að hann væri ekki löngu búinn
að taka viðgerðarhlé enda dekkin á
bíl hans orðin léleg og því fór sem
fór hjá honum.
„Þetta voru slæm mistök hjá mér,
líklega einu alvarlegu mistök mín
allt tímabilið,“ sagði Hamilton
svekktur. „Mér þykir leiðinlegt að
hafa brugðist sjálfum mér og liðs-
mönnum mínum, þar sem þeir stóðu
sig frábærlega að vanda, en ég verð
að jafna mig á því og einbeita mér
að síðasta kappakstrinum.
Räikkönen, sem var að vinna
sinn fimmta kappakstur á tímabil-
inu, var eðlilega ánægður með
sigurinn en samt ekkert of bjart-
sýnn á framhaldið. „Við erum
búnir að koma okkur í betri stöðu
en þetta er samt mjög erfitt. Við
verðum bara að vinna síðasta
kappaksturinn og sjá hverju það
skilar okkur,“ sagði Raikkönen.
Fernando Alonso, sem hefur
verið upp á kant við bæði McLar-
en og liðsfélaga sinn Hamilton,
sagði að hann einbeitti sér bara að
sjálfum sér. „Ég var ekkert að spá
í hvað væri að gerast hjá Hamilton
heldur einbeitti mér bara að því að
klára kappaksturinn vel og það
tókst,“ sagði Alonso.
Klúður hjá Hamilton í Kína
Afonso Alves, leikmaður
Heerenveen, gerði sér lítið fyrir
og skoraði sjö mörk fyrir lið sitt í
9-0 sigri gegn Heracles Almelo í
hollensku deildinni í fótbolta.
Alves afrekaði enn fremur að
skora fjögur marka sinna á
aðeins tíu mínútna kafla í seinni
hálfleik.
Alves, sem var markahæstur í
hollensku deildinni í fyrra, setti
þar með met yfir flest mörk
skoruð af leikmanni í einum leik í
hollensku deildinni og sló þar
meðal annars við stórlöxum á
borð við Marco Van Basten og
Johann Cruyff sem skoruðu á
sínum tíma sex mörk í leik hvor
um sig fyrir lið sín.
Setti ótrúlegt
markamet
Íslendingaliðin Djur-
gården og Gautaborg berjast um
titilinn í sænsku úrvalsdeildinni í
fótbolta. Djurgården, sem er
undir stjórn Sigurðar Jónssonar
og Sölvi Geir Ottesen spilar með,
náði að vinna Gefle 2-0 og er því á
toppi deildarinnar ásamt Helsing-
borg þar sem Hjálmar Jónsson og
Ragnar Sigurðsson leika. Liðin
eiga ekki eftir að mætast
innbyrðis en Helsingborg er með
betri markatölu og leiðir því
deildina eins og er.
Íslendingaliðin
jöfn á toppnum
Arsenal endurheimti topp-
sæti ensku úrvalsdeildarinnar í
gær þegar liðið vann nauman 3-2
sigur á Sunderland á heimavelli á
meðan Liverpool mátti þakka fyrir
að ná jafntefli gegn Tottenham á
heimavelli. Chelsea sigraði lán-
laust lið Bolton og Manchester
City hélt góðu gengi sínu áfram
með 3-1 sigri gegn Middlesbrough.
Blackburn vann Birmingham 2-1,
Newcastle vann Everton 3-2,
Íslendingaliðið Reading vann
Derby 1-0 og Hermann Hreiðars-
son skoraði seinna mark Port-
smouth í 2-0 sigri liðs síns gegn
Fulham.
Allt virtist stefna í slátrun þegar
Arsenal var komið í 2-0 gegn Sund-
erland eftir stundarfjórðung, með
mörkum frá Robin Van Persie og
Philippe Senderos, en Sunderland
var ekki af baki dottið og jafnaði
leikinn með mörkum frá Ross Wall-
ace og Kenwyne Jones og allt leit út
fyrir að jafntefli yrði niðurstaðan.
En Robin Van Persie hafði ekki
lokið sér af og skoraði þriðja mark
Arsenal eftir sendingu frá vara-
manninum Theo Walcott sem kom
ferskur inn í leikinn.
Arsenal komst í toppsæti deildar-
innar á nýjan leik með sigrinum og
á jafnframt leik til góða á Englands-
meistara Manchester United sem
eru í öðru sæti.
Liverpool byrjaði leikinn af krafti
gegn Tottenham og komst yfir
snemma leiks með marki Andreis
Voronin. Tottenham jafnaði leikinn
hins vegar rétt fyrir lok hálfleiks-
ins með marki frá Robbie Keane og
hann bætti svo öðru marki við í upp-
hafi síðari hálfleiks. Tottenham var
því á góðri leið með að tryggja sér
kærkominn sigur, en Fernando
Torres var á öðru máli og jafnaði
leikinn í blálokin fyrir Liverpool og
endaði leikurinn 2-2.
Manchester City hélt áfram að
heilla fótboltaáhugamenn þegar
liðið vann sannfærandi 3-1 sigur
gegn Middlesbrough þar sem hinn
brasilíski Elano skoraði tvö mörk.
Mark Salomons Kalou í lok fyrri
hálfleiks var nóg til þess að tryggja
Chelsea sigur gegn lánlausu liði
Bolton, en þetta var jafnframt fyrsti
deildarsigur Avrams Grant, ný-
ráðins stjóra Chelsea.
Hermann Hreiðarsson var eins
og áður sagði á meðal markaskor-
ara þegar lið hans Portsmouth vann
góðan útisigur gegn Fulham 0-2 og
er liðið í fimmta sæti.
Brynjar Björn Gunnarsson og
Ívar Ingimarsson léku báðir allan
leikinn með Reading sem vann
botnlið Derby 1-0, en mark heima-
manna skoraði Kevin Doyle í seinni
hálfleik.
Átta leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær. Arsenal endurheimti
toppsætið og Chelsea vann fyrsta deildarleikinn undir stjórn Avrams Grant.
Manchester City hélt áfram á sigurbraut og Hermann skoraði fyrir Portsmouth.