Fréttablaðið - 23.10.2007, Blaðsíða 34
Uppreisn í Ungverjalandi
„Ef það er til Guð þá
held ég að hans helsta
ósk sé að við séum góð
við hvert annað. Það er
okkar helsta skylda.“
Heilsubankinn, sem er upplýsinga- og gagnabanki um
flest allt er lýtur að heilsu og lífsstíl, fagnaði árs afmæli
á dögunum. Heilsubankinn er ein fyrsta vefsíða sinnar
tegundar á Íslandi og er ætlað að vera mótvægi við skyndi-
lausnir varðandi heilsufar.
„Fólk er alltaf að leita að skyndilausnum, en þær duga
skammt. Í Heilsubankanum má finna ráð og leiðbeiningar
um hvað fólk getur gert til að axla ábyrgð á sjálfu sér gagn-
vart heilsu og lífsstíl til að öðlast meiri og verðmætari gildi
í lífinu,“ segir Hildur M. Jónsdóttir framkvæmdastjóri,
sem hefur sjálf farið í gegnum sjálfskoðun af þessu tagi.
„Framan af ævinni var ég fremur heilsulaus en þegar ég
fór til Helga Valdimarssonar læknis sem var nýfarinn að
tala um fæðuóþol og Candida-sveppasýkingar breyttist líf
mitt. Ég losnaði við allt sem hafði hrjáð mig á örfáum mán-
uðum, með breyttu mataræði og í tíu ár var ég hraust þar
til ég lenti í slæmu bílslysi. Þá varð ég að endurskoða lífið
enn á ný,“ segir Hildur, sem flutti í kjölfarið norður í land í
afdal uppi við jökulrætur. Hún telur að það hafi hjálpað sér
gríðarlega við að ná heilsu á ný að flytja úr hraðanum.
Síðasta ár hefur Heilsubankinn lagt mikla áherslu á
mataræði, hreyfingu og heildræna nálgun. Í tilefni afmæl-
isins voru einnig opnaðir tveir nýir flokkar: heimili og um-
hverfi. „Heimili og umhverfi skipta miklu máli og nú erum
við í raun komin með alla þá þætti sem hafa áhrif á líðan
einstaklings,“ útskýrir Hildur.
„Vefurinn er orðinn mjög öflugur þrátt fyrir að við höfum
ekkert auglýst okkur. Í tilefni tímamótanna ætlum við hins-
vegar að kynna hann og bjóða auglýsendum að koma inn
á vefinn þannig að þetta verði stærra,“ segir Hildur, sem
segir sérfræðinga af ýmsu taka á móti fyrirspurnum.
„Umfjöllunin á síðunni vil ég heldur kalla heildræna
heldur en óhefðbundna. Enda má í raun segja að þetta sé
meira hefðbundið en nútíma læknavísindi þar sem þetta er
miklu eldri fræði og hefur þróast í allar áttir. Eins er allt
sem kemur fram á síðunni viðurkennt samkvæmt íslensk-
um lögum,“ útskýrir Hildur, sem vill að unnið sé með huga,
líkama og sál í senn.
„Heilsubankinn kemur á frábærum tíma af því það er svo
mikil vakning í samfélaginu og margir sem þjást af óhollu
neyslumynstri, hreyfingarleysi og öðrum lífsháttasjúk-
dómum,“ segir Hildur.
„Þegar ég breytti mínum neysluvenjum voru engar
heilsubúðir á borð við Maður lifandi en nú er mun einfald-
ara að nálgast hráefni og upplýsingar,“ segir Hildur. Allar
nánari upplýsingar er að finna á www.heilsubankinn.is.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við and-
lát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, dóttur, systur,
tengdadóttur og mágkonu,
Þuríðar Lindu
Alfreðsdóttur,
Hjöllum 7, Patreksfirði.
Ragnar B. Fjeldsted
Stella Björk Fjeldsted Elmar Már Einarsson
Kristinn Fjeldsted
Alfreð Már Fjeldsted
Rakel G. Magnúsdóttir
Kristinn Fjeldsted
og aðrir aðstandendur.
Hjartanlegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæra
Hauks Þorvaldssonar.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Heimahlynningar, Karitasar og líknardeildar Kópavogs
fyrir frábæra umönnun.
Björg Jóhannsdóttir
Björgvin Margeir Hauksson
Agnes Björk Hauksdóttir
Hermann Haukur Hauksson Auður Jónsdóttir
Þorvaldur Hauksson
Jóhanna Clara Jónsdóttir
Jón Knútur Jónsson Eva Hillerz
og barnabörnin.
60 ára afmæli
Sextugur er í dag, 23. október,
Reynir Ólafsson,
rafvirkjameistari í Kefl avík.
Reynir hefur verið sjálfstætt
starfandi rafvirki í tæp fjörutíu ár og
oft kenndur við búð sína, R.Ó., sem
var starfrækt í 26 ár á Hafnargötunni.
Reynir mun eyða afmælisdegi sínum í
faðmi fjölskyldunnar.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigurlaug Jónsdóttir
frá Húsagarði í Landsveit,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn
16. október, verður jarðsungin frá Áskirkju miðviku-
daginn 24. október kl. 13.00. Þeir sem vilja minnast
hennar, vinsamlegast láti líknarstofnanir njóta þess.
Jón Garðar Ágústsson Ingimunda Loftsdóttir
Sigrún Ágústsdóttir Bessi Aðalsteinsson
Svava Ágústsdóttir Kristinn Gunnarsson
Hörður Gunnar Ágústsson Hanna Larsen
Steingerður Ágústsdóttir Þórður St. Guðmundsson
Áslaug Ágústsdóttir Svanur Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
Steinunn Sigríður
Jónsdóttir (Sissa),
Eikjuvogi 28,
lést á Landspítalanum við Hringbraut hinn 15. októ-
ber. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
25. október kl. 13.00
Jón Þór Einarsson,
Hilmar Einarsson,
Sigríður Helga Einarsdóttir,
Kjartan H. Einarsson,
Guðjón P. Einarsson,
Aníta Knútsdóttir,
Helen Knútsdóttir
og fjölskyldur.
Við færum innilegar þakkir öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Kristjönu Sigurðardóttur,
áður til heimilis að Arahólum 4.
Starfsfólk Grundar fær bestu þakkir fyrir alúð og góða
umönnun.
Elísabet Kristinsdóttir Guðmundur Sveinsson
Sigríður Sigurðardóttir Jóhann Vilbergsson
Reynir Sigurðsson Sigríður Bragadóttir
Hlín Sigurðardóttir Gísli Jónsson
Júlíana Sigurðardóttir Hannes Pétursson
barnabörn og langömmubörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
Elínar Tómasdóttur,
Kársnesbraut 99, Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítalans
við Hringbraut fyrir frábæra umönnun í veikindum
hennar.
Skúli Sigurgrímsson
Bergþór Skúlason Ragnhildur Björg Konráðsdóttir
Sigurgrímur Skúlason Freydís J. Freysteinsdóttir
Skúli Skúlason Borgar Ólafsson
Bryndís Skúladóttir Haukur Þór Haraldsson
og barnabörn.
Faðir okkar og fósturfaðir,
Óskar B. Bjarnason,
Hörðalandi 6, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund, föstudaginn 12. okt-
óber. Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 25. október kl. 15.00.
Borghildur Óskarsdóttir,
Guðrún Óskarsdóttir,
Höskuldur Harri Gylfason.
AFMÆLI