Fréttablaðið - 23.10.2007, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 23.10.2007, Blaðsíða 36
Æska dagsins er heppin. Kannski er réttara að segja að verslanir og vöru- merki láta okkur halda að krakkar séu heppnari en við hin sem eldri erum. Í dag er smáfólkið sprenglært á netið, segir jafnvel hinum fullorðnu til og fær síðan að vafra um vefinn á hinum og þessum leikjasíðum. Við sem telj- um okkur enn vera ungar mann- eskjur í blóma lífsins eldumst um tugi ára þegar börnin á heimilinu þylja upp hvers kyns tölvuorð og enska frasa sem maður vissi ekki einu sinni að væru til. En það er ekki bara tölvan sem hefur breytt börnunum, heldur eru leikföng smáfólksins orðin þróaðri og flottari og minna meira á hátæknivopn úr framtíðarmynd heldur en eitthvað til að leika sér með. Uppi á hillu standa róbótar í gervi risaeðlu sem hefur greind og gáfur til að vera mislynd, eftir því hvernig komið er fram við hana. Og kostar ekki nema smá- aura í þessu góðærisbruðli sem ríkir hér á landi. Slíkar verur sáust aðeins hjá Sigurði Richter undir taktfastri tónlist Kraftwerk á árum áður. Í minningunni skiptust börn nefnilega bara í tvo hópa. Annað- hvort voru þau Playmo-leikarar eða Lego-kubbarar. Og rökræð- urnar um ágæti leikfanganna gátu oft á tíðum verið ansi rætnar og harðar. „Þú kannt bara ekkert að leika þér,“ sögðu Playmo-leik- mennirnir og fengu jafnharðan í hausinn að gáfaða fólkið léki sér með Lego en aumingjar með Playmo. Sjálfur átti ég dágott safn úr kúrekaplaymo-línunni, eyddi yfirleitt öllum afmælispeningum í að byggja mér upp gott safn og fannst fátt jafn skemmtilegt og að heyja byssubardaga milli einfar- ans á hvíta hestinum og vonda fógetans á miðju stofugólfinu heima. Svo er ég líka með tíu þumalputta þannig að þegar kom að kubbum urðu yfirleitt til kúbísk sköpunarverk en ekki einhver tækniundur. HÁSKÓLAFUNDARÖ‹ Ísland á alfljó›avettvangi - erindi og ávinningur Nánar á: www.utanrikisraduneyti.is/haskolafundarod Gu›ni Th. Jóhannesson, sérfræ›ingur í lagadeild Háskólans í Reykjavík Skiptum vi› máli á›ur fyrr ? Ísland hefur haft jákvæ› áhrif á svi›i alfljó›amála í fortí›inni. Án efa eru tækifærin mikil, en fló er nau›synlegt a› gengi› sé fram af hógvær› og a› vi› sní›um okkur stakk eftir vexti. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisrá›herra Skiptum vi› máli í dag? Ljóst er a› Ísland tekur í dag virkari flátt og meiri ábyrg›. Me› setu og formennsku í lykilstofnunum, svæ›isbundnum og alfljó›legum, gefst tækifæri til a› hafa raunveruleg áhrif á alfljó›avettvangi. Vera Knútsdóttir, háskólanemi og forma›ur ICEMUN, félags S.flj. á Íslandi Skiptum vi› máli í framtí›inni? Áhugi og flekking ungs fólks á alfljó›amálum og alfljó›avi›skiptum hefur aldrei veri› meiri. fietta fólk lítur á heiminn allan sem sitt athafnasvæ›i. fia› er ekki spurning hvort, heldur hvar og hvernig, vi› munum hafa áhrif. Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, stjórnar umræ›um Yfirskrift fundarins fellur vel a› grundvallarhlutverki HR sem er a› auka samkeppnishæfni og lífsgæ›i me› áherslu á alfljó›lega færni á öllum svi›um. Grunnurinn a› velgengni íslensks atvinnulífs er auki› sjálfstraust til a› sækja fram á alfljó›legum vettvangi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.