Fréttablaðið - 23.10.2007, Blaðsíða 48
Líklega er það flughræðslan sem fær mig til að hugsa um guð og
dauðann á ferðalögum. Eftir flug-
tak gríp ég iðulega Moggann, fletti
upp í minningargreinum og velti
fyrir mér hvernig slík grein yrði
væri hún skrifuð um andlát mitt.
eru
vettvangur þar sem allir virðast
treysta sér til að viðra tilfinningar
og persónulega hagi. Því eru þær
hlýjar, tilfinningaþrungnar og
stundum vandræðalegar. Við vitum
að okkar tími mun koma og viljum
að okkar verði minnst með tilhlýði-
legum hætti. Þannig verður kjafta-
glöð og hnýsin manneskja með ein-
dæmum skrafhreifin og áhugasöm
um samferðamenn sína.
er í miklu
uppáhaldi hjá mér. Hverjum
vöknar ekki um augu við orð á borð
við: „Nú ertu dáin elsku amma mín.
Þú varst alltaf svo góð og þó að ég
hafi lítið hitt þig í seinni tíð gleymi
ég aldrei bragðgóðu pönnukökun-
um sem þú töfraðir fram á svip-
stundu.“ Þetta finnst mér fögur
kvenlýsing og er viss um að ömmur
gleðjast við slíkan lestur á
himnum.
er rótgrón-
ara form, um merka menn, styrk
þeirra, karlmennsku og ráðvendni.
Einatt kemur ritari því á framfæri
að stórmennið hafi haft mikið álit á
honum: „Fallinn er frá mikill höfð-
ingi. Sjónarsviptir er þegar slíkur
maður yfirgefur leiksvið lífsins,“
segir skrifari í byrjun og svo eitt-
hvað á þessa leið: „Ég var ekki hár
í loftinu þegar hann áttaði sig á því
að hugur minn stóð til reksturs
fyrirtækja. Réð hann mér heilt
sem alla tíð hefur nýst mér vel.“
var oft notaður um
karla fyrir nokkrum áratugum og
dregin upp líkindi með og görpum
fortíðar. Eitt sinn varð ég svo ringl-
uð að ég þurfti að líta aftur efst í
greinina til að fullvissa mig um að
Þórður nokkur væri nýlátinn en
ekki Gunnar Hámundarson.
sé mig í anda í eilífðinni þar
sem ég sit með koffínlaust kaffi,
nikótínlausa sígarettu og Mogga
sem engin tré dóu fyrir, og brosi
góðlátlega yfir sendibréfunum sem
mér hafa borist á síðum hans. „Rétt
er það, vinir af holdi og blóði, ég
var fögur, listfeng og dyggðug, skil
vel að þið saknið mín,“ mun ég
segja angurværum rómi og því
næst snúa mér að Hallgerði
Höskuldsdóttur, formóður minni,
og ræða um laglega karlmenn.
Í eilífðinni