Fréttablaðið - 23.10.2007, Blaðsíða 38
Það gekk á ýmsu þegar
Spice Girls komu saman
um síðustu helgi til að taka
upp kynningarmyndband
við nýtt lag sitt, Headlines
(Friendship Never Ends).
Kryddstúlkurnar fimm, Emma
Bunton, Mel B, Mel C, Geri Halli-
well og Victoria Beckham, komu
saman á ný í sumar og munu
senda frá Greatest Hits-plötu á
næstunni, en á henni verða tvö ný
lög. Headlines er annað þeirra.
Við tökurnar á kynningarmynd-
bandinu gekk þó á ýmsu og segir
heimildarmaður The Sun að tökur
hafi dregist fram eftir öllu vegna
hegðunar Geri Halliwell, sem fór
fram á sérstaka tegund af flösku-
vatni og lét tökur sitja á hakanum
á meðan hún hugleiddi.
„Geri hægði endalaust á öllu
með því að hugleiða og standa í
undarlegum trúarlegum athöfn-
um,“ segir hann. „Hlutunum
seinkaði mjög mikið. Leikstjórinn
reif í hár sitt og hótaði því að fara.
Stelpurnar voru svo þreyttar og
Emma grét á meðan tökurnar
drógust enn,“ segir hann, en tökur
stóðu yfir til klukkan þrjú um
nótt.
Victoria Beckham hafði líka
sérþarfir á staðnum og fékk
aðstoðarmann til að elta sig um
tökustað með ávaxtabakka og
kampavín. Mel B ku hafa varið
bróðurpartinum úr deginum í að
„væla yfir flugþreytu“ eftir að
hafa flogið frá Los Angeles, og
Mel C var að því komin að bug-
ast.
Headlines kemur út 19. nóvem-
ber næstkomandi en stúlkurnar
leggja upp í tónleikaferð í desem-
ber, ef allt gengur að óskum.